Frjáls verslun - 01.07.2010, Qupperneq 29
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0 29
Hann sagði ennfremur að Framtaks sjóð
urinn stefndi að því að skrá þessi fyrirtæki á
markaði þegar færi gæfist. Icelandair Group
væri núna eina félag Framtakssjóðsins sem
væri skráð á markaði. Að vísu væri enn
ekki búið að ganga endanlega frá Vestia
kaup unum þar sem nú stæði yfir áreiðan
leikakönnun.
„Það var mikil vinna lögð í kaupin á
Vestia; stanslaus vinna í sumar í tvo og
hálfan mánuð. Þetta byrjaði allt á því
Steindór Pálsson, bankastjóri Lands bank
ans, þá nýkominn til starfa hafði samband
og vildi ræða með hvaða Landsbankinn
og Framtakssjóðurinn gætu átt samstarf í
endurreisn efnahagslífsins,“ sagði Finnbogi.
Matthías Imsland, forstjóri Iceland
Ex press, sagði í erindi sínu að hann ætlaði
að vera stuðandi og tala fyrst og fremst um
Icelandair Group og efnahagsreikning fél
agsins sem hann sagði að væri með mikið
loft í.
Matthías beindi orðum sínum mjög að
Finnboga. Honum fannst það ójöfn sam
keppni að fá skyndilega fjársterkt félag líf
eyrissjóðanna til að gerast kjöl festu fjár festir
í Icelandair – helsta keppinaut sínum. Það
skekkti myndina.
„Það er mikið loft í þessum eignum“
Matthías bætti því við að eignir Icelandair
væru of hátt skráðar í efnahagsreikningi
og þar væru miklar óefnislegar eignir –
duldar eignir. „Það er mikið loft í þessum
eignum,“ sagði Matthías.
Hann sagði að Íslandsbanki væri að færa
skuldir Icelandair niður um 20 mill jarða
með aðkomu sinni að fél ag inu og endur
skipulagningunni með Fram taks sjóðn um.
Þá vísaði Matthías í Warren Buffett,
hinn kunna bandaríska fjárfesti, sem
hefur gefið það út að hann fjárfesti aldrei
í flugfélögum; svo áhættusamt sé það.
Matthías brosti auðvitað þegar hann sagði
þetta sem forstjóri flugfélags.
Kallað var út úr sal hver ætti Iceland
Express og svaraði Matthías því til að það
væri Pálmi Haraldsson.
Matthías sagði að eftir að Framtaks sjóð
urinn hefði komið inn hefði Icelandair
ákveðið að fljúga á Billund og Gautaborg,
staði sem Iceland Express hefði flogið á
undanfarin ár.
Þá hefði Icelandair ákveðið að hefja flug
til Alicante á Spáni en þangað hefði Iceland
Express flogið við góðan orðstír síðustu ár.
„Icelandair hefur núna fengið aukakraft
til að hefja keppni á þessum leiðum,“ sagði
Matthías.
Nokkur kurr fór um salinn við þessi orð
Matthíasar og hvíslað var við borðin að
Iceland Express hefði kóperað flugleiðir
Icelandair til Bandaríkjanna og hann gæti
því lítið sagt þótt Icelandair svaraði fyrir sig.
Engu að síður stillti hann umræðunni
upp sem viðureign Davíðs og Golíats.
Matthías sagði að svo mikil einokun
væri enn í tengslum við Icelandair að
þegar Iceland Express sækti um flugleyfi á
nýja staði færi það fyrst til umsagnar hjá
Icelandair. „Nýjar leiðir okkar koma þeim í
Icelandair því ekki á óvart.“
Það vakti nokkra athygli þegar Matthías
sagði að Iceland Express ætlaði að þrefaldast
að stærð á næstu árum. Verða öflugt alþjóð
legt flugfélag og hefði burði til þess.
Finnbogi Jónsson sagðist ekki ætla að
karpa við Matthías um efnahagsreikning
Ice landair Group. Kaupin á Icelandair
Pétur Blöndal skaut því að Finnboga í spurningu hvort hann ætti ekki að ráða Hallbjörn í vinnu til sín. Þá var mikið hlegið.
Finnbogi sagði að það væri svolítið sérstök staða ef Fram taks-
sjóðurinn væri kominn til að taka þátt í endurreisn atvinnu-
lífsins því það vantaði fé inn á markaðinn en mætti svo ekki
kaupa nein fyrirtæki í samkeppni.
Frosti Bergsson