Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 81
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 81
haustið er tíminn
Creditinfo er leiðandi fyrirtæki í miðlun
fjárhags- og fjölmiðlaupplýsinga. Ein af
vörum fyrirtækisins eru markhópalistar sem
byggja m.a. á þeim gögnum sem fyrirtækið
býr yfir.
upplýsingar sem tryggja hámarksárangur
Að sögn Guðmundar Más Ketilssonar,
sölustjóra á fyrirtækjasviði,
felst sérstaða Creditinfo
m.a. í þeim fjölda gagna-
grunna sem upplýsingar eru
sóttar í og þeirra upplýsinga
sem Creditinfo býr yfir um
íslensk fyrirtæki:
„Á tímum sem þessum er
mjög mikilvægt að fyrir-
tæki eyði ekki tíma og
fjármunum í að reyna að
mynda viðskiptasamband
við fyrirtæki sem er ekki með virka starfsemi
eða er í mjög slæmri stöðu fjárhagslega.
Með því að útbúa lista yfir virk fyrirtæki,
sem eru í öruggum rekstri, tryggjum við að
viðskiptavinir okkar séu með upplýsingar
í höndunum sem tryggir þeim hámarks-
árangur hverju sinni. Hafa ber í huga að þó
að fjárhagsstaða margra íslenskra fyrirtækja
hafi versnað eftir hrun bankanna þá eru líka
til fyrirtæki sem eru vel stödd og litlar líkur
eru á að lendi í vanskilum
samkvæmt CIP áhættumati
okkar.
Þau fyrirtæki sem stunda
beina markaðssetningu hafa
um langt skeið keypt af
okkur upplýsingar um bæði
einstaklinga og fyrirtæki sem
þau hyggjast vera í sambandi
við. Þessar upplýsingar
(markhópalistar) byggja oft-
ast á grunnum Þjóðskrár og
Fyrirtækjaskrár en stundum eru listar unnir
í samstarfi við Umferðarstofu eða Fasteigna-
skrá Íslands auk þess sem við notum okkar
eigin gögn til að mæta mismunandi þörfum
viðskiptavina okkar.“
Viðskiptamanna- og markaðsgreining
„Creditinfo getur einnig framkvæmt
svokallaða Viðskiptamanna- og
markaðsgreiningu en þannig getum
við greint núverandi viðskiptasafn
fyrirtækja og þau notað upplýsingar við
skipulagningu markaðsstarfs, metið árangur
markaðsherferðar o.fl. Greiningin byggir
á upplýsingum frá fyrirtækjunum sjálfum.
Afraksturinn er skýrsla sem m.a. sýnir
hver markaðshlutdeild þeirra er innan
ákveðinna atvinnugreina eða ákveðins hóps
einstaklinga.
Eftir fall bankanna hafa sum fyrirtæki
þurft að taka viðskiptasöfn sín til endur-
skoðunar og þar hafa upplýsingar okkar
hjálpað mikið til.
Guðmundur
Már Ketilsson,
sölustjóri á
fyrirtækjasviði.
Markhópalistar sem skila árangri
Creditinfo er leiðandi
fyrirtæki í miðlun fjár-
hags- og viðskipta-
upplýsinga en auk
þess býður fyrirtækið
upp á fjölbreytta
fjölmiðlaþjónustu.