Ægir - 01.07.2002, Síða 18
16
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Tryggingamiðstöðin hf.
Aðalstræti 6-8
101 Reykjavík
Sími: 515 2000
Grænt númer: 800 2000
Fax: 515 2020
Veffang: www.tmhf.is
Kampakátir sérfræðingar Tryggingamiðstöðvarinnar, frá vinstri Bjarni G. Bjarnason, Einar
Þorláksson, Páll Jónsson, Þórður Þórðarson og Sigurður Jónsson. Á myndina vantar Sigurð
Ingibergsson.
Tryggingamiðstöðin hf. var stofnuð
árið 1956 af aðilum tengdum sjáv-
arútvegi og tók til starfa 2. janúar
1957 að Aðalstræti 6 þar sem félag-
ið er enn til húsa. Fyrirtækið bauð í
fyrstu upp á alhliða vátrygginga-
starfsemi að undanskildum bif-
reiða- og líftryggingingum. Árið
1967 hóf félagið svo sölu bifreiða-
trygginga og árið 1971 sölu líftrygg-
inga. Árið 1991 tók félagið að sér
ferðatryggingar fyrir VISA og
EUROCARD korthafa. Árið 1996 var
TM-ÖRYGGI sett á markað, en TM-
ÖRYGGI er vátryggingavernd sem
sameinar öll tryggingamál fjölskyld-
unnar á hagkvæman og þægilegan
hátt. Árið 1998 fór Tryggingamið-
stöðin á Verðbréfaþing Íslands.
Árið 1999 sameinuðu svo Tryggingamið-
stöðin hf. og Trygging hf. krafta sína und-
ir nafni Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
Sameining félaganna reyndist farsæl og
hefur styrkt stöðu sameinaðs félags á
markaðnum. Fyrirtækið hefur á að skipa
traustum og góðum hópi starfsfólks sem
hefur að markmiði að halda uppi góðri
þjónustu á mannlegum nótum. Þrátt fyrir
mikla samkeppni er staða fyrirtækisins
sterk og tryggir það, ásamt öflugum end-
urtryggjendum, trausta og örugga tjóna-
afgreiðslu ekki síst þegar stórtjón verða.
„Tengsl Tryggingamiðstöðvarinnar við
sjávarútveginn hafa ætíð verið sterk og
félagið hefur mikla reynslu og þekkingu á
þessum grunnatvinnuvegi þjóðarinnar.
Félagið er einnig með umtalsverða mark-
aðshlutdeild í fyrirtækja- fjölskyldu- og
bifreiðatryggingum,“ segir Þórður Þórðar-
son, sérfræðingur á sviði skipatrygginga
hjá Tryggingamiðstöðinni hf. „Starfs-
mönnum hefur fjölgað mikið á síðustu
árum í takt við aukin umsvif og við sam-
einingu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og
Tryggingar hf. fjölgaði starfsmönnum um
þriðjung og nú starfa hjá félaginu rúm-
lega 100 manns.“
„Helstu greinar vátrygginga, sem snúa
að skipum, eru húftrygging skipa, hags-
munatrygging, afla- og veiðarfæratrygg-
ing og síðast en ekki síst áhafnatrygging-
ar. En áhafnatryggingar á skipum og bát-
um sem lögskráð er á, eru orðnar mun
betri í kjölfar kjarasamninga árið 2001 og
taka þær nú ekki einungis mið af sigl-
ingalögum, eins og áður, heldur einnig al-
mennum skaðabótalögum. Við útreikning
bóta er þeim lagaramma fylgt sem hærri
bætur gefur, sem er mikil réttarbót fyrir
hinn slasaða,“ segir Þórður.
„Í fyrirtækjatryggingadeildinni eru 12
vátryggingaráðgjafar, þar af erum við 3
sem erum sérhæfðir í skipa- og áhafnar-
tryggingum og 2 sem eru sérhæfðir í
farmtryggingum,“ segir Þórður þegar
hann er spurður um fjölda þeirra sem
koma að skipatryggingum hjá fyrirtækinu.
„Auk þess eru í tjónadeildinni sérfræðing-
ar sem sinna uppgjörum vegna skipa- og
farmtjóna og slysa á mönnum í áhöfn.“
„Tryggingamiðstöðin er stærsta trygg-
ingafélagið á sviði sjávarútvegsins, sem
meðal annars endurspeglast í því að fé-
lagið hefur verið mikið í fréttum á síðustu
misserum vegna stórtjóna, en það er
ekki óeðlileg ef litið er til þess að flest
þessi stórtjón hafa komið upp hjá fyrir-
tækjum tengdum sjávarútvegi og þar er
Tryggingamiðstöðin sterkust fyrir. Við
leggjum kapp á að veita hraða og öfluga
þjónustu sem tryggir lágmarks tafir frá
veiðum og vinnslu ef til tjóns kemur.“
„Markmið okkar með þátttöku í sýn-
ingunni er að efla tengsl við núverandi og
væntanlega viðskiptavini félagsins,“ segir
Þórður. „Við verðum með tölvutengingu
við aðalstöðvar Tryggingamiðstöðvarinn-
ar og getum gefið viðskiptavinum ýtar-
legar upplýsingar um þeirra tryggingar og
reiknað út tilboð í tryggingar. Segja má
að á sýningarbás okkar verði fullkomið
útibú frá aðalstöðvum Tryggingamið-
stöðvarinnar, auk þess sem við verðum
með ýmiss konar kynningarefni.“
Sýningargestir eru boðnir velkomnir í
bás Tryggingamiðstöðvarinnar, F32 og
þar gefst gestum kostur á að afla sér ít-
arlegra upplýsinga um fyrirtækið og þjón-
ustu þess.
Öflugt tryggingafélag
fyrir atvinnulífið