Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 139
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 139
hvaða árangur ertu ánægðust
með innan fyrirtækis þíns að
undanförnu?
„Síðastliðin fjögur ár hefur
N1 framkvæmt árlega vinnu
staðagreiningu þar sem
starfs mönnum gefst kostur á
að svara spurningum og tjá sig
um starf sitt og vinnuumhverfi.
Niður stöðurnar hafa verið
mjög jákvæðar og gefa skýra
mynd af líðan og viðhorfi
starfsmanna til fyrirtækisins.
Það er mjög ánægjulegt að sjá
hversu margar spurningar
greiningarinnar lenda á svo
kölluðu styrkleikabili sem
gefur okkur skýr skilaboð um
að starfsfólk N1 sé jákvætt,
stolt af félaginu og líði vel í
starfi. N1 hefur náð að tala
til viðskiptavina sinna að
undanförnu með góðum
árangri og erum við sífellt að
auka samskiptin. Þá erum við
ánægðar með að þegar sé farið
að vinna hörðum höndum að
ýmsum verkefnum tengdum
stefnumótunarvinnunni og
nýrri stefnu félagsins. Við
erum t.a.m. komin nær kjarna
starf semi okkar og áhersla er
lögð á sérstöðu okkar, sem
er N1kortið. Þá leggur N1
mikla áherslu á umhverfis,
gæða og öryggismál í starfsemi
sinni. Umhverfisstefna hefur
verið innleidd hjá N1 þar sem
markviss flokkun á sér stað og
tókum við þátt í grænum apríl
þar sem starfsmenn félagsins
fóru og tóku til á stöðvunum.“
hvernig metið þið vænting -
arnar í atvinnulífinu eftir
kosn ingar?
„Við erum jákvæðar og bjart
sýnar yfir atvinnulífinu og
vænt um breytinga til batnaðar.“
hvernig er staðan í ykkar fyrir -
tæki varðandi lögin um kynja -
hlutföll í stjórninni sem taka
gildi 1. september nk.?
„Staðan er mjög góð varðandi
lögin um kynjahlutfall í stjórn
um fyrirtækja. Í stjórn N1 í dag
sitja tvær konur og þrír karlar.“
Er fyrirtæki þitt með sérstaka
formlega jafnlaunastefnu?
„Já, N1 er með formlega
jafn réttisstefnu sem unnið er
eftir og varðar m.a. jafnrétti
kynjanna í allri starfsemi N1.
Jafnlaunastefnan er á teikni
borðinu og verður von andi
kynnt og tekin til fram kvæmd
ar áður en langt um líður.“
þorbjörg matthildur Einarsdóttir Deildarstjóri reikningshalds, þyrí Dröfn konráðsdóttir Sérfræðingur á markaðssviði, Sigríður harðardóttir Sér-
fræðingur á starfsmannasviði, ólína Laxdal Sérfræðingur í Viðskiptagreining, Ásdís björg Jónsdóttir gæðastjóri, ingunn Sveinsdóttir Framkvæm-
darstjóri einstaklingssviðs, Elísabet Jónsdóttir Sérfræðingur á markaðssvið og Sigríður guðmundsdóttir Vörustjóri.