Frjáls verslun - 01.02.2005, Page 50
50 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 5
S T J Ó R N U N
Úr fluginu
Steinn Logi Björnsson,
nýráðinn forstjóri
Húsasmiðjunnar.
R
ótgróinn Flugleiðamaður í Húsasmiðjuna. Margir hváðu.
Þannig var það nú samt með Stein Loga Björnsson. Þessi fyrr-
verandi framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Icelandair og
stjórnarformaður Loftleiða Icelandic, tók föstudaginn 11. mars
sl. við starfi forstjóra Húsasmiðjunnar.
Steinn Logi hefur nánast allan sinn starfsferil starfað í fluginu, eða í
hartnær 20 ár. Hann er með BA-gráðu í hagfræði frá Drew University í
New Jersey í Bandaríkjunum og með MBA-gráðu frá Columbia University
Business School í New York.
Það hljóta að hafa verið Steini Loga viss vonbrigði þegar Hannes
Smárason, stjórnarformaður Flugleiða, tilkynnti um miðjan febrúar-
mánuð að Ragnhildur Geirsdóttir yrði næsti forstjóri Flugleiða og Jón
Karl Ólafsson forstjóri Icelandair. Ýmsir gerðu ráð fyrir að Steinn Logi
yrði fyrir valinu.
„Þegar það lá fyrir að mér byðist ekki starf forstjóra Flugleiða þá var
það mjög nærtækt fyrir mig að líta í kringum mig. Ég var búinn að vera
hjá sama vinnuveitenda í 20 ár og hafði komið þar víða við kringum
flugrekstur og ferðaþjónustu. Ég kom nálægt því að marka stefnu Ice-
landair ásamt fleirum og skilgreina það sem ferðaþjónustufyrirtæki en
ekki bara flugfélag. Félagið keypti Ferðaskrifstofu Íslands og ég var
TEXTI: GEIR A. GUÐSTEINSSON
MYND: GEIR ÓLAFSSON
Margir hváðu þegar hinn
rótgróni Flugleiðamaður,
Steinn Logi Björnsson, var
ráðinn forstjóri Húsasmiðjunnar.
Hvaða vit hefur hann á timbri
og skrúfum? Þekkir hann ekki
bara til reksturs flugfélaga?
Hann er sagður taka þetta
starf með trukki, slík sé
keppnisharkan í honum.