Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Side 45

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Side 45
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 147 standa vfir, festa búlausir fjárplógsmenn í jörSum lands- ins meira eða minna verðlaust reiSufé sitt, og má sjá bændur i nágrenni landbúnaSarmarkaðarins ganga frá jörðum sínum og afhenda ]iær „með ágóða“ bröskurum og öðrum landníðingum, sem láta þær siðan falla í órækl og auðn, meðan baklúnir einyrkjar í fjarsveitum, gamal- sligaðir undan kaupum á jörð, eru að basla við að fram- fleyta þrem, fjórum kúm til að geta selt nokkra litra af mjólk, sem siðan er fremur kálfasupl en manna- matur, þegar búið er að kjótla henni á markað; og loks viðgengst sú ósvinna, að sérhver kynslóð vinnandi bænda skuli þurfa að kaupa þá jöi’ð, sem þeir erja, kaupa fsland upp aftur og aftur endalaust, og verða að standa meginhluta beztu ára sinna í því að borga það — og eiga það þó aldrei, nema í spotti. Þannig mætti lengi telja. En þótt nokkur vandkvæði kunni að vera á því að tryggja búandi mönnum á íslandi ókevpis afnot landsins um aldur og ævi með einum pennadrætti, eins og gert var til dæmis í Rússlandi með „Tilskipuninni um jörðina“, sem Lenin gaf út liinn 8. nóvember 1917, eru þó áuðfram- kvæmilegar ýmsar ráðstafanir til að nýta landið betur í þágu landsfólksins en nú er gert. Stefna heimsins miðar nú öll í þá átt að hverfa frá sér- eign og einkaauðvaldi til samnýtingarskipulags og sam- virkra hátla, og er styrjöld sú, er nú geisar, undanfari alda- hvarfa í skipulagsefnum. Það er auðvelt að vitna þessu til sönnunar í ummæli helzlu ábrifamanna í stjórnmálum beimsins, ekki síður þeirra, sem liingað til bafa verið kall- aðir íbaldsmenn en liinna frjálslyndari manna. Og sérstak- lega athyglisvert er það, að jafnvel í binu mesta íhalds- landi, Bretlandi, eru háværar raddir uppi meðal þeirra afla, sem þar bafa verið talin einna afturbaldssömust, eins og t. d. ensku kirkjunnar, að séreignarrétt jarðar eigi að afnema, og liafa nokkrir höfuðbiskupar Englands- kirkju gerzt talsmenn þeirrar skoðunar og rökstutt liana í ræðu og riti. Er þetta þeim mun merkilegra, sem kirkjan

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.