Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Blaðsíða 34
I ÁGRIP ERINDA / XI. VÍSINDARÁÐSTEFNA Hf
(p=0,0002) og aflagaðar (dystrophic) neglur höfðu sterkari gigtar-
tengsl en aðrar gerðir naglbreytinga (p=0,02). Af sjúklingunum sem
voru arfhreinir fyrir Cw6 fengu 10,5% sjúkdóminn fyrr (p=0,04) og
höfðu 2,5-falt hærri hlutfallsáhættu en arfblendnir sjúklingar, en
klínísk einkenni þeirra voru svipuð.
Alyktanir: Pessar niðurstöður samrýmast því að sóri sé erfðafræði-
lega fjölbreyttur sjúkdómur og að erfðaþátturinn HLA-Cw*0602
hafi mikil áhrif á svipgerð sjúkdómsins.
E 36 Samanburður á hefðbundinni sjúkraskrá og upplýs-
ingum úr RAI- öldrunarmati á bráðadeildum. Niðurstöður
úr íslenska hluta samnorrænnar RAI-AC rannsóknar
Olafur Samúelssun1, Sigrún Bjartmarz1, Pálmi V. Jónsson12, Anna Birna
JensdóttirUr
íRannsóknastofa HÍ og Landspítala háskólasjúkrahúss í öldrunarfræðum,
2læknadeild HÍ
olafs@landspitali.is
Inngangur: Fjöldi aldraðra sem hlutfall af heild þeirra sem leggjast
inn fer vaxandi. Þeir eru mjög oft fjölveikir og bráðasjúkdómurinn
iðulega aðeins eitt af viðfangsefnum sem sinna þarf. Þættir sem
varða færni til athafna daglegs lífs og vitræna getu hafa sýnt sig að
vera spáþættir fyrir því hvernig öldruðum reiðir af í og eftir innlögn.
Resident Assessment Instrument (RAI) er tæki til heildræns öldr-
unarmats og er RAI-AC afbrigði þessa mats hannað til notkunar í
bráðaþjónustu sem hefur staðfest gildi og áreiðanleika. í þessari
rannsókn er mælitækið nýtt á bráðalyflækningadeildum á fimm
Norðurlöndum samlímis. Grunur leikur á að hefðbundin sjúkraskrá
skrái ekki nákvæmlega mikilvæg atriði er snerta lífsgæði og færni
aldraðra. Hér verða kynntar niðurstöður varðandi samanburð á
upplýsingum úr hefðbundinni sjúkraskrá (SS) og RAI matinu við
komu á Islandi.
Efniviður og aðferðir: Af slembiúrtaki 160 sjúklinga, 75 ára og
eldri, sem lögðust brátt á lyflækningadeildir Landspítala Fossvogi á
tímabilinu maí til desember 2001, voru valdar 80 sjúkraskrár sem
náðu yfir fyrstu þrjá sólarhringana og þær bornar saman við RAI
AC skráningu. Matið var notað til að skrá félagslegar aðstæður,
andlega og líkamlega líðan og getu. Sjúklingar voru metnir með
RAI AC innan sólarhrings frá innlögn.
Niðurstöður: Við samanburðurinn sást að RAI-AC skráði minnis-
skerðingu í 52% tilvika og skerta ákvarðanatöku í 81% tilvika um-
fram SS. Einkenni depurðar voru skráð í 63% tilvika með RAI-AC
en aldrei í SS. Varðandi færni til athafna daglegs lífs kom eftirfar-
andi fram: skert hæfni til að klæðast (SS: 20%, RAI-AC: 79%), að
borða (SS: 10%, RAI-AC: 22%), að hringja (SS: 0%, RAI-AC:
35%).
Alyktanir: Hið staðlaða matskerfi RAI-AC greinir heilsufarslega
tengdar þarfir og vandamál í bráðaþjónustu betur en hefðbundin
sjúkraskrá á lyflækningadeild. Frekari rannsókna er þörf til þess að
staðfesta mikilvægi slíkrar skráningar.
