Ægir - 01.07.2002, Síða 108
106
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Íslyft ehf.
Kársnesbraut 102
200 Kópavogur
Sími: 564 1600
Fax: 564 1648
Netfang: islyft@islandia.is
Þórarinn Sigurjónsson sölustjóri og Gísli V. Guðlaugsson framkvæmdastjóri.
Íslyft ehf. var stofnað 1996 vegna
sölu Yale lyftara og Merlo skot-
bómulyftara. Sala á þessum tækj-
um hófst síðan í janúar 1997. Allar
götur síðan hefur Yale verið sölu-
hæsti lyftarinn, eða síðastliðin 5 ár.
Steinbock-þjónustan ehf. sem á 30
ára starfsafmæli í ár, sér um alla
þjónustu á tækjum frá Íslyft. „Íslyft
er að mestu í eigu sömu aðila og
eiga Steinbock-þjónustuna ehf. og
hjá þessum fyrirtækjum starfa að
jafnaði 15 manns,“ segir Gísli V.
Guðlaugsson framkvæmdastjóri Ís-
lyft ehf.
„Það sem styrkir okkar fyrirtæki er að við
seljum eingöngu lyftara og flestar þær
vörur sem þeim tengjast, semsagt alger
sérhæfing, enda erfitt að dreifa kröftun-
um þar sem um gífurlega samkeppni sé
að ræða.“
Steinbock þjónustan ehf. sér einnig
um viðhald og varahlutasölu í flestar
gerðir lyftara og framleiðir galvanhúðaða
snúninga. Einnig seljum við lyftaradekk
og erum með dekkjaþjónustu. Síðan
1994 höfum við boðið upp á alhliða raf-
geymaþjónustu en við seljum lyftara-
rafeyma frá Midac sem hafa reynst ákaf-
lega vel. Við hjá Steinbock-þjónustunni
ehf. reynum að vera sjálfum okkur nógir
á sem felstum sviðum en meðal annars
gerum við upp rafmótora, stýringar og
fleira. Þá má geta þess að hjá okkur er
að finna landsins mesta úrval af notuðum
lyfturum og hefur það ávallt verið stór
hluti af starfsemi okkar og leggjum við
metnað okkar í að tækin standist þær
kröfur sem gerðar eru til þeirra.
„Á sjávarútvegssýningunni munum við
kynna ýmsar nýjungar. Á bás okkar, sem
er númer C031, munum við sýna bæði
Yale og Merlo skotbómulyftara ásamt
ýmsum öðrum vörum en á útisvæði
munum við sýna nýja gerð Merlo lyftara
sem Samskip/FMN er að fá. Þessi lyftari
lyftir 4 tonnum í 14 metra hæð og er
töluvert breyttur í útliti frá fyrri gerð. Merlo
er með mjög breiða línu og framleiða þeir
lyftara frá 2,6 tonnum upp í 10 tonn og
er lyftihæð allt að 21 metri. Einnig er
hægt að fá vinnukörfu sem getur aukið
vinnuhæð upp í 30 metra,“ segir Gísli.
„Við hjá Íslyft ehf. getum boðið lyftara
frá handlyftivögnum og upp í 50 tonna
gámalyftara. Við leggjum mikla áherslu á
hátt þjónustustig og skjót viðbrögð þegar
viðgerða er þörf og starfsmenn okkar eru
í stöðugri þjálfun og þá aðallega erlendis.
Í vor fóru rafvirkjar okkar í langa þjálfun til
Yale og var þjálfunin aðallega í AC-raf-
kerfinu sem er væntanlegt í flest okkar
tæki.“
„Yale þarf ekki að kynna fyrir þeim
sem eitthvað hafa fylgst með þessum
markaði,“ segir Gísli. „Þeir hafa verið á
markaðnum í yfir 30 ár og síðan við tók-
um við umboðinu hafa þeir verið þeir
söluhæstu. Þennan frábæra árangur get-
um við ekki síst þakkað þeirri miklu
áherslu sem við leggjum á þjónustuna
hjá okkur. Hjá Steinbock-þjónustunni er
floti þjónustubíla og er landið allt þeirra
þjónustusvæði. Við seljum ekki bara lyft-
ara, heldur seljum við heildarlausn sem
felur í sér sölu, þjónustu og endurnýjun.“
„Við vonumst til að sjá sem flesta á
bási okkar á sýningunni og hvetjum við
menn til að koma og kynna sér þá vöru
sem við höfum upp á að bjóða,“ segir
Gísli V. Guðlaugsson að lokum.
Lyftarar af öllum
stærðum og gerðum