Ægir - 01.07.2002, Page 16
14
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Merkúr hf.
Skútuvogi 12 a
104 Reykjavík
Sími: 594 6000
Fax: 594 6001
Netfang:merkur@merkur.is
Jóhann Ólafur Ársælsson og félagar í sjávarútvegsdeild Merkúrs hf.
„Í byrjun þessa árs gekk Birgir
Sveinsson eigandi Marafls til liðs
við Merkúr hf. og settist þar á bekk
með okkur Hrafni Sigurðssyni,“
sagði Jóhann Ólafur Ársælsson,
forstöðumaður sjávarútvegsdeildar
Merkúrs hf.
„Fyrir tilkomu Birgis og þeirra umboða
sem Marafl var með inn í sjávarútvegs-
deild Merkúr hf. voru Yanmar bátavélar
frá 9 upp í 500 hestöfl aðal söluvara
deildarinnar og er svo enn þótt vissulega
hafi tilkoma Marafls fjölgað undirstöðum
deildarinnar svo um munar. Þegar svo
við bætist umboðið fyrir John Deere vél-
arnar sem við tókum við á þessu ári má
segja að deildin bjóði upp á ákaflega
þéttan „pakka“ frá vél og aftur úr og gott
betur,“ sagði Jóhann Ólafur. „Það sem
við bjóðum upp á og kynnum á sjávarút-
vegssýningunni eru til dæmis slóg- og
slordælur frá Tsurumi, ýmsar gerðir raf-
stöðva, bæði tilbúnar rafstöðvar frá
F.G.Wilson og Kohler en ekki síður raf-
stöðvar sem eru settar saman af okkur
með John Deere eða Yanmar vélum og
Stamford rafölum. Rafmagnsstjórntækin
frá ZF-Mathers hafa fengið feikigóðar við-
tökur á markaðnum enda tækni sem
gerir stjórn bátsins auðvelda og létta,
ekki síst ef um tveggja véla báta er að
ræða. Marine Aluminium gluggar og
landgangar, Nor-Pro skipshurðir, Nor-
Sap brúarstólar, Barkemeyer flapsastýri
og stýrisvélar, Kort bógskrúfur, Heimdal
skiptiskrúfugírar, Miljö-teknikk loftræsi-
kerfi og Fenstrum kjölkælar er meðal
þess sem við nú bjóðum svo og mikið
úrval af öxlum og skrúfum frá ýmsum
framleiðendum. Yanmar framleiðir einnig
skipavélar allt að 4500 hestöfl og seldi
Merkúr til dæmis vél og skiptiskrúfubún-
að í Björninn RE 79 sem smíðaður var í
Kína fyrir Aðalbjörn Jóakimsson útgerð-
armann í Reykjavík og er sala á skipavél-
um eitthvað sem við horfum mjög á til
framtíðar.“
„Það sem við leggjum þó mesta
áherslu á er að reyna að bjóða alltaf
góða, faglega þjónustu. Þjónustudeildinni
okkar er stýrt af Vilhjálmi Baldurssyni og
varahlutir í Yanmar eru í öruggum hönd-
um Jóhannesar Karlssonar en yfir vara-
hlutadeildinni er Baldvin Einar Einarsson.
Allir þessir menn eru menntaðir vélstjórar
og meira til með reynslu af vélstjórn til
sjós. Með þessum og öðrum starfsmönn-
um Merkúrs, sem er fyrirtæki með 36
starfsmenn og öflugu þjónustuneti um allt
land, teljum við okkur vera í stakk búna til
að veita þjónustu sem við getum verið
stoltir af,“ sagði Jóhann Ólafur að lokum.
Marafl og Merkúr
í eina sæng