Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Page 44

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Page 44
I ÁGRIP ERINDA / XI. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ þekktum bakteríudrepandi efnum eins og cetýlpýridínklóríði og benzalkóníumklóríði en brotna niður mun auðveldar í umhverfinu. Efniviður og aðferðir: Sería af um 30 mjúkum bakteríudrepandi efnum var smíðuð og nokkur þekkt efni til viðbótar einnig prófuð. I stöðugleikarannsóknum voru nokkur efni brolin niður við mis- munandi pH, buffera, hitastig, skautun, ísótópa og þær niðurstöður notaðar til að áætla hvernig niðurbrotið á sér stað. Kannað var hugsanlegt samband milli virkni og eðlislyfjafræðilegra eiginleika. Virkni þessara efna gegn fjórum bakteríutegundum og einni veiru- tegund var rannsökuð. Niðurstöður: Efnin voru greind með NMR, HPLC og frumefna- greiningu til að ákvarða efnabyggingu og hreinleika. Mjúku efnin mældust með virkni (MIC) allt að 1 p-g/ml gegn Staphylococcus aur- eus og sýndu góða virkni gegn Enterococcus faecalis og E. coli en minni virkni gegn Pseudomonas aeruginosa. Virkni gegn Herpes Simplex veiru var mjög góð og efnin höfðu einnig mun minni eitur- áhrif gegn hýsilfrumunum í veiruprófinu en „hörðu“ efnin. Alyktanir: Mjúku bakteríudrepandi efnin náðu álíka góðri virkni og hefðbundin „hörð“ bakteríudrepandi efni, en þessi efni geta brotnað mun auðveldar niður í náttúrunni í óvirk efnasambönd og eru því umhverfisvæn. E 66 Áhrif sýrustigs á eiginleika mónókaprínhlaups og virkni gegn örverum Þórunn Osk Þnrgeirsdóttiri, Hulda Ormsdóttir', Hilmar HilmarssonZ, Halldór Þormar2, Þórdís Kristmundsdóttiri ILyfjafræðideild og 2Líffræöistofnjn HÍ thoth@hi.is Inngangur: Þróuð hafa verið hlaup með mónókapríni sem virku efni og hefur það reynst stöðugt og virkt. Mónókaprín (1-mónóglýs- eríð af kaprínsýru) er náttúrulegt fituefni sem hefur sýnt mikla virkni gegn ýmsum bakteríum og veirum í tilraunaglasi. Pað fer eftir væntanlegri notkun mónókaprínhlaupsins hvaða sýrustig væri æski- legt að stilla það á en hlaup sem þetta mætti nota gegn sýkingum jafnt í munni og í leggöngum. Lyfjaform í leggöng er æskilegt að stilla á pH 5,0 og lyfjaform til notkunar í munni á pH 7,0. Markmið rannsóknarinnar var að kanna áhrif sýrustigs á eiginleika mónó- kaprínhlaups og virkni gegn örverum. Efniviður og aðferðir: Framleidd voru hlaup sem voru stillt á pH 5,0, 6,0 eða 7,0. Öll hlaupin innihéldu sama magn af karbomer en mónókaprín var leyst upp í blöndu af 5% própýlenglýkóli og 1% pólýsorbati 20. Virkni gegn HSV-1 og Escherichia coli var könnuð. Áhrif mismunandi sýrustigs á seigjustig hlaupanna, viðloðun við nefslímhúð svína svo og losun mónókapríns úr lyfjaforminu voru einnig skoðuð. Niðurstöður: Sýrustigið hafði engin áhrif á virkni hlaupsins gegn HSV-1 en virkni gegn E. coli minnkar með hækkuðu sýrustigi. Seigjustig hlaupanna eykst með'hækkuðu sýrustigi sem hefur áhrif á losun mónókapríns úr hlaupinu. Viðloðun hlaupsins við nefslím- húð svína eykst með auknu sýrustigi en viðloðun hlaups sem stillt var á pH 6,0 var ekki betri en þess sem stillt var á 5,0 eins og við var búist. Ályktanir: Niðurstöður sýna að sýrustig hefur áhrif á virkni