Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Blaðsíða 86
■ ÁGRIP VEGGSPJALDA / XI. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ
um hópi voru 1100 einstaklingar; 817 af þeim voru ekki á örorku
(samanburðarhópur), en 283 voru á örorku (örorkuhópur). Sjúk-
dómsgreiningar þessara tveggja hópa voru bornar saman.
Niðurstöftur: I samanburðarhópnum voru 83% (676) einungis með
flogaveikigreiningu. Hjá hinum í þessum hópi (141) var fyrsta sjúk-
dómsgreiningin flogaveiki hjá 4,5% (37), aðrir taugasjúkdómar hjá
1,5% (15), geðsjúkdómur hjá 3% (23), þroskahefting hjá 6% (48)
og aðrir sjúkdómar hjá 2% (18). í örorkuhópnum voru 21,5% (60)
einungis með flogaveikigreiningu. Hjá hinum í þessum hópi ( 223)
var fyrsta greiningin flogaveiki hjá 22% (62), aðrir taugasjúkdómar
hjá 3% (9), geðsjúkdómur hjá 15% (43), þroskahefting hjá 30%
(85) og aðrir sjúkdómar hjá 8,5% (18).
Alyktanir: Niðurstöðurnar sýna að öryrkjar með flogaveiki eru
mun oftar með aðra sjúkdómsgreiningu en flogaveiki í samanburði
við aðra flogaveika sjúklinga sem fá lyfjakort fyrir flogalyf. Þroska-
hefting og geðsjúkdómar eru algengustu greiningarnar fyrir utan
flogaveiki hjá báðum hópunum.
V 94 Skurðaðgerðir vegna flogaveiki. Árangur brottnáms
gagnaugahluta heilans
Elías Ólafsson
Læknadeild HÍ, taugalækningadeild Landspítala háskólasjúkrahúss
eliasol@landspitali.is
Inngangur: Skurðaðgerðir eru árangursrík meðferð við ákveðnum
tegundum flogaveiki og notkun þessarar meðferðar hefur aukist
verulega á Vesturlöndum á síðasta áratug. Aðgerðirnar eru af ýms-
um gerðum og er brottnám gagnaugahluta heilans (temporal lobec-
tomy) algengast.
Rannsókn með heilasírita (long term video/EEG monitoring) er
gerð til þess að staðsetja upptök floganna og finna þá einstaklinga
sem hægt er að hjálpa með skurðaðgerð. Heilasíritarannsóknir hóf-
ust á Landspítala Hringbraut árið 1992.
Efniviður og aftfcrftir: Á árunum 1992 til 2001 var fjöldi flogaveikra
rannsakaður með heilasírita. Við þessar rannsóknir fundusl fjöl-
margir einstaklingar þar sem hægt var að staðsetja upptök floganna,
sem síðan leiddi til aðgerðar eftir frekari rannsóknir hjá nokkrum
tugum sjúklinga. Við höfum valið úr þessum hópi þá einstaklinga
þar sem gagnaugahluti heilans var fjarlægður.
Nifturstöftur: Brottnám gagnaugahluta heilans var framkvæmt hjá
23 einstaklingum vegna flogaveiki. Um er að ræða 12 kvenmenn og
11 karlmenn. Allir voru með sögu um tíð flog sem í flestum lilvikum
voru af komplex partial gerð. Öllum hefur verið fylgt eftir og árang-
ur aðgerðar hefur verið góður hjá flestum hvað tíðni floga varðar.
Umræða: Brottnám gagnaugahluta heilans er árangursrík meðferð
hjá völdum hópi flogaveikra sem ekki svarar lyfjameðferð með full-
nægjandi hætti. Aukaverkanir aðgerðar eru fátíðar og vægar.
Kynntar verða niðurstöður eftirfylgdar 23 sjúklinga sem gengust
undir þessa aðgerð, með tilliti til tíðni floga eftir aðgerð og al-
mennra áhrifa aðgerðarinnar á lífsgæði viðkomandi.
V 95 Myndgreiningarrannsóknir hjá flogaveikum.
