Frjáls verslun - 01.07.2010, Page 49
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0 49
Halda í
bjartsýnina
Hulda Hreiðarsdóttir er íslenskufræðingur, sem
fór út í hönnun og viðskipti eftir að hafa verið í
viðskiptasmiðjunni hjá Klaki. Núna er fyrirtæki
hennar og Þórunnar Jónsdóttur með framleiðslu
og sölu á leikföngum víða um heim.
Hulda Hreiðarsdóttir og Þórunn
Jónsdóttir hjá leikfanga -
fyrirtækinu Fafu:
Hulda segir að Fafu hafi vaxið hraðar en hún hafi átt von á. Viðtökur hafi verið góðar en félagið komst í úrslit Gull-eggsins, frumkvöðlakeppni Innovit, og hlaut verðlaun Út flutningsráðs í þeirri keppni. Auk þess hafa mikilvægir
styrkir fengist frá Rannís og einnig Átaki til atvinnusköpunar.
Í fyrstu var Hulda eini starfsmaðurinn en framleiðslan byggist á
hönn un sem hún byrjaði á haustið 2008 – rétt fyrir hrun. Fyrirtækið
sjálft var síðan stofnað vorið 2009 og núna eru fastir starfsmenn
tveir auk verktaka sem sjá meðal annars um grafíska hönnun, for-
ritun á vefsíðu og ljósmyndun.
Fyrirtækið heitir FafuToys. Það er enska enda segir Hulda að mark-
aðurinn sé nær eingöngu í útlöndum. – Vörurnar eru um hverfisvæn
leikföng og búningar fyrir börn. Leikskólar Hjalla stefn unnar hafa
prófað vörurnar og keypt á alla sína leikskóla.
„Við byggjum á svipuðum hugmyndum og Hjallastefnan um að
börnin eigi að skapa sinn leik sjálf fremur en að byggja hann á fyrir-
fram gefnum hugmyndum,“ segir Hulda.
Opinn leikur
Fafu stendur fyrir „fair fun“ og vísar til þess að efnin séu um hverfis-
væn og framleiðsla og hráefni siðgæðisvottuð þannig að seljendur
hafi fengið sanngjarnt verð fyrir sinn hlut. Hönnunin miðast við op inn
leik, sem reynir á hugmyndaflug barnanna og eflir þroska þeirra. Lögð
er áhersla á að vinna með form, liti, lögmál og leiðir til að efla ólíka
eiginleika barna.
„Ég á þrjú börn og fann sjálf fyrir leikfanganeyslunni, sem virðist
aukast ár frá ári. Það er ekki gert ráð fyrir opnum leik lengur,“ segir
Hulda. Hún segir að markmiðið sé meðal annars að brúa bilið milli
leikfanga og tölvuleikja þar sem reynir bæði á hreyfingu og sköpun
við tölvuna. Til þessa hefur framleiðslan þó fyrst og fremst verið
búningar af ýmsu tagi. Vörurnar eru framleiddar úr bómull í Kalkútta á
Indlandi og heil þæfðri ull í Nepal. Núna er dreifingarnet í mótun, fyrst
í Svíþjóð og einnig í Bretlandi. Þetta er framleiðsla fyrir sérverslanir
með þroska leikföng og umhverfisvæn leikföng. Sá markaður er þrátt
fyrir allt að vaxa.
„Við reynum að berjast á móti straumnum,“ segir Hulda. „Þetta er
kynlaus vara. Við bjóðum ekki upp á dúkkur og bíla og búningarnir
eru ekki bleikir.“
Halda í bjartsýnina
Hulda segir að fyrir frumkvöðla sé einna erfiðast að vera alltaf í
mörgum hlutverkum samtímis. Þegar Fafu var á hugmyndastigi var
hún mikið ein í öllu en síðan auglýsti hún eftir starfskrafti á Face-
book. Þá kom Þórunn Jónsdóttir viðskiptafræðingur til Fafu en á
tímabili störfuðu tveir hönnuðir einnig hjá félaginu. Þórunn sér um
markaðsmálin en Hulda um hönnun og framleiðslu. Þar með er viss
verkaskipting komin fram innan fyrirtækis og þær vonast til að geta
bætt starfsmanni við eftir áramótin.
„Annars er það svo að allt tekur lengri tíma en maður heldur í upp-
hafi,“ segir Hulda. „Það er óraunhæft að setja sér markmið eins og
heimsyfirráð eftir helgi! Það er átak að halda í bjartsýnina og frum-
kvöðullinn verður að leyfa sér visst óraunsæi.“
Hulda segir jafnframt að Fafu hafi vaxið hratt vegna þess að fyrir-
tækið var snemma komið með eigin tekjur. Markmiðið er að ná
fjár hagslegri sjálfbærni áður en fleiri vörur bætast við og fjármagna
þróunarvinnuna með sölu.
„Þetta er einföld vara sem hægt var að selja strax og fá þannig tekjur,“
segir Hulda. „Hins vegar eru ytri aðstæður hér ekki sérlega góðar; gjald-
eyrishöftin til trafala og opinber gjöld eru þungur baggi.“
„Þetta er kynlaus vara. Við bjóðum ekki
upp á dúkkur og bíla og búningarnir eru
ekki bleikir.“