Frjáls verslun - 01.07.2010, Qupperneq 12
12 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0
ÞAU HAFA ORÐIÐ
MIKILVÆGI
VALDDREIFINGAR
Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri
Þekkingarmiðlunar:
HOLLRÁÐ Í STJÓRNUN
Enginn getur gert allt. Góður stjórnandi þarf að vita hvaða störfum hann þarf að sinna sjálfur og hvaða störfum aðrir geta sinnt,“ segir Ingrid Kuhlman og bendir á mikilvægi valddreifingar sem hún segir víða vanmetið; mörgum finnst fljótlegra að gera allt sjálfir.
„Segja má að verkefni stjórnenda skiptist í þrennt. Í fyrsta lagi er um að ræða
verkefni sem aldrei er hægt að fela öðrum svo sem hvað varðar launamál, aga
mál, trúnaðarmál, stefnumótun, starfsmannasamtöl og uppsagnarviðtöl. Í öðru
lagi er um að ræða verkefni sem hægt er að setja yfir á aðra strax og í þriðja
lagi verkefni sem krefst leiðbeiningar eða þjálfunar og aðrir geta tekið yfir með
tímanum.
Það er gott fyrir alla stjórnendur að horfa gagnrýnum augum á verkefnin og
skipta þeim í þessa þrjá flokka.
Að fela öðrum umsjón með verkefnum er sérlega mikilvægt í allri stjórnun.
Stjórnendur þurfa að treysta starfsmönnum sínum og forðast að upplifa þá
sem ógnun. Stjórnandi sem felur starfsmönnum verkefni fær sjálfur tíma til að
vinna að öðrum nýjum og spennandi verkefnum sem auðga starf hans og leiða
til aukinnar starfsánægju.“
AÐ NÝTA PENINGANA
SEM BEST
Ásmundur Helgason,
markaðsfræðingur hjá Dynamo:
Það sem fólk og fyrirtæki eru fyrst og fremst að hugsa um í dag er að nýta peningana sem best; að fá mikið fyrir lítið,“ segir Ás mundur Helgason. „Þannig sjáum við að
birt ingarfé fer í auknum mæli á netmiðla, í útvarp
og jafnvel í skjáauglýsingar. Í svona árferði, þegar
fjöl mörg fyrirtæki berjast í bökkum og hafa jafnvel
sleg ið alla markaðssetningu af, er komið tækifæri
fyrir keppinautana að slá í klárinn og ná forskoti á
markaði.“
Ásmundur segir að símafyrirtækin hafi verið mest
áberandi undanfarin misseri. „Þá eru bankarnir
farnir að láta á sér kræla og bílaumboðin eru að
vakna úr dái. Allt eru þetta góðar fréttir.
Varðandi miðla þá er merkileg þróunin á sjón
varps áhorfi og þá verður spennandi að sjá hvernig
hið nýja helgarblað eða helgarblöð koma inn á
mark aðinn og ekki síður hvort allir þeir miðlar sem
eru til í dag muni lifa. Kreppunni er nefnilega ekki
lokið þó svo að það muni lifna yfir hlutunum fram
að jólum.“
01
AUGLÝSINGAR02
Frjáls verslun hefur fengið tólf þekkta einstaklinga til liðs við sig til að
segja í mjög stuttu máli álit sitt á ýmsu tengdu við skiptum og efnahagslífi
í hverju tölublaði. Við kynnum þau til leiks Gjörið svo vel.