Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 140
140 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
Alcoa-Fjarðaál
kvenskörungar í álveri Fjarðaáls
Af álverum Alcoa í heiminum er álver Alcoa-Fjarðaáls með hæst hlut-
fall kvenna í starfsmannahópnum, eða 21%. Hafa bæði Alcoa og forstjóri
Fjarðaáls nýlega fengið viðurkenningar í Bandaríkjunum vegna þessa árangurs.
Við hlið Janne Sigurðsson, forstjóra Fjarðaáls, starfa margar öflugar
konur. Þeirra á meðal eru Ruth
Elfarsdóttir, framkvæmdastjóri
fjármála, Guðný B. Hauks
dótt ir, framkvæmdastjóri
mann auðsmála, Anna Björk
Hjalta dóttir, ferliseigandi
álfram leiðslu, og Sigrún Birna
Björns dóttir fræðslustjóri,
en hún hafði nýlega, ásamt
vösku liði Fjarðabyggðar,
sigur í Út svari, spurningaþætti
Sjón varps ins. Spurðar hvað
hafi verið mikilvægast í
rekstrinum á árinu stendur
ekki á svari hjá Guðnýju. Hún
segir það mikilvægt skref að
hefja inn leiðingu á breyttu
vaktakerfi og bjóða þar með
upp á meiri sveigjanleika í
vinnutíma en áður var. Þetta
muni auð velda Fjarðaáli að
starfa í anda jafnréttisstefnunnar
og fjölskyldu stefnunnar sem
fyrir tækið starfar eftir. „Ég er líka
gríðarlega stolt af aukinni starfs
ánægju og minnkandi starfs
mannaveltu,“ bætir hún við.
Sigrún Birna segir að þjálfun
á vegum fyrirtækisins hafi
aldrei verið meiri en á þessu
ári, en markmið hennar sé
texti maría ólafsdóttir / myndir: hlimar Sigurbjörnsson