Frjáls verslun - 01.07.2010, Qupperneq 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0
Þegar fyrirtækin halda áfram að tapa og
þurfa nýtt fjármagn þá kemst Fram taks
sjóður ekki hjá því að bæta við fé til að
halda rekstrinum gangandi.“
Hallbjörn gerði að umtalsefni þetta með
Warren Buffett fjárfesti sem fjárfestir alls
ekki í flugfélögum vegna áhættunnar. Hann
bætti því við að einn maður hefði þó grætt
á því að fjárfesta í flugfélögum og selja þau
aftur á uppsprengdu verði; það væri Pálmi
Haraldsson.
Þá urðu hlátrasköll í salnum.
Frosti Bergsson spurði Finnboga hverju
hann ætti að svara starfsmönnum sínum
sem ættu í Opnum kerfum og greiddu í líf
eyris sjóði sem ættu í Framtakssjóðnum sem
væri kominn í samkeppni við þá.
Finnbogi sagði Frosta að hann ætti að
svara því til að verið væri að byggja upp
atvinnu lífið og það væri mikils virði fyrir
allt gangverkið í þjóðfélaginu – heildar
hags munir væru að leiðarljósi.
Pétur Blöndal skaut því að Finnboga
í spurn ingu hvort hann ætti ekki að ráða
Hall björn í vinnu til sín. Þá var mikið
hlegið.
Hallbjörn ítrekaði að fara ætti mjög
varlega með lífeyrissjóði landsmanna þegar
kæmi að því að kaupa fyrirtæki og halda
þeim uppi. „Lífeyrissjóðirnir verða að
telja sig geta gert betur en markaðurinn í
þessum fjárfestingum.“
Hann sagði að venjulegir fjárfestar hugs
uðu um það að tapa ekki peningum. „Þeir
verða að leyfa mörgum spennandi verk
efn um að sigla framhjá sér. Þeir verða að
þekkja vel þann rekstur sem þeir fara út í.
Það er ábyrgðarhluti að fara með peninga
annarra.“
Lífeyrissjóðirnir seldu hlutabréf úti
Hallbjörn ræddi ennfremur um að dreifa
áhættunni og undraðist að lífeyrissjóðirnir
hefðu nýlega selt hlutabréf erlendis til að
kaupa erlend íbúðabréf af Seðlabankanum
og fært þannig lífeyrissparnaðinn til Íslands
í veikara umhverfi þótt þeir gætu reiknað
sér hagnað af þessum viðskiptum og náð
ávöxtuninni upp. „Það er verið að auka
áhætt una með því að koma með þetta heim.“
„Fólk er með allt sitt á Íslandi. Fyrir tækin,
vinnuna, húsnæði, bílana og líf eyris sparn
aðinn að stærstum hluta. Áhættan er öll
á sama svæðinu, þess vegna á að dreifa
áhættunni með því að fjárfesta erlendis,“
sagði Hallbjörn.
Hallbjörn gerði það einnig að sérstöku
umtalsefni að Seðlabankinn og lífeyris
sjóð irnir hefðu í þessu tilviki farið framhjá
gjaldeyrishöftunum. Enginn mætti flytja
gjaldeyri heim nema á gengi Seðlabankans
sem væri fast. En það vefðist ekki fyrir
Seðlabankanum og lífeyrissjóðunum að
fara framhjá reglunum og færa gengið
heim á miklu hærra verði og ná fram
gengishagnaði.
ORÐRÉTT ÚR RÆÐU
HALLBJÖRNS
1. Krafa um ávöxtun
Allt sem dregur athyglina frá kröfu um
ávöxtun minnkar líkur á árangri
Fjár festingar vegna byggðasjónarmiða.
Fjárfestingar vegna áhuga á „áhrifum“ –
fjölmiðlar gott dæmi.
Áhugi á því að „stækka“ fyrirtæki.
Og fleiri dæmi.
SÍS, Kolkrabbi, Baugsveldi – ágætis dæmi
um ofangreint.
Líkur á árangri snarminnka þegar þetta
gerist.
2. Hagsmunir sjóðfélaga
Er ljóst að endurreisn efnahagslífsins sé
sjóðfélögum í hag?
Já.
Er ljóst að lífeyrir sjóðfélaga verði meiri
ef sparnaðurinn fer í að endurreisa
efnahagskerfið?
Nei.
Vel má hugsa sér að Markmið Fram taks-
sjóðsins náist fullkomlega.
Sjóðnum tekst að „endurreisa
efnahagskerfið“.
Sjóðfélaginn á engan sparnað við 67 ára
aldur.
Aurunum var eytt í endurreisnina.
Gefinn var afsláttur af ávöxtunarkröfu.
3. Reynsluleysi
Lífeyrissjóðir hafa litla, ef nokkra, reynslu í
kaupum á heilum félögum.
Hlutabréfakaup hingað til mest í formi
skráðra bréfa.
Erlend kaup oftast í gegnum sjóði.
Kaup á óskráðum vandamálafyrirtækjum
eru einstaklega erfitt verkefni.
Lífeyrissjóðir hafa enga reynslu í að „taka
til“ í rekstri fyrirtækja.
Miklir og óþægilegir hagsmunaárekstrar.
Á að reka fullt af starfsmönnum sem í
raun eiga hlut í sínu fyrirtæki í gegnum
lífeyrissjóðinn sinn?
Starfsmaður Símans tekur þátt í að
fjármagna Vodafone …
Lífeyrissjóðir líklega afleitir eigendur að
vandamálafyrirtækjum.
4. Icelandair
Fáum hefur tekist að hagnast á
fjárfestingum í flugfélögum.
(man bara eftir Pálma Haralds …)
Að auki er þetta „turn-around“-verkefni
„No turnarounds – usually they don’t turn
around“ – Warren Buffett.
Fínt fyrir hagkerfið að hafa flugfélag – vont
fyrir sjóðfélaga að eiga flugfélagið (mjög
mjög líklega).
KAUPIN Á VESTIA
Finnbogi Jónsson, Matthías Imsland og Hallbjörn Karlsson.