Frjáls verslun - 01.07.2010, Síða 66
66 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0
Vinnu- og heilsuvernd í forgang í fyrirtækjum
VINNUVERND
Vinnuvernd er þjón ustufyr irtæki sem sérhæfir sig á sviði vinnuverndar, heilsuverndar og heilsuefl ingar í fyrirtækjum,
stofnunum og hjá sveitarfélögum.
„Við erum sannfærð um að þjónusta
á sviði vinnuverndar og heilsueflingar
sé mikilvægur þáttur í því að auka
starfsánægju og bæta árangur, öryggi,
líðan og heilsufar starfsmanna,“ segir
Valgeir Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Vinnuverndar.
„Starf okkar beinist að starfsmönnum
fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana.
Við gerum samninga við fyrirtækin um
ákveðna þjónustu og oft er grunn ur inn
trúnaðarlæknisþjónusta eða fjar vista skrán
ing. Þjónusta trúnaðarlæknis felur í sér
að bæði stjórnendur og starfsmenn hafi
aðgang að lækni.
Við höfum frá upphafi lagt áherslu á
andleg málefni og höfum lengi verið í
samstarfi við sálfræðinga sem hafa sinnt
ýms um verkefnum, eins og álags og streitu
stjórnun og eineltismálum sem þeir sinna
inni í viðkomandi fyrirtækjum.“
Samvinna við hvert fyrirtæki
Guðbjörg Helga Birgisdóttir, hjúkrunar
fræðingur Vinnuverndar, segir að skoðað
sé í samvinnu við hvert fyrirtæki hvaða
mælinga er þörf: „Hjúkrunarfræðingur á
vegum Vinnu verndar kemur á vinnustað
með allt sem til þarf. Skoðað er í samvinnu
við hvert fyrirtæki hvaða mælinga er þörf
og hvað gagnast vinnustaðnum best. Farið
er yfir niðurstöður mælinga með hverjum
starfsmanni jafnóðum og einstaklingshæfð
ráðgjöf veitt.
Leggja mat á lífsstílstengda áhættuþætti
Mælingarnar leggja mat á lífsstílstengda
áhættuþætti og mæla t.d. blóðþrýsting,
kólesteról, blóðsykur, þyngd, BMIþyngd
ar stuðul, fituprósentu líkamans og þol.
Þeir þættir sem mældir eru koma við sögu
ýmissa sjúkdóma og má þar helst nefna
hjarta og æðasjúkdóma og sykursýki, auk
sívaxandi vandamáls hérlendis sem er offita
og hreyfingarleysi.
Ávinningur af heilsufarsmælingum
– bætt heilsa
Mikilvægi góðrar heilsu er sjaldan ofmetið
og það er afar áríðandi að vinnustaðir bjóði
upp á heilbrigt vinnuumhverfi. Markmið
mælinganna er að stuðla að betri heilsu
starfs manna, auka vitund fólks um eigin
heilsu og hjálpa því að taka ábyrgð á eigin
lífi með heilbrigðum lífsstíl.
Ánægjulegt er að stjórnendur fyrirtækja
í dag eru meðvitaðir um mikilvægi heilsu
hrausts starfsfólks; það skilar sér í betri
vinnu krafti ef fólk tileinkar sér heilbrigðan
lífsstíl auk þess sem það lýsir umhyggju
stjórn enda fyrir starfsfólki sínu að bjóða
upp á heilsufarsmat.“
Markmið mælinganna er
að stuðla að betri heilsu
starfsmanna, auka vitund
fólks um eigin heilsu og
hjálpa því að taka ábyrgð á
eigin lífi með heilbrigðum
lífsstíl.
Guðbjörg Helga Birgisdóttir, hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur Vinnuverndar.