E 37 ADHOC. Samevrópsk rannsókn á heimaþjónustu í níu
löndum
Pálmi V. Jónsson12 3, Anna Bima Jensdóttir3, Rakel Þórisdóttir4, Guðrún
ReykdaÞ, Fanney Friðbjörnsdóttir4, Lúðvík Ólafsson4, Þórunn Ólafsdótt-
ir4, Þórdís Lóa Þórhallsdóttip og ADHOC rannsóknarhópurinn
^Landspítali háskólasjúkrahús, ^læknadeild HÍ, 3Rannsóknastofa HI og Landspít-
ala háskólasjúkrahúss í öldrunarfræðum, 4Heilsugæslan í Reykjavík, SFélagsþjón-
ustan í Reykjavík
palmivj@landspitali.is
Inngangur: Öldruðum fjölgar jafn og þétt og með vaxandi aldri
aukast líkurnar á veikindum og færnitapi. Til þess að mæta þörfum
sjúkra aldraðra hefur heimaþjónustu vaxið fiskur um hrygg. Erfitt
hefur verið fram til þessa að bera saman heimaþjónustu milli landa
vegna þess hversu ólíkt skipulag er á heilbrigðis- og félagsþjónustu
í mismunandi löndum. Staðlað og áreiðanlegt mælitæki, MDS HC,
hefur verið þróað til þess að lýsa öldruðum einstaklingum í heima-
þjónustu og opnar það möguleikann á alþjóðlegum samanburði.
Efniviður og aöferðir: Metnir voru 400 einstaklingar, 65 ára og
eldri, í níu Evrópulöndum, þar á meðal á íslandi og Ítalíu. Valdir
voru 300 einstaklingar frá þremur heilsugæslustöðvum á Reykjavík-
ursvæðinu og 100 einstaklingar á vegum Félagsþjónustunnar í
Reykjavík á sama svæði. Erlendis voru sambærilegir hópar metnir.
Hinir öldruðu voru metnir með MDS AC mælitækinu og saman-
burður gerður á gögnum landanna með SPSS forritinu.
Niðurstöður: í fyrstu niðurstöðum er lögð áhersla á samanburð
milli íslands og Ítalíu. Á íslandi (IS) bjuggu 68,2% einir en 12,8% á
Ítalíu (IT). Borin er saman færni til athafna daglegs lífs (ADL) (IS:
0,6%; IT: 12,5%) og vitræn geta (IS: 0,6%; IT: 1,8%). Munur var á
því hversu hinir öldruðu voru sjálfstæðir (IS: 45,6%; IT: 3,8%), ein-
mana (IS: 19,2%; IT: 7,5%). álag á aðstandendur var (IS: 4,7%; IT:
20,8%) og formleg þjónusta, mæld í klukkustundum (IS: 2,8%; IT:
3,9%). Mun stærri hluti aldraðra var metinn í þörf fyrir varanlega
vistun á íslandi en Ítalíu (IS: 18%; IT: 3,4%)
Ályktanir: Aldraðir einstaklingar í heimaþjónustu á Ítalíu hafa
bæði meiri vitræna skerðingu og færnitap og speglast það í umtals-
vert meira álagi á aðstandendur. Aldraðir Italir eru líklegri til að
búa með fjölskyldu sinni, höfðu lægra algengi á einmanakennd og
ítalir voru ólíklegri til þess að vilja vista hina öldruðu á stofnun.
E 38 Áhrif sýnatökutíma á styrk boðefnanna IL-6, TNFa
og IL-10 í blóði sjúklinga með iktsýki og í frumufloti
eftir fjörutíu og átta tíma ræktun
Kristín Jóhannsdóttir, Brynja Gunnlaugsdóttir, Bjöm Guðbjörnsson
Rannsóknastofa í gigtarsjúkdómum Landspítala háskólasjúkrahúsi
bjorngu@landspitali.is
Inngangur: Iktsýki einkennist af morgunstirðleika og samhverfum
liðbólgum í smáliðum handa og fóta. Rannsóknir sýna hækkun á
bólgumiðlandi boðefnum og að styrkur IL-6 sé breytilegur yfir dag-
inn. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna þýðingu sýnatöku-
tíma á styrk IL-6, TNFa og IL-10 í sermi sjúklinga með virka iktsýki
og að athuga áhrif sýnatökutíma á framleiðslu einkjarna blóðkorna
af sömu boðefnum in vitro.
Efniviöur «g aðferðir: Níu sjúklingum, þrem körlum og sex kon-
um, með virka iktsýki var boðin þátttaka í rannsókninni. Sjúkdóms-
34 Læknablaðið / FYLGIRIT 47 2002/88