Frjáls verslun - 01.04.2013, Side 165
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 165
geðþótti ræður ekki hvernig tímiaritið Forbes setur saman lista sína. 100 áhrifamestu kon ur
heims eru valdar úr hópi 250 kvenna sem vakið hafa athygli fyrir sjö aðskilda þætti: Það er auð-
legð, rekstrar kunnátta, fyrirmynd í framkomu, tíðni í í fjölmiðlum, áhrif í stjórn málum og tækni.
Síð an er þeim hundrað fremstu raðað eftir gróða fyrirtækja sem þær reka, eftir því hve oft þær
birt ast í fjölmiðum, þar á með al fjölda fésbókarvina og eftir áhrif um. Síð asti liðurinn felur í sér
mat á hve víða áhrifanna gætir og hve margt fólk finnur fyrir þess um áhrifum í daglegu lífi.
1. angela merkel, kanslari Þýskalands:
Engum kemur á óvart að Angele Merkel er áhrifar
mesta kona heims. Þýski kanslarinn sætir vissulega
flaumi fúkyrða frá ýmsum nágrönnum Þýskalands en
sérfræðingar Forbes eru á einu máli um áhrif hennar.
Það er skuldakreppa í Evrópu en á sama tíma stendur
þýskur efnahagur sterkar en nokkru sinni fyrr. Þjóðvejar
geta bjargað mörgum þeim skuldugustu en gera það ekki
skilyrðislaust. Fyrir vikið er Merkel líkt við Hitler en fátt er
fjarri sanni.
Merkel hefur nú senn verið kanslari í átta ár og hún ku
ætla að sækjast eftir endurkjöri í haust. Af þessum átta
ár um á valdastóli hef ur hún verið sjö ár á toppi lista Forbes
yfir áhrifamestu konur heims.
2. dilma rousseff, forseti Brasilíu:
Dilma Rousseff er enn á fyrsta kjörtímabili sínu í em
bætti forseta Brasilíu. Hún á að margra mati enn eftir
að sanna sig sem þjóðarleiðtogi. Það eru erfiðleikar
í efnahagslífinu - þá erfði hún eftir fyrri stjórnendur -
en það er ætlast að hún greiði úr málum.
Brasilía er í röð víðlendustu og fjölmennustu ríkja heims
og ætti því að einnig að vera í röð hinna áhrifamestu.
Áhrif á heimsvísu er háð því að efnahagurinn heima sé í
sókn. Rousseff vill stuðla að vexti einkaframtaks en félags
leg vandamál eru líka þung byrði fyrir þjóðfélgið. Forset
inn er nú að leita að jafnvægi milli umbóta og vaxtar.
3. melinda gates, styrktarsjóði Bill
og Melindu gates:
Melinda Gates er ekki eins fræg og Bill, maður henn
ar, en það hefur lengi verið viðurkent að hún hefur
viðskiptavit á við tæknivit karlsins. Ástæðan fyrir að
Melinda er í þriðja sætinu er einfaldlega að þau hjón
eru moldrík og einbeita sér að því að gefa peninga
þar sem þeirra er mest þörf.
3,4 milljarðar Bandaríkjadala fóru úr sjóðum þeirra í fyrra
til þarfl egra verka. Heilbrigðis og félagsmál í van þróuðum
löndum eru efst á listanum; barátta gegn mænu veiki og
getnaðarvarnir. Melinda segir að sumt það sem þau hjón
gefa fari í súginn en slíkt er eðli góðverka; það er að taka
áhættu þegar aðrir þora ekki.