Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2007, Blaðsíða 13
ÁGRIP VEGGSPJALDA / VÍSINDI Á VORDÖGUM
sjúklingi með helftarbláæðarlokun jókst súrefnismettun stig
af stigi eftir því sem leysimeðferð var bætt við. Niðurstöður
mælinga á sjúklingum með CRVO sýndu einnig aukna
súrefnismettun eftir leysimeðferð.
Ályktanir: Súrefnismælirinn greinir aukna súrefnismettun
blóðrauða eftir leysimeðferð við BRVO. Þessi niðurstaða er í
samræmi við dýratilraunir. Súrefnismælingar gætu nýst til að
ákvarða æskilegt umfang leysimeðferðar og til að meta árangur
af slíkri meðferð.
V 7 Skammtímaárangur í meðferð of feitra barna
Þrúður Gunnarsdóttir1, Z. Gabriela Sigurðardóttir Árni V. Þórsson1-2,
Kolbeinn Guðmundsson4, Ragnar Bjarnason2J
'Háskóli Islands, 2Barnaspítala Hringsins Landspítala, 3GP-GRC, Dep
of Pediatrics, Sahlgrenska Academy at Göteborg University, Gautaborg,
4íslensk erfðagreining
thrudur@hi.is
Inngangur: Algengi offitu meðal barna hefur aukist mikið
á íslandi og annars staðar í heiminum á síðustu áratugum.
Áhættuþættir eru margir og samspil þeirra flókið. Flestum ber
þó saman um að aukið algengi megi rekja til þeirra breytinga
sem hafa orðið á lífsháttum fólks á síðustu áratugum. Þróun
áhrifaríkrar meðferðar er mikilvægur þáttur í að bæta heilsu og
líðan feitra barna sem og mikilvægur þáttur í forvörnum gegn
offitu meðal fullorðinna.
Markmið: Meginmarkmið var að meta skammtímaárangur
fjölskyldumeðferðar Epsteins á úrtaki íslenskra barna í
klínískum aðstæðum.
Aðferð: Þátttakendur voru 12 of feit börn (LÞS > 2,4 sf)
og foreldrar þeirra. Börnin voru á aldrinum 8-12 ára, 9
stúlkur og 3 drengir. Skipt var handahófskennt í tvo hópa,
samanburðarhóp sem fékk hefðbundna meðferð (viðtal við
lækni og næringarfræðing á Landspítala) og tilraunahóp sem
fékk fjölskyldumeðferð. Meðferð stóð yfir í 16 vikur og fólst í
fræðslu og atferlismótun. Miðgildi líkamsþyngdarstuðuls barna
í tilraunahópi var 3,6 staðalfrávik yfir meðaltali við upphaf
meðferðar (spönn 2,4-3,8) en 3,3 staðalfrávik yfir meðaltali
fyrir börn í samanburðarhópi (spönn 2,8-3,9). Markhegðun sem
atferlismótun barna í tilraunahópi beindist að var dagleg neysla
grænmetis og ávaxta og dagleg líkamleg hreyfing.
Niðurstöður: Eftir 16 vikna meðferð var miðgildi þyngdartaps
fyrir börn í tilraunahópi 3,0 kg (spönn 1,0-4,3 kg) og miðgildi
þyngdartaps foreldra 6,8 kg (spönn 5,8-9,1 kg). Miðgildi
líkamsþyngdarstuðuls barna í tilraunahópi var þá kominn niður
í 3,4 staðalfrávik yfir meðaltali (spönn 1,9-3,6) en var enn 3,3
(spönn 2,8-4,0) fyrir börn í samanburðarhópi. Dagleg neysla
ávaxta og grænmetis og líkamleg hreyfing barna í tilraunahópi
jókst markvert. Dagleg neysla ávaxta og grænmetis barna í
tilraunahópi: miðgildi fyrir meðferð var 1,3 skammtar (spönn 1-
2) en við lok meðferðar 3,75 skammtar (spönn 1,3-4,3). Dagleg
hreyfing barna í tilraunahópi fyrir meðferð: miðgildi 20 mín.
(spönn 0-80) við lok meðferðar 72 mín. (spönn 40-126).
Ályktun: Niðurstöður gefa til kynna að fjölskyldumeðferð beri
árangur með íslenskum börnum í klínískum aðstæðum.
Verkefnið var styrkt af Vísindasjóði Landspítala og Actavis.
V 8 Faraldsfræði gauklasjúkdóma á íslandi 1983-2002
Konstantín Shchcrbak'. Ólafur Skúli Indriöason1-2, Viðar Eðvarðsson’,
Jóhannes Björnsson4 5, Runólfur Pálsson12-5 * * * * * *
‘Lyflækningasviði I, 2nýrnalækningum, ’Barnaspítala Hringsins, 4rann-
sóknarstofu í meinafræði, Landspítala, 5læknadeild HÍ
olasi@landspitali. is
Inngangur: Þótt gauklasjúkdómar séu ein af helstu orsökum
lokastigsnýrnabilunar hér á landi, liggja ekki fyrir fullnægjandi
upplýsingar um faraldsfræði þeirra. Þá finnast takmarkaðar
upplýsingar meðal annarra þjóða.
Markmið: Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna
faraldsfræði gauklasjúkdóma á Islandi.
Aðferðir: Þetta var aftursæ rannsókn á öllum nýrnasýnum sem
rannsökuð voru á Landspítala frá 1983 til 2002. Upplýsingar
um vefjagreiningu voru fengnar úr skrám Rannsóknastofu
í meinafræði á Landspítala og klínískar upplýsingar úr
sjúkraskrám. Endaleg sjúkdómsgreining var byggð á niðurstöðu
meinafræðilegrar rannsóknar með hliðsjón af klínískum þáttum.
Ef fleiri en ein greining fannst í ákveðnu sýni voru báðar taldar.
Niðurstöður: Á tímabilinu komu 590 nýrnasýni úr 521
einstaklingi til rannsóknar á Rannsóknarstofu í meinafræði.
Við útilokuðum 257 sýni vegna þess þau voru úr ígræddu nýra,
innihéldu ekki gauklasjúkdóm eða voru endurtekin sýni úr
sama einstaklingi. Önnur 42 sýni sem tekin voru vegna gruns
um gauklasjúkdóm voru útilokuð vegna óvissrar greiningar eða
ófullnægjandi sýna. Eftir voru 291 sýni sem gáfu 294 greiningar.
Miðgildi (spönn) aldurs sjúklinga var 47 (2-86) ár og 54% voru
karlar. Nýgengi gauklasjúkdóma var 5,60/100.000/ár fyrir allt
tímabilið. Það var 4,72 árin 1983-1987; 4,31 árin 1988-1992;
6,43 árin 1993-1997 og 6,84/100.000/ár tímabilið 1998-2002.
Algengustu greiningar voru IgA-nýrnamein (24,1%), focal
segmental glomerulosclerosis (10,2%), og sykursýkinýrnamein
(8,2%). Membranous nephropathy (4,8%), minimal change
disease (4,8%) og membranoproliferative glomerulonephritis
(3,7%) voru frekar fátíðar greiningar.
Ályktanir: Svo virðist sem nýgengi gauklasjúkdóma fari vaxandi
þó ekki sé hægt að útiloka að aukin tíðni nýrnasýnistöku eigi
þátt í þeirri nýgengisaukningu. IgA-nýrnamein er algengasta
tegund gauklasjúkdóms hér á landi eins og víðast annars
staðar. Athyglisvert er að focal segmental glomerulosclerosis er
algengari en membranous nephropathy.
V 9 Efnaskiptaáhættuþættir fyrir myndun nýrnasteina
meðal sjúklinga í nýrnasteinagöngudeild Landspítala
Ólafur Skúli Indriðason', Viðar Eðvarðsson2, Guðjón Haraldsson3, Eiríkur
Jónsson’ og Runólfur Pálsson1-4
'Nýrnalækningum, lyflækningasviði I, 2Barnaspítala Hringsins, 3þvagfæra-
skurðlækningum, skurðlækningasviði, Landspítala, 4læknadeild HÍ
olasi@landspitali. is
Inngangur: Þrátt fyrir miklar tækniframfarir við brot og
brottnám nýrnasteina eru margir sjúklingar þjakaðir af
endurteknum steinaköstum. Fyrir þá einstaklinga hefur verið
lögð aukin áhersla á greiningu undirliggjandi áhættuþátta og
fyrirbyggjandi meðferð. í þeim tilgangi var nýlega stofnuð
sérstök nýrnasteinagöngudeild á Landspítala.
Læknablaðið/fylgirit 54 2007/93 13