Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Blaðsíða 58
160
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
ar sama eða svipuðu lögmáli. Smásmugulegur eltingar-
leikur við aukaatriði eins og lögun fyrirmyndar eyðileggur
hrynjandi þeirra og liæfi til að tjá áhorfandanum kjarna
þeirra hræringa, sem orkuðu sterkast á málarann og
komu lionum kannski einmitt til að velja sér viðfangs-
efnið. Teikningin má ekki heldur fjötrast í hlekki fjar-
víddarkenningarinnar, hún verður að fá að hrevfa sig
frjálst, í samræmi við næmi listamannsins á sérkenni
hins lifanda lífs og listræna hugkvæmni lians. Málverk er
dregið á flöt, línurnar eru eins og litirnir, fyrirhæri, sem
eiga sér stað á þessum fleti, en fjarvíddin á lionum
getur aldrei orðið annað en skynvilla. Þess vegna varð hún
og eftirlikingin að vikja fyrir framrás þeirra afla, sem
efniviður málarans ræður yfir, og þelta var það, sem
gerðist á myndflötum Henris Matisses og lærisveina hans.
Þeir reyndu eklci að draga dul á eðli tækja sinna. Þvert á
móti kemur ljóst fram í verkum Matisses, skýrar en nokkru
sinni fyrr, að þau eru gerð af litum, sem eru festir á lér-
eftið með pensli. Blæhrigði þessara lita eru auðug og tal-
andi, valin af fullri alúð og ósviknum vilja til þess að þau
skýri sem nákvæmast og eftirminnilegast þau áhrif, sem
verkefnið í lieild vakti hjá höfundinum. í myndum Matisses
er öllum atriðum þjappað saman um það, sem fyrir hon-
um var meginkjarni viðfangsefnisins. Andstæðurnar eru í
augum hans tákn lífsins, og allt, sem lifir og hrærist, mikils
um vert. Þess vegna gerir hann sér engan mannamun.
Fyrirmyndir hans eru sjaldnast fagrar hrúður, heldur
manneskjur, og mannlegum sérkennum þeirra nær hann
með þvi að móta þær á myndflöt sinn með andstæðuríkum
h'num og litum, sem lýsa eðli þeirra og umhverfi, á ógleym-
anlegan hátt. Með því að færa lit og línu úr ham eftir-
likingarinnar og sýna, livers þau megna af eigin rammleik,
þjappa viðfangsefnunum saman í skýrar og talandi heild-
ir, sem með óvæntum einfaldleik lýsa fyrirbrigðum úr líf-
inu, án þess að líkja eftir þeim, tekst Matisse í beztu verk-