Frjáls verslun - 01.02.2005, Page 48
48 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 5
LYFSALA
Aðalsteinn Steinþórsson, stjórnarformaður Lyfjavers,
segist einnig áhugasamur um að fylgjast með viðtökunum
á bílalúguapóteki Lyfjavals, en segir Lyfjaver ekki hafa
uppi nein áform um að feta í fótspor Lyfja-
vals á þessu sviði. Áður en Lyfjaval reið
á vaðið höfðu hins vegar bæði Lyf og
heilsa og Lyfja skoðað möguleikana
á því að afgreiða lyf í gegnum lúgu
en fallið frá þeirri hugmynd að svo
stöddu. „Við töldum ekki grund-
völl fyrir því en þetta er athygl-
isverð tilraun,“ segir Hrund
Rudolfs dóttir, framkvæmda-
stjóri Lyfja og heilsu. Hvorugt
fyrirtækið vill þó útiloka mögu-
leikann á afgreiðslu í gegnum lúgu
þegar fram líða stundir. Þorvaldur
segist hins vegar viss um að önnur
lyfsölufyrirtæki fylgi í kjölfar Lyfjavals
þegar þau sjá hversu vel þetta gangi.
Hörð samkeppni eftir frelsið fyrir 9 árum „Samkeppnin í
lyfsölu hefur verið mjög hörð síðan lyfsala var gefin frjáls
fyrir 9 árum,“ segir Þorvaldur. „Ég átti fyrsta apótekið, sem
var opnað eftir að frjálsræðið var aukið, og það hefur alla
tíð síðan verið barist hart á þessum markaði. Maður er
stöðugt í samkeppni um viðskiptavininn og reynir að halda
honum hjá sér.“
Hrund Rudolfsdóttir tekur undir þetta og nefnir sem
dæmi að fólk komi inn í apótek og gefist kostur á að semja
um verð á vörum. „Það er ekki í mörgum greinum smásölu
sem þetta er hægt. Dettur nokkrum manni í hug að hægt
sé að ganga inn í Bónus og reyna að semja við starfsmann
á kassa um verð á mjólk? Fólk sem tekur mörg lyf er hins
vegar mjög meðvitað um verð og öflugir neytendur að því
leyti.“
Flestir bjóða heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu Að
sögn Aðalsteins Steinþórssonar felst heimsendingarþjón-
usta Lyfjavers í því að vera með skipulagt kerfi í heimsend-
ingum, allt frá því að lyfseðill berst þar til þau eru afhent
heim. Viðskiptavinir geta einnig fengið kvittanir fyrir fjöl-
nota lyfseðlum og fylgst með stöðu þeirra, auk þess sem
fólki gefst kostur á að fá verðtilboð; þ.e. semja um verð.
„Ég veit ekki til þess að heimsendingar hinna apó-
tekanna hafi náð um allt land. Okkar sérstaða felst fyrst
og fremst í því að við gerum þetta með mjög skipulögðu
sölukerfi, auk þess sem þetta eru ókeypis heimsendingar
og verðið á lyfjunum er óháð því hvar fólk býr á landinu.“
Hann bætir við að þeir sem nýti sér vélskömmtun fyrir-
tækisins á lyfjum geti einnig nýtt sér heimsendingarþjón-
ustuna.
Eru heimsendingar út á land ólöglegar? Heimsending-
arþjónusta Lyfjavals einskorðast við höfuðborgarsvæðið.
„Við erum með fríar heimsendingar á höfuðborgarsvæðinu
þar sem starfsmenn okkar afhenda lyfin beint til viðskipta-
vina, en við teljum okkur ekki mega senda lyf út á land
með póstinum. Ef það reynist heimilt, þá gerum við það
líka,“ segir Þorvaldur.
Ingi Guðjónsson hjá Lyfju og Hrund Rudolfsdóttir hjá
Lyfjum og heilsu líta svipað á málið. „Lyfja sendir einnig lyf
heim innan höfuðborgarsvæðisins, en póstsendir ekki út á
land. Við viljum fylgja lögum og reglum og í okkar huga er í
reglugerð skýrt kveðið á um að einungis sé heimilt að póst-
senda lyf í undantekningartilvikum,“ segir Ingi.
Heimsendingarþjónusta er líka í boði hjá Lyfjum og
heilsu innan allra þeirra þéttbýliskjarna sem fyrirtækið
starfar í. „Póstapótek eru bönnuð með lögum,“ segir
Hrund. „Við reiknum fastlega með því að sjá Lyfjastofnun
grípa inn í það ferli til fulls þar sem þessi starfsemi er að
mínu mati ólögleg á þann hátt sem Lyfjaver ætlar sér að
stunda hana.“
Aðalsteinn Steinþórsson fullyrðir hins vegar að þjón-
usta Lyfjavers sé fullkomlega lögleg. „Póstverslun er ekki
það sama og heimsendingarþjónusta. Þegar talað er um
póstverslun er t.d. átt við vörulista sem fólk getur pantað
af og eitthvað slíkt. Við erum hins vegar með okkar
eigin sérþjálfuðu starfsmenn í heimsendingarþjónustunni
á höfuð borgarsvæðinu sem afhenda lyfin heim til fólks.
Síðan höfum við samið við Póstinn um dreifingu úti á landi,
með ábyrgðarsendingum sem eru einnig afhentar heima
hjá kaupendum.“
Bæði Hrund og Ingi líta svo á að einungis sé leyfilegt að
póstsenda lyf í undantekningartilfellum, til dæmis þegar
fólk hefur ekki aðgang að apóteki í eigin byggðarlagi eða
nágrenni. Aðalsteinn er annarrar skoðunar. „Í lyfjalögunum
segir að um póstsendingar lyfja skuli kveða á í reglugerð
um lyfsöluleyfi og lyfjabúðir og að setja eigi reglugerð um
póstsendingar. Síðan kemur fram í 37. grein reglu gerðar
nr. 426 að heimilt sé að auglýsa og kynna þjónustu lyfja-
búða, svo sem heimsendingarþjónustu, verð og fleira. Við
lágum náttúrlega yfir þessu með lögfræðingum okkar áður
en við fórum af stað með þessa viðskiptahugmynd og við
stöndum klár á því að þetta er lögmætt.“
Fróðlegt verður að sjá hvernig framvindan verður á
þessum umtalaða markaði. Kaupendur lyfja eru kröfu-
harðir og fagna aukinni samkeppni apótekanna.
LYFSALA