Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Page 61
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
163
Picasso: Hús í Horta.
liggja þær leiðir, sem verið er að ryðja. Öll höfuðeinkenni
hans eru og greinileg í verkum Piccassos allt fram til síð-
iistu ára. Hinar máttugu línuhreyfingar og ljóss- og
skuggaheildir, sem voru höfuðeinkenni kúbismans, taka
á sig ýmsar myndir i seinni verkum meistarans, lík-
ing manna, dýra og hluta. En hvað sem verk hans
sýna, eru þau alltaf likari höfuðskepnunum en ein-
stökum atriðum náttúrunnar. Og í hverjum smáfleli mynda
hans felst nýtt viðhorf, róttæk endurskoðun hins hefð-
bundna skilnings á hlutunum og listrænni túlkun.
Táknrænt dæmi um viðleitni Picassos og viðhorf er hið
tröllaukna málverk Guernica, sem hann málaði eftir ósk
spönsku alþýðustjórnarinnar og átti að sýna skelfingar
horgarastyrjaldarinnar. Picasso málaði ekki sögulega
mynd, í gömlum stíl, ekki neins konar litaða Ijós-
mynd, sem sýndi einhvern einstakan athurð striðs-
ins, eða kvalir einstaklinga i stríðinu. Hann málaði