Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Blaðsíða 52
I ÁGRIP ERINDA / XI. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ
fræðslu og kynheilbrigðisþjónustu eins og gert var í hinum löndun-
um.Til að hafa áhrif á þessa þróun þarf að styrkja báða þessa for-
varnarþætti.
E 89 Tengsl holdafars og lifnaðarhátta níu ára barna
í Reykjavík
Erlingur Jóhannsson1, Sigurbjörn Arni Arngrímsson1, Brynhildur Briem2,
Elín Þorgeirsdóttir3, Þórarinn Sveinsson4, Þórólfur Þórlindsson3
Ifþróttafræðasetur KHÍ að Laugarvatni, 2Kennaraháskóli íslands, 3félagsvísinda-
deild HI. 4sjúkraþjálfunarskor læknadeildar HÍ
thorasve@hi.is
Inngangur: Heilsufarsvandamál sem tengjast lifnaðarháttum fólks,
svo sem offita og hreyfingarleysi, hafa aukist lil mikilla muna á und-
anförnum árum. Breyttir þjóðfélagshættir hafa haft mikil áhrif á
hreyfingarmynstur fólks, kyrrseta er mun meiri og fólk hreyfir sig
minna en áður. Þar eru börn ekki undanskilin. Börn sitja nteira fyrir
fram sjónvarp og eru meira í tölvuleikjum og til viðbótar eru börn
meira keyrð á milli staða.
Efniviður og aðferðir: Markmið rannsóknarinnar var að kanna
holdafar með því að mæla líkamsþyngdarstuðui og líkamsfitu,
íþróttaiðkun og lífsvenjur meðal níu ára barna í Reykjavík. Úrtak
rannsóknarinnar var 308 níu ára gömul börn úr fjórum grunnskól-
um í Reykjavík, Fellaskóla, Laugarnesskóla, Melaskóla og Selja-
skóla. Foreldrar og forráðamenn 237 barna gáfu samþykki fyrir
þátttöku barna sinna í rannsókninni og var hún framkvæmd á þeint
í september og október. Þátttökuhlutfallið var því 76,9%.
Niðurstöður: Marktæk fylgni var á milli líkamsþyngdarstuðuls
(LÞS) og þykkt húðfellinga (p<0,01). Þegar börnin eru flokkuð eflir
LÞS kom í ljós að 18,4% voru með LÞS frá 19,1-22,8 eða of þung og
5,5% voru með LÞS >22,8. Marktækur munur var á þeim sem voru
yfir kjörþyngd og hinna, það er lélegri útkomu úr þrekprófi
(p<0,001), hreyfa sig minna (p<0,05), horfa meira á sjónvarp
(p<0,05) og stunda íþróttir í minna mæli. Hlutfall barna sem stunda
íþróttir með íþróttafélögum var einungis 52%.
Alyktanir: Ljóst er út frá þessum niðurstöðum að ofþyngd og offita
meðal barna og unglinga á Islandi er mjög mikil og er orðið alvar-
legt heilbrigðisvandamál. Einnig er ljóst að lífsvenjur og lifnaðar-
hættir barna hafa umtalsverð áhrif á holdafar þeirra og líkams-
ástand.
Þakkin Rannsóknin var styrkt af Rannís.
E 90 Tengsl reykinga og nýbyrjaðrar iktsýki. Framskyggn
rannsókn
Valdís F. Manfreðsdóttiri, Þóra Víkingsdóttir1, Helgi Valdimarsson1, Sig-
rún L. Sigurðardóttir1, Ámi J. Geirsson2, Ólafur Kjartansson3, Ásbjörn
Jónsson3, Þorbjörn Jónsson1, Arnór Víkingsson1-2
^ÓnæmisfræðideiId, 2gigtarskor og 3röntgendeild Landspítala háskólasjúkrahúss
valdisfm@landspitali.is
Inngangur: Hugsanlegt hlutverk reykinga í tilurð og alvarleika ikt-
sýki hefur verið til umræðu á síðustu árum. Afturskyggnar rann-
sóknir á sjúklingum með langvarandi iktsýki hafa flestar bent lil
þess að reykingar auki liðskemmdir en ýti ekki undir tilurð sjúk-
dómsins. Þetta hefur þó verið umdeilt og hefur framskyggnar rann-
52 L/EKNABLAÐIÐ / FYLGIRIT 47 2002/88
sóknir þessu til stuðnings vantað.
