Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 30
28
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Eimskip
Pósthússtræti 2
101 Reykjavík
Sími: 525 7000
Fax: 525 7009
Veffang: www.eimskip.net
Matthías Matthíasson, forstöðumaður sjávarútvegsþjónustu Eimskips.
Í forystu í flutningaþjónustu
Í hartnær níu áratugi hefur verið
byggð upp afburða þekking hjá
starfsfólki Eimskip á öllu sem snýr
að þjónustu við útflytjendur sjávar-
afurða. Segja má að útflutningur á
sjávarafurðum hafi gjörbreyst með
gámavæðingunni um miðjan níunda
áratuginn og frá þeim tíma hafa
kröfur viðskiptavina um hraða,
vörumeðferð og aðra þjónustuþætti
stóraukist.
„Eimskip leggur metnað sinn í að vera í
forystu í flutningaþjónustu fyrir sjávarút-
vegsfyrirtæki hér á landi og reyndar á öllu
Norður Atlantshafssvæðinu,“ segir Matth-
ías Matthíasson, forstöðumaður sjávarút-
vegsþjónustu Eimskips. „Við stefnum að
því að vörumeðferð sé ávallt eins og best
verður á kosið og í samræmi við þær
kröfur sem gerðar eru til þeirrar gæða-
matvöru sem sjávarafurðir frá Íslandi eru.“
Eimskip hefur á undanförnum árum
sniðið siglingakerfi félagsins að þörfum
útflytjenda. Siglingakerfið hefur verið þró-
að með það fyrir augum að sá tími sem
líður frá því varan er sótt til framleiðanda
þar til hún er afhent kaupanda á markaði
erlendis sé eins stuttur og mögulegt er.
„Sem dæmi má nefna að þegar gámur er
lestaður í Reykjavík á miðvikudegi er
hann kominn á markað í Bretlandi á
mánudagsmorgni. Vara sem kemur að
norðan og austan er flutt með Mánafossi
til Vestmannaeyja þar sem gámunum er
umhlaðið í annað tveggja skipa á svokall-
aðri Suðurleið og fer þaðan áleiðis til
Bretlands og Hollands. Í þessu sambandi
má einnig geta þess að Mánafoss er eina
skipið á Íslandi í dag sem er í reglulegum
strandsiglingum og gegnir því mjög mikil-
vægu hlutverki fyrir landsbyggðina í hag-
kvæmum forflutningi til útflutningshafnar,“
segir Matthías. „Einnig má geta þess að
tvö nýjustu skipin okkar, Dettifoss og
Goðafoss sem taka nærri 1.500 gáma-
einingar, þar af ríflega 400 frystitengla,
hafa reynst mjög vel. Þau sigla á svokall-
aðri Norðurleið og þjóna þannig bæði
meginlandi Evrópu, Norðurlöndunum og
Færeyjum ásamt því að vera með við-
komu á Eskifirði á útleið. Eimskip hefur
byggt upp fullkominn húsa- og tækjakost
sem miðar að því að þjónusta við útflytj-
endur sé eins og best verður á kosið.
Sundafrost, sem er ríflega 2.000 bretta
frystigeymsla Eimskips, er vottuð af
Gámes vottunarkerfinu og þar er einnig
boðið upp á fullkomna skoðunaraðstöðu
fyrir viðskiptavini félagsins. Geymslan er
einnig löggild landamærastöð þar sem
Fiskistofa getur vottað vöru fyrir við-
skiptavini félagsins.“
Viðskiptavinir Eimskips eru oftar en
ekki á fjarlægum mörkuðum með marg-
víslegar kröfur. Áhersla er lögð á að veita
heildarþjónustu og alhliða flutningalausnir
á sjávarafurðum á heimamarkaði Eim-
skips á Norður-Atlantshafi. Allar erlendar
starfsstöðvar Eimskips hafa á að skipa
fulltrúum sjávarútvegsþjónustu og eru
þannig mikilvægur hlekkur í keðju ráð-
gjafa sem sérhæfa sig í flutningalausnum
fyrir sjávarútveg. Matthías segir að sjáv-
arútvegssveit Eimskip samanstandi af af-
burða mannskap með yfirgripsmikla
þekkingu og reynslu af útflutningi sjávar-
afurða.
„Við leggjum mikla áherslu á persónu-
leg tengsl og úrvals þjónustu við við-
skiptavini okkar. Að mínu mati er það
besta leiðin til að átta sig á þörfum þeirra
og væntingum til þjónustunnar. Sjávarút-
vegssveit Eimskips leggur metnað sinn í
að þjóna viðskiptavinum við útflutning
sjávarafurða á sem skilvirkastan hátt,“
segir Matthías að lokum.
English Summary
Eimskip specialises in the transporta-
tion and handling of temperature-
controlled cargo and services to the
fishing industry. Fishing vessels oper-
ating in the North Atlantic can rely on
full agency services, discharging
services and transport of their
catches from all main ports to buyers
around the world. The dedicated
team that services the fishing industry
is committed to offering high quality,
value-added services tailored to
customers’ requirements.