Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2010, Page 50

Frjáls verslun - 01.07.2010, Page 50
50 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0 Unnur Valborg Hilmarsdóttir skrifar um bókina 10-10-10. B Æ K U R Bókin Mojo er skyldulesning fyrir þá sem upplifa leiða í starfi og þurfa að endur- nýja orkuna til að takast á við erfiða tíma. TEXTI: UNNUR VALBORG HILMARSDÓTTIR MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON & ÝMSIR HVERNIG STJÓRNENDUR FINNA GLEÐI Á NÝ Í STARFI! Bókin Mojo eftir metsölu höf und­inn og stjórnenda mar k þjálf ann Marshall Gold smith fjallar um hvað stjórnendur geta gert til að finna gleðina í starfi hafi þeir af ein ­ hverj um ástæðum tapað henni. Hún er skyldulesning fyrir þá sem upplifa leiða í starfi og þurfa að endurnýja orkuna til að takast á við erfiða tíma. Undanfarin misseri hefur álag á stjórn­ endur víða verið gríðarlegt. Margir hafa um langt skeið fundið sig fasta í krísustjórnun og ekki haft tök á að vinna markvisst að því að viðhalda starfsgleði og ánægju. Ýktustu afleiðingar slíks eru kulnun í starfi en veikari afleiðingar leiði og tilgangsleysi. Slíkt ástand hefur óhjákvæmilega áhrif á afköst og getu stjórnandans til að hvetja hópinn sinn áfram. Það er því mikilvægt að finna gleðina að nýju. Bók Marshalls Goldsmiths er tilvalinn leiðarvísir til þess. Hvað er mojo? Margir muna eftir „mojoi“ úr grínmynd­ unum um Austin Powers. Í því samhengi er átt við hæfni spæjarans til að heilla kven fólk. Samhengið er annað í bók Gold­ smiths. Hann skilgreinir mojo sem ástand sem við upplifum þegar við höfum sjálf­ sprottið jákvætt hugarfar gagnvart því sem við erum að gera og erum fær um að smita því hugarfari út í umhverfi okkar. Með öðrum orðum þegar við erum spennt fyrir verkefnum okkar, tilbúin til að takast á við þau og engum dylst ákafi okkar. Í því ástandi er stjórnandinn best til þess fallinn Margir stjórnendur finna fyrir kulnun í starfi; leiða og til gangs- leysi. Slíkt ástand hefur óhjá - kvæmilega áhrif á afköst og getu stjórnandans til að hvetja hópinn sinn áfram. Það er því mikilvægt að finna gleðina að nýju. Höfundurinn, Marshall Gold smith. Bókin Mojo:

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.