Frjáls verslun - 01.02.2005, Page 67
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 5 67
Þ
eir eru ekki í brúnum leðurjökkum og með leðurhúfur eins og
frumherjarnir í fluginu. Þeir eru í dökkum jakkafötum, að hætti
kaupsýslumanna. Fyrir fáeinum árum voru þeir að vafstra í allt
öðru; bjórframleiðslu, líftæknirannsóknum og sölu grænmetis.
En núna fljúga þeir hátt og hafa brotið blað í íslenskri flugsögu,
sem allt frá upphafi hefur haft yfir sér nokkurn ævintýrablæ.
Magnús Þorsteinsson hefur búið til stærsta félag heims í leiguflugi, Avion
Group. Hannes Smárason hefur haft forystu um stórfelld ný kaup FL Group
á nýjum þotum fyrir marga tugi milljarða króna og er maðurinn á bak við
kaup félagsins á Bláfugli og á 10% hlutnum í EasyJet. Þeir Pálmi Haraldsson
og Jóhannes Kristjánsson, eigendur Iceland Express, keyptu nýlega danska
flugfélagið Sterling, stærsta lággjaldaflugfélag á Norðurlöndunum.
Í fáum orðum sagt: Ör vöxtur, framrás á alþjóðlega markaði, stöðugt
hækkandi gengi hlutabréfa, bjartsýni og tækifæri. Þetta einkennir nýju flug-
garpana. Flugfélög þeirra blómstra sem útsprungnar rósir, svo við séum
skáldmæltir. Félögin eru leiðandi á sínu sviði og þau fyrirtæki sem fjármála-
heimurinn og fjölmiðlar veita mikla athygli.
Umsvifin aldrei meiri Undir merkjum Oddaflugs á Hannes Smárason,
starfandi stjórnarformaður FL Group, rétt tæplega 30% hlut í FL-Group,
TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
Magnús Þorsteinsson, eigandi
Avion Group, Hannes Smárason,
stjórnarformaður FL Group, og þeir
Pálmi Haraldsson og Jóhannes
Kristjánsson hjá Iceland Express
eru hinir nýju fluggarpar Íslands.
Þeir hafa brotið blað í
íslenskri flugsögu.
Hannes Smárason, starfandi stjórnarformaður FL Group og stærsti eigandi félagsins.
Hann hefur sett aukinn kraft í hreyflana hjá félaginu með miklum fjárfestingum.
Pálmi Haraldsson, annar tveggja eigenda Iceland
Express og Sterling.