Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 151
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 151
Þjónusta og samfélagsleg
ábyrgð forgangsverkefni
Við vinnum ýmis verk efni á sviði sam fé lags legrar ábyrgð ar og
gerðumst á síð asta ári að ilar að
UN Global Com pact. Mark
mið ið er að trygga að vörur
sem seldar eru í Vín búð unum
séu fram leiddar samkvæmt
alþjóð legum samþykktum
og siðareglum. ÁTVR er fyrst
íslenskra stofnana til að setja
fram ársskýrslu sína í samræmi
við alþjóðlega sjálfbærnivísa GRI
(Global Reporting Initiative),
mælikvarða sem meta árangur
um sjálfbærni á sviði efnahags,
samfélags og um h verfis,“ segir
Sigrún Ósk Sigurðar dótt ir, að
stoðarforstjóri Vín búðar innar.
hvað hefur verið efst á baugi
innan þíns fyrirtækis að
undan förnu?
„Í vetur hefur verið unnið
að fjölmörgum verkefnum
innan fyrirtækisins enda
rekur ÁTVR 48 Vínbúðir um
allt land. Stöðugt er unnið
að endurbótum á hús næði
Vínbúðanna og lögð áhersla
á að gera þær nútíma legar
og aðlaðandi fyrir viðskipta
vini. Þjónustan er ávallt
for gangs verkefni enda er
stefna okkar að vera í hópi
fremstu þjónustufyrirtækja
landsins og þekkt fyrir sam
félagslega ábyrgð. Eitt mikil
vægasta verkefnið á sviði
sam fé lagslegrar ábyrgðar er
að tryggja að fólk sem kaupir
áfengi hafi náð tuttugu ára aldri.
Á undanförnum árum hafa
verið framleiddar auglýsingar
bæði til að minna ungt fólk
á að hafa skilríki meðferðis
og eins til að vekja athygli á
því hversu mikilvægt er að
neyta áfengis með ábyrgum
hætti. Þá var nýlega sett af
stað auglýsingaherferð undir
slag orðinu: „Seturðu hvað sem
er upp í þig? Munntóbak er
ógeð!“ Þetta er fyrsta þrí víddar
auglýsingin sem fram leidd er
á Íslandi en markmiðið er að
vekja ungt fólk til um hugs unar
um skaðsemi munn tóbaks.“
hvaða árangur ertu ánægðust
með innan fyrirtækis þíns að
undanförnu?
„Þjónustan er forgangs verk
efni og því er hægt að gleðjast
yfir frábærum árangri í Íslensku
ánægjuvoginni. Vínbúðin var
með hæstu einkunn í flokki
smásölufyrirtækja þriðja árið
í röð. Auk þess var Vínbúðin
með næsthæstu einkunn allra
fyrirtækja sem mæld voru
annað árið í röð. Starfsfólk get
ur verið stolt af þessum árangri
enda er stöðugt unnið að því
að fræða viðskiptavini og veita
framúrskarandi þjónustu.
Það er óumdeilt að ánægja
viðskiptavina byggist á ánægju
starfs fólks. Nýleg könnun,
Stofnun ársins, var tilefni til að
gleðjast en ánægja starfsfólks
hefur aukist mikið á milli ára.
Vínbúðin er nú í ellefta sæti á
lista stórra stofnana og hækkar
um tuttugu sæti á milli ára.“
Er fyrirtæki þitt með sérstaka
formlega jafnlaunastefnu?
„Fyrirtækið hefur sett sér
form lega jafnréttisáætlun.
Nýlega vann PwC jafnlauna
könn un fyrir fyrirtækið,
en mark miðið er að greina
hvort konum og körlum séu
greidd sömu laun fyrir sam
bærileg störf. Niðurstaðan er
ánægjuleg og mun ÁTVR á
næstunni hljóta gullmerki jafn
launakönnunar PwC, sem stað
festir að hjá fyrirtækinu er ekki
kynbundinn launamunur.“
texti maría ólafsdóttir / mynd: Vigfús birgisson
Nafn: Sigrún ósk Sigurðardóttir
aldur: 54 ára
menntun: Cand. oecon. og mS í
stjórn un og stefnumótun frá hÍ,
stefni að því að ljúka diplómanámi
í opinberri stjórnsýslu á haust önn
2013
hjúskaparstaða: gift Árna Sv.
mathiesen
tómstundir: Útivera og heil -
brigður lífsstíll, þar með talið
matur og matargerð
Sumarfríið 2013: innanlands,
ekkert jafnast á við Ísland á
sumrin
Stjórn fyrirtækisins: Í fram -
kvæmda stjórn er forstjóri Ívar J.
arndal og framkvæmdastjórarnir
Sigrún ósk Sigurðardóttir, Einar
S. Einarsson og Sveinn Víkingur
Árnason
Þjónustan er forgangsverkefni hjá Vínbúðunum auk herferða og verkefna
sem stuðla að samfélagslegri ábyrgð.
ÁTVR
„Þjónustan er
forgangs verk efni
og því er hægt að
gleðjast yfir frá
bærum ár angri í
Íslensku ánægju
voginni.“