Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2010, Page 21

Frjáls verslun - 01.07.2010, Page 21
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0 21 af heildareignum þessara lífeyrissjóða. Ef allt færi á versta veg með Framtakssjóðinn – sem er auðvitað mjög hæpið og þyrfti í raun aðra kollsteypu í þjóðfélaginu – þá væru það þessir 42 milljaðar sem töpuðust. Þessi risi er kominn til að láta að sér kveða í fjárfestingum. Hann er kjölfestufjárfestir í Icelandair Group. Þau viðskipti vöktu enga sér staka athygli. Jú, jú, menn tóku eftir þeim. En jörð skalf þegar risinn rumskaði og fór í ríkið, ríkisbankann Lands­ bankann, og keypti kippu fyrirtækja, þ.e. Icelandic, Vodafone, Skýrr, EJS, Hug­Ax, Húsasmiðjuna og Plastprent. Kaupverðið á Vestia­kippunni er 19,5 milljarðar. Vaxtaberandi skuldir fyrirtækjanna sjö eru um 40 mill­ jarðar króna. Ekki hefur endanlega verið gengið frá þeim kaupum þar sem þau eru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun sem nú stendur yfir. Gert ráð fyrir 12 milljarða framlegð Framtakssjóðurinn miðar við að EV–virði (Enterprise value = heildar­ virði) fyrirtækjanna sjö í Vestia liggi í kringum fimm falt EBITDA. EBITDA er hagnaður fyrir vexti, skatta og afskriftir; í rauninni framlegð. Miðað við að vaxtaberandi skuldir fyrirtækjanna sjö nema um 40 milljörðum og kaupverðið á Vestia er 19,5 mill jarðar, samtals um 60 milljarðar, þýðir þetta að sjóðurinn gerir kröfu um að fram­ legð þessara sjö fyrirtækja sé um 12 milljarðar króna á ári. Mörgum finnst þetta of hátt verð og of lítil krafa um framlegð. Nær væri að miða við að EV virðið væri fjórfalt EBITDA, 4,0, sem krefðist framlegðar hjá fyrirtækjunum upp á 15 milljarða króna miðað við að kaupverð plús skuldir séu 60 milljarðar. En það er hægt að horfa á þetta frá annarri hlið. Ef EBITDA í fyrirtækjunum er 12 milljarðar, eins og Framtakssjóðurinn gerir ráð fyrir, þá eigi ekki að greiða meira fyrir fjárfestinguna í heild en 48 milljarða króna miðað við að EBITDA sé 4,0. Þarna munar ansi miklu, eða um 12 milljörðum, og þýddi að kaup­ verðið á Vestia þyrfti að lækka sem því nemur miðað við EBITDA upp á 4,0 og fara niður í tæpa 10 milljarða króna. Spyrja má sig á móti hvort bankinn hefði verið tilbúinn að selja Vestia á því verði því bankinn er að koma með hlutafé inn í Framtakssjóðinn sem nemur næstum kaupverðinu á Vestia. Mjög líklega ekki. Áætlanir innan Icelandair Group gera ráð fyrir því að það félag sé með EBITDA upp á um 8,5 mill jarða á ári. Að vísu er mikil afskriftarþörf (þ.e. nýja fjárfestingar) hjá Icelandair svo einhver gæt sagt að EBITDA væri ekki rétti mæli kvarðinn. En hvað um það, EBITDA er alls staðar notuð. Og EBITDA þessara 8 fyr ir tækja, sem Framtakssjóðurinn á í, er í kring um 20 mill jarðar króna. Velta þeirra er um 300 milljarðar og starfs menn um 8 þúsund. Mörgum finnst undarlegt að sjóðurinn ætli sér allt að 90 milljarða til fyrirtækjakaupa við þær kringumstæður sem núna eru á markaðnum – nema hann ætli sér að kaupa öll fyrirtækin í bænum. Of miklir peningar geti sljóvgað kröfu um ávöxtun og aukið á bruðl. Þá er bent á að enginn sé að höndla með sína eigin peninga, nokkurn veginn eins og Ísland er í dag. Lífeyrissjóðirnir séu í eigu fólksins og Landsbankinn sé ríkisbanki. Raunar má spyrja sig eftir hrunið og rannsóknarskýrsluna hvort Jón Ásgeir, Björgólfur Thor og Hannes Smára son hafi verið með sína eigin peninga í fyrir tækjakaupum! Fjöldalýðræðið innan lífeyrissjóða hefur oft borið á góma. Hverju ráða sjóðfélagar þegar kemur að kjöri í stjórn lífeyrissjóða þar sem atvinnurekendur og verkalýðsfélög skipa í stjórnir sjóðanna – sem svo taka sjálfstæðar ákvarðanir eins og að stofna Framtakssjóðinn? Það er nú það. Gert er ráð fyrir að framlegð fyrirtækjanna sjö í Vestia sé um 12 milljarðar króna. Virði fyrirtækjanna eftir því hvort EBITDA- margfaldarinn er 5,0 eða 4,0 er annars vegar 60 milljarðar eða 48 milljarðar. Þarna munar um 12 milljörðum króna á kaupverði. Margir forstjórar í landinu eru bálreiðir yfir þessari ósanngirni. Nýir eigendur taka við hinum föllnu fyrirtækjum með afskrifaðar skuldir og eru jafnvel orðnir sterkari en keppinauturinn sem rembist við að greiða af sínum lánum. FYRIRTÆKI FRAMTAKSSJÓÐSINS ICELANDAIR GROUP Velta 90 milljarðar kr. Starfsmenn 2 þúsund. Vaxtaberandi skuldir 30 milljarðar enn verða 20 milljarðar eftr hlutafjárhækkun. EBITDA um 8,5 milljarðar. VESTIA-FYRIRTÆKIN ÁTTA Icelandic, Teymi (Vodafone, Skýrr, EJS, Hands Holding og Hugur-Ax), Húsasmiðjan og Plastprent. Velta 200 milljarðar kr. Starfsmenn 6 þúsund. Vaxtaberandi skuldir um 40 milljarðar kr. Krafa um að EBITDA sé 12 milljarðar kr. ICELANDIC GROUP Velta 150 milljarðar Vaxtaberandi skuldir 25 milljarðar. TEYMI (Vodafone, Skýrr, EJS og Hugur-Ax, Hands Holding) Velta 40 milljarðar kr. Vaxtaberandi skuldir 12 milljarðar. HÚSASMIÐJAN Velta 12 milljarðar kr. Vaxtaberandi skuldir 3 milljarðar. PLASTPRENT Velta 1,5 milljarðar. Ný valdablokk lífeyrissjóða? Ýmsir halda því fram. En því er mótmælt. Völd séu ekki markmiðið heldur að byggja upp atvinnulífið og ná góðri ávöxtun. Til standi að leysa Framtakssjóðinn upp eftir tíu ár og selja fyrirtækin fyrir þann tíma.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.