Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2005, Page 88

Frjáls verslun - 01.02.2005, Page 88
88 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 5 AMERÍSKIR DAGAR Amerísk-íslenska verslunarráðið hefur það að markmiði að stuðla að hverskonar samskiptum á milli Íslendinga og Banda- ríkjamanna. Félagar í samtökunum geta orðið þeir Íslendingar sem starfa að viðskiptum og eða öðrum mikilvægum samskiptum á milli Íslands og Bandaríkjanna og aðrir sem hafa áhuga á slíkum samskiptum. Ragnar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs Norðuráls er formaður ráðsins. „Markmið verslunarráðsins er að auka viðskipti á milli Bandaríkjanna og Íslands,“ segir Ragnar. „Það eru og hafa verið ákveðnar hindranir í að Íslendingar geti nýtt sér hinn stóra markað í Bandaríkjunum, sem er mjög skilvirkur og virkar eins og sá markaður sem Evrópa stefnir að. Hindranirnar felast til dæmis í merkingarmáli sem er öðruvísi þar en hér. Merkingarreglur frá EBS Íslendingar hafa tekið upp merkingarreglur frá Evrópusambandinu sem eru ekki samræman- legar við þær sem eru í Bandaríkjunum. Markaður okkar er ekki stór svo það er dýrt að breyta merkingum til innflutnings til okkar. Það er þó gert við einstaka vöru sem seljast það vel hér á landi að það borgar sig að breyta merkingum. Má nefna Cheerios og önnur morgun korn í því sambandi. Þegar svo komið er að stærri vörum eins og bílum þá hefur hindrunin aðallega verið vegna tolla, en bandarískir bílar eru yfirleitt með stærri vél heldur en evrópskir og japanskir bílar og hér á landi er tollað eftir vélarstærð. Bílainnflutn- ingur frá Bandaríkjunum er þó að aukast og þar er aðalástæðan lágt gengi dollarans. Ragnar Guðmundsson formaður Amerísk- íslenska verslunar- félagsins. Viðskiptin við Bandaríkjamenn: Verðum að hafa eitthvað að selja umfram aðra Ragnar Guðmundsson, formaður Amerísk- íslenska verslunarráðsins, segir viðskipti Íslend- inga og Bandaríkjamanna standa á gömlum merg. Markmiðið sé hins vegar að auka þessi viðskipti sem frekast er kostur. Fleiri hindranir eru á viðskiptum við Bandaríkin. Má nefna raf- magnstæki. Í Bandaríkjunum er notast við 110 volta kerfi, en 220 hér á landi og í Evrópu. Einnig er sjónvarpskerfið öðruvísi. Þá er flutningskostnaður meiri frá Bandaríkjunum en frá Evrópu. Þannig að það eru nokkur ljón í veginum fyrir því að viðskipti milli Íslands og Bandaríkjanna geti gengið hnökralaust.“ Fríverslunarsamningur við Bandaríkin? Ragnar segir þá stjórn sem hann hefur veitt formennsku í eitt ár hafa velt fyrir sér hvernig hægt sé að auka viðskiptin við Bandaríkin. „Það sem hefur komið út úr þeirri vinnu er hvort við getum ekki gert fríverslunarsamning við Bandaríkin. Þeir eru að vinna að fríverslunarsamningum við nokkur ríki og nú teljum við gott tækifæri fyrir Ísland að komast inn í þá umræðu. Við höfum þegar rætt þetta mál við utanríkisráðuneytið og sendiherra Bandaríkjanna hér á landi og það virðist vera einhver vinna í gangi hjá þessum aðilum um þetta mál. Við viljum að Íslendingar geti notið þess að versla með evrópskar og bandarískar vörur á jafn- réttisgrundvelli og teljum þetta vera leiðina til þess.“ Ragnar segir verslunarráðið ekki koma nálægt neinum kynningum á bandarískum vörum: „Við erum ekki í stakk búin til þess. Við sem störfum innan ráðs- ins erum öll upptekin annars staðar. Við komum að fundahöldum og ráðstefnum um bandarískar vörur og þjónustu og erum þar í samvinnu við Verslunar- ráð Íslands og fleiri aðila, en beinum vörukynningum höfum við ekki getað sinnt. Við reynum einnig eftir megni að aðstoða fyrirtæki sem vilja komast inn á bandarískan markað og bandarísk fyrirtæki sem vilja komast inn á íslenskan markað.“ Að lokum er Ragnar spurður hvar við getum sett fótinn niður í sambandi við útflutning til Bandaríkjanna: „Við verðum að hafa eitt- hvað að selja umfram aðra, skapa okkur sérstöðu. Fiskiðnaðurinn hefur verið með gæðavörur og Marel og Össur hafa með yfirburða- tækniþekkingu verið að ná góðum árangri, svo er um önnur fyrir- tæki sem hafa verið að reyna fyrir sér, fyrirtæki sem byggja á tækni eða gæðum. Við getum ekki keppt við þjóðir sem ráða yfir ódýru vinnuafli.“ „Bandaríkin eru að vinna að frí- verslunarsamningum við nokkur ríki og nú teljum við gott tækifæri fyrir Ísland að komast inn í þá umræðu.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.