mónó- kaprínhlaups gegn E. coli. Þar sem þekkt er að seigjustig karbomer hlaupa eykst með hækkuðu sýrustigi mætti minnka magn þess í 44 Læknablaðið / FYLGIRIT 47 2002/88 hlaupum ætluðum í munn og því er hægt að laga lyfjaformið að hvorum stað fyrir sig með litlum breytingum. E 67 Þróun á smáskammta doxýcýklín (SSD) hlaupi Skúli SkúlasonL3, W. Peter Holbrook2, Þórdís Kristmundsdóttir2 ILíf-Hlaup ehf., 2tannlæknadeild og 3lyfjafræðideild HÍ skulis@hi.is Inngangur: Munnangur er mjög algengt og er talið herja á allt að 20% jarðarbúa. Munnangur læknast venjulega á 7-14 dögum án meðhöndlunar. Á tímabilinu getur munnangrið hins vegar verið sársaukafullt, einkum þegar sjúklingurinn neytir matar eða drykkj- ar. Þörf fyrir lyf við munnangri er umtalsverð þar sem munnangur gerir mönnum lífið leitt og meðferðarúrræði sem nú eru til hafa ekki sýnt fram á nægilega góða verkun eða hafa óæskilegar auka- verkanir. Tetracýklín og afleiður þess hafa sýnt góða virkni sem hamlar á matrix metallópróteinasa (MMP) ensím sem eru hluti af bólgusvörun og taka einnig þátt í niðurbroti á vef í sárunum. Líf-Hlaup ehf. hefur þróað lyfjasamsetningu til meðferðar á munnangri og er meðferðinni ætlað að stytta viðverutíma munn- angursins og draga úr sársauka. Efniviður og aöferðir: Hlaupforskrift hefur verið þróuð og prófuð með tilliti til viðloðunar, losunar virks efnis, stöðugleika og virkni in vitro. Klínísk rannsókn á samsetningunni stendur nú yfir. Meðferð- in byggist á hamningu doxýcýklíns á MMP ensímum. Magn doxý- cýklíns í lyfjaforminu er það lítið að það hefur ekki áhrif á örveru- flóru munnsins. Niðurstöðun MMP-2 og MMP-9 eru hamin fullkomlega við 300pM og 50pM styrk doxýcýklíns. Samsetningin hefur sýnl góða bindingu við slímhúð in vitro. Stöðugleikapróf hafa sýnt að samsetningin er stöðug eftir eins árs geymslu. Losun virka efnisins úr hlaupinu er hröð og hafa um 20% losnað á 15 mínútum. Ályktanin In vitro rannsóknir hafa sýnt að doxýcýklín hemur MMP ensím við mjög lágan styrk og álykta má að lyfið hafi góða virkni í munnholi þar sem rannsóknir hafa -sýnt að það safnast í mun hærri styrk í munnvef en í sermi og bætir þannig staðbundna virkni. Mjög lítið magn þarf af virku efni til að hemja ensímin og því lítil hætta á að lyfið hafi áhrif annars staðar í líkamanum. E 68 Viðvera stakra F. nucleatum klóna í munnvatni barna fyrstu tvö ár ævinnar Gunnstcinn HuruldssonL2, Eija Könönen2, W. Peter Holbrooki ■Tannlæknadeild HÍ, 2National Public Health Institute, Helsinki Gunnsteinn.Haraldsson@ktl.fi Inngangur: Loftfirrðar bakteríur finnast í munni barna áður en tennur koma upp en eftir að tennur birtast eykst tíðni þessara teg- unda mikið. Þegar tegundir hafa tekið sér bólfestu í munni barna er viðvera þeirra stöðug. Viðvera stakra klóna hefur hins vegar lítið verið rannsökuð. í nýlegri rannsókn okkar á uppruna nefkoks Fusobacterium nucleatum fundust sömu klónar í munnvatni barna, teknir með sex mánaða millibili. Markmið þessarar rannsóknar var að meta viðveru og útskiptingu stakra F. nucleatum klóna í börnum fyrstu tvö ár ævinnar. Efniviður og aðferðir: Úr munnvatnssýnum 12 barna, teknum við J
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.