Þýðisrannsókn á íslandi
Ólafur Kjartansson1, Elías ÓlafssonU, Pétur Lúðvígsson3, W. Allen Hauser3,
Dale Hesdorffer3
ILæknadeild HÍ, 2Landspítali háskólasjúkrahús, 3Columbia University, New York
eliasol@landspitali.is
Inngangur: Árlega greinast um 130 Islendingar með flogaveiki. Or-
sök floganna finnst hjá um þriðjungi þessara einstaklinga og rönt-
genrannsóknir eiga stóran hlut í því. Við höfum gert framskyggna
rannsókn þar sem reynt var að ná til allra íbúa Islands sem greind-
ust með flog og flogaveiki á tveggja ára og þriggja mánaða tímabili.
Efniviður og aðferftir: Á tímabilinu 1. desember 1996 til 28. febrú-
ar 1999 fundum við alla þá íbúa Islands sem greindust með óvakin
flog (unprovoked seizures) eða flogaveiki. Einn okkar (ÓK) hefur
skoðað allar myndir sem teknar voru af sjúklingunum.
Nifturstöðun Alls greindist 501 einstaklingur á tímabilinu sem upp-
fyllti inntökuskilyrði í rannsókninni. Af þeim voru 10,8% rannsökuð
með MRI eingöngu, 24,4% bæði með MRI og CT; 50,3% aðeins með
CT og hvorug rannsóknin var gerð hjá 14,5%. Algengast var að sjá
rýrnun (24,1%), drep (22,8%), háþéttnisvæði (16,3%) og æxli (7,1%).
Umræða: Rannsókn á nýgengi í þýðisrannsókn (population based
study) gefur besta mynd af hlutfallslegri tíðni breytinga í heila á
myndrannsóknum meðal flogaveikra. Mjög fáar rannsóknir af
þessu tagi eru til í heiminum. Við munum fjalla um hinar ýmsu
breytingar sem sáust við myndgreininguna og hvernig þær tengjast
tegundum floga.
V 96 Heilablóðfall á Landspítala Fossvogi og Landspítala
Grensási árið 2001. Afdrif sjúklinga eftir tegundum
heilablóðfalls
Einar M. Valdimurssoni, Elías ÓlafssonL2
ITaugalækningadeild Landspítala háskólasjúkrahúss, 21a;knadeild HÍ
eliasol@landspitali.is
Inngangur: Heilablóðfall er algengur sjúkdómur og ætla má að um
600 Islendingar veikist árlega. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að
heilablóðfall er algengasta ástæða líkamlegrar fötlunar, önnur al-
gengasta ástæða heilabilunar og þriðja algengasta dánarorsökin á
Vesturlöndum. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar til að kanna tíðni
og gerð heilablóðfalls og afdrif heilablóðfallssjúklinga á íslandi. Við
framkvæmdum rannsókn til að varpa ljósi á þessa þætti hjá sjúkling-
um sem leituðu til bráðamóttöku Landspítala Fossvogi á einu ári.
Efniviður og aðferðir: Allir sjúklingar sem leituðu til bráðamót-
töku Landspítala Fossvogi vegna heilablóðfalls og skammvinnrar
heilablóðþurrðar á árinu 2001. Jafnóðum voru skráðar staðlaðar
upplýsingar um einkenni og rannsóknarniðurstöður, legutíma og
afdrif hvers sjúklings.
Nifturstöður: Rannsóknin náði til 242 einstaklinga. Heildarfjöldi
heimsókna var 249. Sjö sjúklingar komu oftar en einu sinni. Heila-
blæðing greindist hjá 10%, heiladrep hjá 72% og skammvinn heila-
blóðþurrð hjá 18%. Heiladrep voru greind í undirhópa eftir orsök-
um samkvæmt TOAST flokkun: stóræðasjúkdómur 19%, blóðrek
frá hjarta 27% og smáæðasjúkdómur 21%.
Ályktanir: Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að nýgengi
86 LÆKNABLAÐIÐ / FYLGIRIT 47 2002/88