Frjáls verslun - 01.07.2010, Page 77
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0 77
Tiger Woods er ekki bara heimsþekktur golfari sem hefur komist í fréttir fyrir að halda fram hjá kon-
unni sinni og það með fjölmörgum konum. Tiger er fyrirtæki; stórt fyrirtæki. Hann er gott dæmi um
það hvernig fyrirtæki og stjórnendur skaða ímyndina með því að hafa ekki góð gildi í heiðri; sérstaklega
þegar byggð hefur verið upp ímynd staðfestu og trausts. En svo bregðast krosstré sem önnur tré.
TEXTI: HILMAR KARLSSON MYNDIR: ÝMSIR
SKÖDDUÐ
ÍMYND TIGERS
iger Woods er fyrirtæki. Tiger
er tekjuhæsti kylfingur heims
frá upphafi. Heildartekjur
hans á golfmótum eru 93 mill
jónir dollara. Þess ar tekjur eru
aðeins hluti af þeim tekjum
sem hann hefur fengið fyrir
auglýsingasamninga.
Tekjur af auglýsingum á árinu 2009 voru
rúmar 95 milljónir dollara og 112 milljón ir
árið áður. Tiger er fyrirtæki sem hefur geng ið
vel og malað gull.
Stærsta auglýsingafjárhæðin á ári, 30 mill
jón ir dollara, kemur frá Nike sem enn held ur
tryggð við hann. Nokkur stórfyrirtæki hafa
hins vegar sagt upp samningum við hann.
Fjögur stórfyrirtæki hafa sagt upp augl ý s
inga samningum við Tiger. Þau eru Gillette,
Gator ade, AT&T og Tag Heuer. Við þetta
minnka árstekjur hans um rúmlega 25 mill
jónir doll ara. Auk þess hafa nokk ur smærri
fyrirtæki sagt upp samningi við hann.
Tiger Woods hefur verið hæst launaði
íþrótta maður heims síðastliðin sjö ár og vel
gæti verið að hann endurtæki þann leik á
þessu ári.
Tiger verður að teljast í meira lagi barna
leg ur að halda að jafnheimsþekktur maður
og hann gæti lifað tvöföldu lífi til lengdar.
Það er hins vegar með hreinum ólíkindum
hvernig honum tókst að leyna áralöngu
framhjáhaldi við fjöldann allan af konum.
Eiginkonuna Elínu Nordegren grunaði ekki
neitt frekar en nokkurn annan. Blaðasnápar
voru samt komnir á slóðina.
Þegar blaðran spakk gerðist það með mikl
um hvelli. Gengið hefur verið frá skilnaði
Tigers og Elinar Nordegren. Talið er að hún
fái 300500 milljónir dollara af auði hans
en skilnaðurinn er kallaður „Norðurlanda
rothöggið“ af bandarískum fjölmiðlum.
Tiger Woods hefur verið töfranafn í heimi
íþrótta allt frá því hann gerðist atvinnu
maður í golfi árið 1996, þá aðeins 21 árs
að aldri. Til Tigers Woods má rekja þann
almenna áhuga á golfi sem greip um sig í
heiminum upp úr miðjum tíunda áratug
síðustu aldar, sérstaklega hjá ungum krökk
um sem litu upp til hetjunnar með blik
í augunum. Frammistaða hans á þessum
árum er ótrúlega glæsileg og ekkert beið
hans annað en að verða settur á stall sem
einn mesti íþróttamaður allra tíma.
Ekki minnkuðu vinsældir Tigers hjá al
menn ingi þegar hann giftist hinni sænsku
Elin Nordegren 2004 og tvö börn litu
dagsins ljós á næstu árum. Nú var það ekki
aðeins íþrótta og fjármálapressan sem
stanslaust birti fréttir af Tiger Woods, fjöl
skylduvæn tímarit birtu myndir og sögðu
frá hamingju sömu fjölskyldulífi, hversu
mjög Tiger bæri hag fjölskyldunnar fyrir
brjósti og hversu ötull hann væri að hjálpa
samtök um sem hafa það að leiðarljósi að
hjálpa börnum að láta draum sinn rætast.
Er þá fátt eitt nefnt af öllu því jákvæða
sem fylgdi nafni hans. Ímynd fyrirtækisins
varð firnasterk. Leitun var að einhverju
hnjóðsyrði um Tiger á þessu þrettán ára
T
Ímynd fyrirtækja: