Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 134
134 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
World Class
Þurfum jöfn og góð vinnu- og vaxtarskilyrði
Heilsuræktarstöðvar World Class á höfuðborgarsvæðinu eru tíu talsins en
fyrirtækið var stofnað árið 1985. Frá þeim tíma hefur starfsfólk lagt kapp á að
hjálpa viðskiptavinum að ná sínum heilsuræktarmarkmiðum.
Hafdís Jónsdóttir, fram kvæmdastjóri Lauga Spa, segir ætíð efst á
baugi hjá fyrirtækinu að efla
heilbrigði Íslendinga.
„Við leggjum áherslu á að
við skiptavinir okkar geti æft
í stöðv unum okkar nálægt
heim ili sínu og vinnu til að geta
sparað bæði tíma og ferða
kostn að. Það er líka alltaf mikið
um að vera þar sem rúmlega
tvö hundruð manns vinna. Við
er um nýbúin að halda árshátíð
og nú er verið að vinna að
vor hátíð þar sem verður farið
í golf, hestaferð, humarveislu
og fleira.“
hvaða árangur ertu ánægðust
með innan fyrirtækis þíns að
undanförnu?
„Góðan uppgang þrátt fyrir
erfið skilyrði í atvinnulífinu
undan farin ár. Könnun sem
sýndi að yfir 98% viðskiptavina
okkar eru ánægð með þjónustu
okkar er árangur sem hægt er
að vera stoltur af og hvatning
til að halda áfram að gera jafn
vel enn betur.“
hvernig metur þú væntingarnar
í atvinnulífinu eftir kosningar?
„Ný ríkisstjórn hefur vakið
bjart sýni og jákvæðni í land
inu. Mér líst vel á þær tillögur
sem komnar eru fram og tel
þær góðar til þess að blása lífi
í atvinnulífið, sem er heim
ilum og fyrirtækjum í land inu
jafnmikilvægt. Við þurf um
jöfn og góð vinnu og vaxtar
skilyrði.“
Er fyrirtæki þitt með sérstaka
formlega jafnlaunastefnu?
„Við erum með jafnlaunastefnu
og erum stolt af því.“
hafdís Jónsdóttir, fram kvæmdastjóri Lauga Spa.
„Ný ríkisstjórn hefur vakið
bjartsýni og jákvæðni í
landinu.“
texti maría ólafsdóttir / mynd: geir ólafsson
Nafn: hafdís Jónsdóttir
aldur: 51
menntun: kláraði framhaldsnám í
Floarts í bandaríkjunum
tómstundir: Skíði, veiði, golf,
ávaxtatrjárækt o.m.fl.
Sumarfríið 2013: Fer yfirleitt
ekki í sérstakt frí á sumrin en tek
daga hér og þar til að stunda
tómstundirnar þegar færi gefst