Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Blaðsíða 51
ÁGRIP ERINDA / XI. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ I
Tultugu og einu af hundraði fannst að leyfa ætti notkun sumra lyfja
án eftirlits og var sú skoðun algengari hjá þeim sem notuðu eða
höfðu nolað efedrín (r=0,38; p<0,001).
Alyktanir: Pessar niðurstöður gefa til kynna að notkun ólöglegra
lyfja hafi aukist nokkuð frá 1998 og að tæplega 40% íþróttamann-
anna hafa notað efedrín. Notkunin er einnig mun algengari á meðal
körfuknattleiksmanna en hinna tveggja boltagreinanna.
E 86 Áhættuþættir sortuæxla í húð meðal flugáhafna
og úrtaks þjóðarinnar
Villijálmnr Rafnsson1, Jón Hrafnkelsson2, Hrafn Tuliniusl.3, Bárður Sigur-
geirsson4, Jón Hjaltalín Ólafsson4
'Rannsóknarstofa í heilbrigðisfræði HÍ, 2krabbameinsdeild Landspítala háskóla-
sjúkrahúss, -^Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands, 4húð- og kynsjúkdóma-
deild Landspítala háskólasjúkrahúss
vilraf@hi.is
Tilgangur: Að meta hvort munur á algengi áhættuþálla sortuæxla
hjá úrtaki þjóðarinnar og flugáhafna gæti skýrt aukið nýgengi sortu-
æxla, sem í fyrri rannsóknum hefur fundist meðal flugáhafna.
Efniviður og aðferðir: Spurningalisti var notaður til að afla upp-
lýsinga um háralit, augnlit, freknur, fæðingarbletti, húðgerð, sögu
um sólbruna, notkun sólarvarnar, notkun sólarlampa/-bekkja og
fjölda sólarlandaferða. Reiknað var spágildi fyrir sortuæxli út frá
algengi áhættuþáttanna í hópunum.
Niðurstöður: í rannsókninni tóku þátt 239 flugmenn (karlar) og
856 flugfreyjur sem voru borin saman við 454 karla og 1464 konur,
sem valin voru af hendingu úr þjóðskrá. Það var ekki mikill munur
á eðlislægum eða hegðunarbundnum áhætluþátlum fyrir sortuæxli
milli hópanna. Áhafnirnar höfðu oftar notað sólvörn og oftar farið
í sólarlandaferðir en karlar og konur í úrtakinu. Spágildi vegna
notkunar á sólvörn var 0,88 fyrir flugmenn en 0,84 fyrir flugfreyjur;
og spágildi vegna sólarlandaferða var 1,36 og 1,34 fyrir hvorn hóp.
Umræða: Pað var ekki áberandi munur á algengi áhættuþáttanna
milli hópanna. Það er því ólíklegt að sú aukna áhætta sortuæxla sem
fundist hefur hjá flugmönnum (SIR 10,0) og flugfreyjum (SIR 3,0)
skýrist eingöngu af því að þau verði fyrir mikilli mengun sólarljóss í
frítímanum. Það er því nauðsynlegt að rannsaka frekar þýðingu
geimgeislamengunar sem flugáhafnir verða fyrir.
E 87 Eitranir á íslandi. Bráðabirgðaniðurstöður fram-
skyggnrar rannsóknar sem fór fram á sjúkrahúsum og
heilsugæslustöðvum 2001-2002
Jakob Kristinssoni, Curtis P. Snook2, Guðborg A. Guðjónsdóttir2, Hulda M.
Einarsdóttir3, Margrét Blöndal2, Runólfur Pálsson3, Sigurður Guðmunds-
son4
'Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði HÍ, 2Eitrunarmiðstöð Landspítala
Fossvogi, 3lyflækningadeild Landspítala Hringbraut, 4Landlæknisembættið
jakobk@hi.is
Inngangur: Markmið rannsóknarinnar var að afla sem áreiðanleg-
astra upplýsinga um bráðar eitranir og meintar eitranir, sem koma
til meðferðar eða umfjöllunar lækna og annarra heilbrigðisstétta á
sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum landsins. Hér er greint frá
frumniðurstöðum þessarar rannsóknar.
Efniviður og aðferðir: Upplýsingum var aflað á framskyggnan hátt
á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum landsins. Rannsóknin hófst
1. apríl 2001 og henni lauk 31. mars 2002.
