Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 66

Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 66
66 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 s t j ó r n u n Þegar ég fletti í gegnum aprílhefti Harvard Business Review rakst ég á athyglisverða grein sem ég renndi í gegnum í snarheitum. Greinin fjallar um það hvernig fyrirtæki geti haldið núver- andi viðskiptavinum sínum ánægðum og kaupglöðum í gegnum þær efnahagsþrengingar sem ganga yfir veröldina um þessar mundir. Greinina skrifa þau John A. Quelch og Katherine E. Jocz, sem bæði eru fræðimenn við hinn virta Harvard Business School í Boston. Viðfangsefnið er ofarlega í huga margra stjórnenda núna. Fyrir- tækin, sem jafnvel hafa lokað markaðsdeildum sínum eða dregið verulega saman, eiga fullt í fangi með að halda viðskiptavinum sínum til margra ára við efnið. Hvað það varðar að næla í nýja viðskiptavini hvarflar það varla að þeim – nema e.t.v. símafyrirtækjunum sem virðast hafa myndað nokkurs konar hraðbraut (nýrra) viðskiptavina sín á milli. Þau John og Katherine segja það mikil mistök að skera flatt niður á markaðssviðinu og að fyrirtækin ættu frekar að virkja markaðsfólk sitt með tilliti til breyttra þarfa viðskiptavinanna sem lifa í breyttum heimi, hafa minni fjárráð og eru áhyggjufullir um framtíð sína. nauðsynjavörur Afþreying Má fresta Má sleppa Viðskiptavinurinn stígur fast á bremsuna. Leitar í ódýrari vöru sem getur komið í staðinn. dregur mikið úr afþreyingu eða leitar í ódýrari tegundir og vörumerki. Frestar kaupum á varanlegum hlutum; húsgögnum, bílum o.þ.h. Frestar viðhaldi, jafnt tannviðgerðum sem þakviðgerðum. Hættir að kaupa það sem hann getur verið án. Viðskiptavininum sárnar ástandið en er samt þolinmóður. Heldur áfram að kaupa valdar vörur á góðu verði. Sættir sig við ódýrari og minna spennandi vörur. Fái hann gott tilboð skiptir hann út. dregur úr tíðni og gæðum. Frestar stærri framkvæmdum. gerir frekar við en kaupir nýtt. Rekstrarkostnaður skiptir máli. Harka færist í samninga um verð. dregur verulega úr kaupum á því sem hann getur verið án. Viðskiptavinurinn er vel stæður og hefur það gott áfram. Heldur sömu kauphegðun. Verður vandlátari. krefst meiri gæða fyrir sama verð. Harka færist í samninga. Lítur helst ekki á neina vöru þannig að hann geti verið án hennar. dregur aðeins úr því augljósasta. Viðskiptavinurinn hefur lifað í augnablikinu og gerir það enn. Heldur sömu kauphegðun. Heldur sömu kauphegðun. kaupir ef verðið er gott en frestar annars. er ófús að líta þannig á að hann geti verið án einhvers. Bætir tæpast við sig vöruflokkum á þessu sviði. Hvernig geta fyrirtæki haldið núverandi viðskiptavinum sínum ánægðum og kaupglöðum í gegnum þær efnahagsþrengingar sem ganga yfir veröldina um þessar mundir? TexTi: martha árnadóttir • Mynd: geir ólafsson kaupglEði Haldið Við 1. Hvernig fyrirtæki geta flokkað breytingar á þörfum viðskiptavina sinna í efnahagsþrengingum LÍTiL MikiL HÆTTA Á MInnKAnDI SÖLU Að mæta breyttum þörfum viðskiptavina á tímum efnahagsþrenginga

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.