Frjáls verslun - 01.07.2010, Side 8
8 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0
Þórhallur Örn Guðlaugsson varði doktorsritgerð sína um þjónustustjórnun
á dögunum. Þetta er fyrsta doktorsvörnin við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Það urðu söguleg tímamót í viðskipta fræðideild Háskóla Íslands föstu daginn 3. september sl. Þá varði Þórhallur Örn Guðlaugsson
doktors ritgerð sína; Þjónustustjórnun:
markaðs og þjónustuáhersla í opinbera
geir an um. Hann er jafnframt fyrsti nem
and inn til að útskrifast með doktorsgráðu
frá viðskipta fræðideild Háskóla Íslands.
Andmælendur ritgerðar voru dr. Anders
Söderholm, rektor Mid Sweden University,
og dr. Svafa Grönfeldt, framkvæmdastjóri
hjá Alvogen Inc. Aðalleiðbeinandi í
verkefninu var dr. Runólfur Smári Stein
þórs son, prófessor í viðskiptafræðideild
Háskóla Íslands.
Rannsóknarspurningin sem fengist er við
í ritgerðinni er: Hvernig getur þjónustu
starf semi á vegum hins opinbera náð betri
árangri með því að tileinka sér kenningar
og aðferðir markaðs og þjónustufræða?
Ritgerðin byggist á fjórum ritrýndum
grein um sem birst hafa eða hafa verið sam
þykktar til birtingar í ritrýndum tíma ritum.
Að auki er upphafsgrein þar sem gefið er
fræðilegt yfirlit yfir viðfangsefnið og loka
grein þar sem fjallað er um niðurstöður.
Í fyrstu greininni, Markaðsáherslur og
markaðshneigð, er sjónum sérstaklega beint
að því hvort opinbert fyrirtæki geti, út frá
forsendum markaðshneigðar, tileinkað sér
markaðshneigð og markaðsleg vinnubrögð.
Niðurstöður benda til þess að þannig fyrir
tæki geti tileinkað sér markaðshneigð í
auknum mæli. Ýmsar hindranir séu þó í
veginum sem m.a. má rekja til fyrir tækja
menningar og skipulags.
Viðfangsefni greinar tvö, Vægi
þjónustuþátta, er tvíþætt. Annars vegar er
fjallað um grundvallaratriði þjónustugæða
og þjónustumats og hins vegar er skoðað
FYRSTA DOKTORSVÖRNIN
VIÐ VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD HÍ
Þórhallur Örn Guðlaugsson.
Doktorsritgerð Þórhalls
Markaðsáherslur og
markaðshneigð
Vægi þjónustuþátta
Samkeppni, þjónusta og tryggð
Service quality and universities
(Fjórir meginkaflar)