Ægir - 01.07.2002, Síða 124
122
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Afltækni ehf.
Barónsstíg 5
101 Reykjavík
Sími: 551 1280
Fax: 552 1280
Vélarrúm í Stíganda VE-77.
MAN B&W Diesel hefur á síðastliðn-
um fimm árum hannað nýjar gerðir
dísilvéla í flokki meðal hraðgengra
dísilvéla. Hin nýja kynslóð MAN
B&W dísilvéla samanstendur af L
16/24, L 21/31 og L 27/38 vélunum,
sem hafa orðið fyrirmynd dísilvéla
af þessari stærð, en þær eru
byggðar á grunni hinna margreyndu
L23 og L28 gerðunum svo og stærri
MAN B&W fjórgengis dísilvélum
Alla tíð síðan fyrsta dísilvélin varð til fyrir
meira en 100 árum, hefur MAN B&W
Diesel verið leiðandi í og unnið að fram-
þróun dísilvélarinnar.
Síðustu áratugina hefur fjöldi mismun-
andi tvígengis- og fjórgengis MAN B&W
dísilvéla verið hannaðar og þróaðar fyrir
markaðinn.
Í framhaldi af því var ákveðið að hefja
hönnun þriggja nýrra dísilvéla á neðra
aflsviði fjórgengisvéla. Markmið hönnun-
arstarfsins var - og er - að þróa nýja dísil-
vél sem uppfyllir kröfur um sparneytni og
áreiðanleika við margskonar notkun.
Til þess að ná þessum þróunarmark-
miðun hefur hönnun vélanna byggst á
nýjustu grundvallarhugmyndum um
hönnun, þar sem notuð hafa verið há-
tækniverkfæri svo sem fullkominn tölvu-
búnaður ásamt viðteknum framleiðsluað-
ferðum. Þessi verkfæri, ásamt þróunará-
ætluninni, hafa gert það mögulegt að
þróa „klæðskerasaumaðar“ lausnir og
skapa þannig nýja hugsun varðandi dísil-
vélar af þessari stærð
Nýju vélarnar þrjár eru framleiddar í
verksmiðjunum í Holeby og Frederiks-
havn í Danmörku og þróunarvinnan hefur
verið unnin í náinni samvinnu staðanna:
• Augsburg, þar sem fjórgengis dísilvél-
ar eru hannaðar
• Holeby, þar sem rafstöðvar fyrir skip
og orkuver eru framleiddar
• Frederikshavn, þar sem fullkominn
framdriftsbúnaðar er framleiddur.
Síðan fyrstu L 16/24 og L 27/38 dísil-
vélarnar komu fram á sjónarsviðið og í
notkun, hefur MAN B&W Diesel fylgst
náið með notkun þeirra. Á grundvelli
þeirrar reynslu sem fengist hefur og á
sömu hugmyndafræði hefur MAN B&W
Diesel hannað L 21/31 dísilvélina sem á
næstu árum munu, ásamt L 16/24 og L
27/38 taka við af hinum margreyndu 23
og 28 gerðum sem hafa staðið sig fram-
úrskarandi.
L 16/24, L 21/31 og L 27/38 dísilvél-
arnar hafa náð að þjóna þörf markaðar-
ins fyrir meðal hraðgengar fjórgengis
dísilvélar frá 450 til 3000kW sem raf-
stöðvar og frá 1200 til 3000 kW sem
framdriftsvélar (aðalvélar í skip). L 16/24
fæst þó aðeins í rafstöðvarútgáfu.
Nýja þrennan frá
MAN B&W Diesel