Niðurstööur: Svör bárust frá 30 sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum
og heilbrigðisstofnunum um 1125 eitranir eða meintar eitranir. Átta
hundruð sjötíu og fimm þeirra (77,8%) komu af höfuðborgarsvæð-
inu. Meðalaldur hópsins var 31 ár, aldursbil 0-92 ár. Börn yngri en
18 ára voru 224 (19,9%). Konur voru 624 og karlar 501. Algengustu
ástæður eitrunar voru sjálfsvígstilraunir (36%) og misnotkun lyfja
eða ávana- og fíkniefna (23%). Slysaeitranir voru 21% allra eitrana
og eitranir tengdar atvinnu 10%. í 804 tilvikum (71,5%) voru áfengi
og/eða lyf aðal eitrunarvaldarnir. Algengastar voru eitranir af völd-
um áfengis, benzódíazepínsambanda, verkjadeyfandi og hitalækk-
andi lyfja og geðdeyfðarlyfja. Olögleg ávana- og fíkniefni komu við
sögu í 8,7% tilvika. Af öðrum algengum eitrunum má telja innönd-
un reyks eða eitraðra lofttegunda og eitranir af völdum ýmiss konar
hreinsiefna og lífrænna leysiefna.
Ályktanir: Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að
svipaður fjöldi einstaklinga leiti sér aðstoðar á sjúkrahúsum og
heilsugæslustöðvum vegna eitrana og vegna áverka af völdum um-
ferðarslysa. Þrátt fyrir að flestar eitranirnar tengist sjálfsvígstilraun-
um og lyfjamisnotkun (59%) varð drjúgur hluti þeirra vegna óhappa
í leik og starfi (32%).
E 88 Tíðni þungana, fóstureyðinga og fæðinga meðal
unglingsstúlkna i aldarfjórðung
Sóley S. Bender
Hjúkrunarfræðideild HÍ, læknadeild HÍ
ssb@hi.is
Inngangur: Þungun á unglingsþroskaskeiði getur haft margvíslegar
afleiðingar fyrir móður og barn. Á þessum árum er einstaklingurinn
að takast á við mörg þroskaverkefni og litið er á það sem tvöfalda
kreppu að eignast barn á þeim tíma, einkum fyrir þær sem yngri eru.
Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða tíðni þungana, fæðinga
og fóstureyðinga á íslandi meðal unglingsstúlkna, borið saman við
Danmörku, Finnland, Noreg og Svíþjóð, á tímabilinu 1976-1999 og
greina hvað er líkt og ólíkt með þessum löndum.
Efniviður og aðferðir: Stuðst var við skráningu þungana, fóstur-
eyðinga og fæðinga frá Hagstofu íslands og öðrum hagstofum á
Norðurlöndum fyrir aldurshópinn 15-19 ára og skráning borin sam-
an. Valið var tímabilið eftir að lög um fóstureyðingar tóku gildi
(1975) hér á landi.
Niðurstöður: Fæðinga- og þungunartíðni í þessum fimm löndum
lækkaði um 57-67% og 31-50% á þessu tímabili en á Islandi hélst
þessi tíðni mun hærri en á öðrum Norðurlöndum. Hér á landi hefur
tíðni fóstureyðinga meðal unglingstúlkna aukist frá því að vera
5,8/1000 árið 1976 í 21,5/1000 árið 1999. Á hinum Norðurlöndunum
varð hins vegar almenn lækkun um 20-41 % á tíðni fóstureyðinga á
þessu tímabili. Á árunum 1996-1999 er tíðni fóstureyðinga meðal
unglingsstúlkna hér á landi orðin hærri en á hinum Norðurlöndun-
um.
Ályktanir: Hærri tíðni þungana hér á landi má líklega tengja við
viðhorf til barneigna í íslensku samfélagi. Það er hátt metið í sam-
félaginu að eiga mörg börn. Það sem líklega greinir ísland frá hin-
um Norðurlöndunum er að hér á landi hafi í kjölfar gildistöku fóst-
ureyðingarlaganna ekki verið lögð rík áhersla á forvarnir í formi kyn-
LÆKNABLAÐIÐ / FYLGIRIT 47 2 0 0 2/88 51