Efniviður og aðferðir: I framskyggnri rannsókn á nýgreindum
sjúklingum með samhverfar fjölliðabólgur voru þátttakendurnir
skoðaðir fjórum sinnum á tveim árum, tekin sjúkrasaga og nákvæm
reykingasaga, gerð líkamsskoðun og liðamat. Röntgenmyndir af
höndum og fótum voru teknar. Við samanburð á reykingavenjum
sjúklinganna og þjóðarinnar var stuðst við upplýsingar úr skrám
Tóbaksvarnarnefndar.
Niðurstöður: Eitt hundrað sjúklingar tóku þátt í rannsókninni.
Meðalaldur þeirra var 53 ár og hlutfall kvenna 56%. Af 100 sjúk-
lingum höfðu 28 manns aldrei reykt, 34 voru núverandi reykinga-
ntenn og 38 höfðu hætt fyrir upphaf liðagigtareinkenna. Núverandi
reykingamenn höfðu marktækt virkari sjúkdóm við fyrstu komu
samanborið við þá sem höfðu aldrei reykt (liðbólgur 16,3 á móti 9,8;
p=0,024; liðeymsli 19,0 á móti 13,6; p=0,017). Sjúkdómurinn hélst
virkari í núverandi reykingamönnum við sex mánaða mat þrátt fyrir
lyfjameðferð (liðbólgur 6,2 á móti 2,5; p=0,038; liðeymsli 10,4 á móti
6,1; p=0,049). Upplýsingar um liðskemmdir samkvæmt röntgen-
greiningu munu liggja fyrir bráðlega. Reykingar voru algengari
meðal sjúklinga heldur en almennt gerist hjá þjóðinni (36% á móti
26%; p=0,023).
Alyktanir: Hér er í fyrsta sinn sýnt fram á með framskyggnri rann-
sókn að tíðni iktsýki er aukin hjá reykingamönnum. Jafnframt
benda niðurstöðurnar til að reykingamenn hafi virkari sjúkdóm við
upphaf einkenna og að liðagigtin haldist virkari að minnsta kosti
fyrstu sex ntánuðina eftir að meðferð hefst.
E 91 Vinnuvernd. Árangur heilsueflingar í leikskólum
Reykjavíkur
Kristinn Tómasson. Berglind Helgadóttir, Hólmfríöur K. Gunnarsdóttir,
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir
Vinnueftirlit ríkisins
kristinn@ver.is
Inngangur: Mikilvægt er að rannsaka árangur heilsueflingar og
vinnuverndaraðgerða. Fyrsti liður í slíkum aðgerðum er könnun á
núverandi ástandi, þá koma tillögur til úrbóta byggðar á þeim
niðurstöðum og síðan að hóflegum tíma liðnum mát á árangri.
Efniviður og aðferðir: I maí árið 2000 var tekið úrtak 16 leikskóla
hjá Leikskólum Reykjavíkur og þeir beðnir um að svara ítarlegum
spurningalista og vinnustaðir skoðaðir. Þar var spurt um persónu-
lega hagi, svo sem hjúskaparstöðu, heimilisaðstæður, menntun og
stöðu, líkamlegt álag og líkamsbeitingu, félagslega og andlega álags-
þætti. í framhaldi voru gerðar ákveðnar úrbætur og í maí 2002 var
sami spurningalisti lagður fyrir starfsfólk.
Niðurstöður: Árið 2000 voru starfsmenn 320 og svöruðu 90% en
árið 2002 voru starfsmenn 302 og svöruðu 88%. Algengi stoðkerfis-
vandamála var mjög hátt svo og kvartanir vegna hávaða. Einnig
voru ýmis sálfélagsleg vandamál tíð en hins vegar var almenn starfs-
ánægja og starfmenn ánægðir með sína líðan. Byggt á þessu var
ákveðið að efla mjög kennslu í líkamsbeitingu og réttum vinnustell-
ingu en einnig var tryggt að aðbúnaður, svo sem borð, stólar og svo
framvegis, væri sem bestur og bætt úr þar sem þess þurfti. Einnig
voru gerðar aðgerðir til að draga úr hávaða. Hlutfall þeirra sem
unnu í mjög eða oft í álútum stellingum fór úr 71% í 45%, og
hlutfall þeirra sem unnu oft á hækjum sér lækkaði úr 71% í 51% og
J