Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2013, Side 135

Frjáls verslun - 01.04.2013, Side 135
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 135 PwC Við vinnum nú markvisst að markaðsnálgun sem byggist á atvinnu­ greina flokkun og njótum við það sérfræðiþekkingar innan vébanda PwC­samstarfsins um allan heim,“ segir Jóhanna Áskels Jónsdóttir, sviðsstjóri Skatta og lög fræðisviðs PwC. hvað hefur verið efst á baugi innan þíns fyrirtækis að undan förnu? „Fyrirtækið, líkt og öll ráð­ gjafarfyrirtæki landsins, hefur fundið verulega fyrir erfið ­ leik um í íslensku efna hags ­ lífi á liðnum misserum. Við þessu hefur fyrirtækið þurft að bregðast en á sama tíma að búa í hag inn til að mæta aukinni eftir spurn þegar úr fer að rætast. Í því sam bandi höfum við nýtt tímann til að vinna í okkar innri málum, bæði gæða­ og starfs mannamálum, auk þess sem við erum að vinna mjög markvisst í samræmi við nýja markaðs nálgun sem byggist á atvinnu greinaflokkun. Í því sambandi njótum við gríðar ­ legrar sérfræðiþekkingar sem er til innan vébanda PwC­sam ­ starfsins um allan heim. Félagið kom mjög vel út í könnun sem gerð var meðal starfsmanna PwC um allan heim og jafn­ framt hækk uðum við okkur nokkuð í vinnu mark aðskönnun VR á milli ára, en við teljum að með því að leggja áherslu á ánægju starfs manna muni það skila sér til viðskiptavina okkar. Þá erum við nú að bæta við okkur fólki og fjölga í eig ­ endahópi og höfum m.a. opnað starfsstöð í Grundar firði og nýlega gengið frá kaupum á starfsemi Bakka Bókhalds og ráðgjafar á Selfossi og mun sú starfsemi falla undir PwC frá og með miðjum júní. Hægt og bítandi er hagur kvenna að vænkast innan PwC. Hlutfall kvenna meðal starfs ­ manna hefur verið að aukast á undanförnum árum og nú einnig meðal stjórnenda og í eig endahópi. Hins vegar er alltaf hægt að gera enn betur í þess um efnum og það er nokk uð sem við stefnum að á næstu misserum.“ hvaða árangur ertu ánægðust með innan fyrirtækis þíns að undanförnu? „Við leggjum mikið upp úr upplýsingamiðlun til starfs ­ manna, þ.e. hver staða félagsins er, stefna þess og markmið, og ég er sannfærð um að þetta er meðal annars ástæða þess að starfs menn eru ánægðir og stoltir af fyrirtækinu sínu. Virðing og vinátta er forsenda þess að byggja upp sterka liðs heild og ég tel að það eigi mjög vel við um okkur hjá PwC. Það hvernig hópurinn er uppbyggður og stemningin innan hans er það sem skiptir öllu máli. Gildin okkar eru fag mennska, þekking og sam ­ vinna og það snýr allt að fólki, bæði okkar eigin fólki og við ­ skiptavinum.“ hvernig metur þú væntingarnar í atvinnulífinu eftir kosningar? „Mér finnst við sem þjóð vera búin að ná botninum og að nú fari hlutirnir að þokast í rétta átt. Það þarf að auka kaupmáttinn og ég tel að það sé hægt að gera, meðal annars með því að lækka tekjuskatt. Það er mikilvægt að tryggja stöðugleika í rekstrarumhverfi fyrirtækja þannig að hægt sé að gera áætlanir fyrir framtíðina. Ég tel brýnt að stjórnvöld komi með trúverðuga áætlun um hvernig og hvenær aflétta eigi gjaldeyrishöftunum. Það er nauðsynlegt að auka innlenda og erlenda fjárfestingu á Íslandi og ég tel að það sé eitt af mikilvægustu verkefnunum sem Ísland stendur frammi fyrir. Stjórnarflokkarnir stefna að því að einfalda skattkerfið og gera úttekt á því og þeim breyt ingum sem gerðar hafa verið undanfarin ár og ég tel að það sé af hinu góða. Á sama tíma þarf að fara í gagngera endurskoðun á tekjuskatts lög ­ unum með það að leiðarljósi að laga þau að þörfum nútíma við­ skiptalífs. Ég tel í því sambandi mjög mikilvægt að huga vel að því hvort ekki sé í meira mæli hægt að leggja reikningsskil fyrirtækja til grundvallar skatt­ skilum, þ.e. að ekki þurfi að koma til skattalegar leið rétt ing­ ar í sama mæli og nú er.“ texti maría ólafsdóttir / mynd: geir ólafsson Nafn: Jóhanna Áskels Jónsdóttir aldur: 42 ára menntun: Lögfræðingur frá háskóla Íslands hjúskaparstaða: gift þresti Líndal rafiðnfræðingi og eigum við þrjú börn, Ágústu tíu ára, Ásgeir sjö ára og Ásdísi fjögurra ára tómstundir: almenn útivera og líkamsrækt. Ég stundaði ýmsar boltaíþróttir áður fyrr en fylgist núna með börnunum á hliðarlínunni. Síðan er ég að reyna að koma mér í hestamennsku, en við hjónin eigum nokkra hesta. mér finnst gaman að ferðast bæði innanlands og erlendis og lang best er auðvitað að verja tíma með fjölskyldunni og góðum vinum Sumarfríið 2013: Ég ætla að ferðast um landið með fjölskyldunni og verja einhverjum tíma á ættaróðali eiginmannsins í Vatnsdal í húnavatnssýslu. Svo er líka nauðsynlegt að vera heima og gera ekki neitt PwC starfar á sviði endurskoðunar, reikningsskila, fyrirtækjaráðgjafar og skatta- og lögfræðiráðgjafar. Fyrirtækið leggur áherslu á ánægju starfs- manna sem skilar sér aftur til viðskiptavina. helga hjálmrós bjarnadóttir í forsvari fyrir skrifstofu PwC í grundarfirði, arna guðrún tryggvadóttir eigandi á endurskoðunarsviði, bryndís björk guðjónsdóttir eigandi á endurskoðunarsviði, Ljósbrá baldursdóttir eigandi á endurskoðunarsviði, Sigurbjörg halldórsdóttir fjármálastjóri, Elín hlíf helgadóttir mannauðsstjóri, Jóhanna Áskels Jónsdóttir sviðsstjóri Skatta- og lögfræðisviðs. virðing og vinátta forsenda sterkrar liðsheildar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.