Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Blaðsíða 81
Arfur íslendinga að koma út.
í júlí 1939 kom út eitt af litlu heftum Tímarits Máls og menn-
ingar meS svohljóðandi tilkynningu á fremstu síðu:
Nýtt stórvirki fyrir Mál og menningu að leysa af hendi.
RIT UM ÍSLAND OG ÍSLENDINGA, NÁTTÚRU LANDS-
INS, SÖGU ÞJÓÐARINNAR, MENNINGU, BÓKMENNTIR
OG LISTIR verður gefið út 1943. Greinargerð próf. Sig-
urðar Nordals. Ritið heitir ARFUR ÍSLENDINGA.
Margt hefur gengið á siðan. Þessi fregn vakti mikinn upp-
steit i landi. Sömu höfðingjarnir, sem rétt á eftir tóku her-
námi íslands með kurteisi og beygingum, urðu hamstola af ætl-
jarðarást og vígamóði, þegar tilkynningin kom um útgáfu Arfs
íslendinga, rétt eins og sölsa ætti með honum land og þjóð úr
privateigu þeirra, og ráðstafanirnar, sem gripið var til, voru
ekki ósvipaðar því, sem hervæða þyrfti ríkið gegn óvígum fjand-
mannaher. Alþingi myndaði striðsstjórn, hið svokallaða Mennta-
málaráð, fékk henni lykilinn að ríkissjóði og ótakmarkað vald
til herútbúnaðar. Generállinn var Hriflu-Jónas, og liið skæða
vopn, sem hann lét smíða, var bókaútgáfa Menningarsjóðs, liin
þjóðlega, með skjaldarmerki Viktoriu Englandsdrottningar á gunn-
fána sínum. Þessum opinbera vígbúnaði og áhlaupum í blaða-
skrifum fylgdu tilraunir til að spilla fyrir Máli og menningu
hjá þeim stofnunum, sem hún þurfti að skipta við. í ofanálag
kom heimsstyrjöldin með viðskiptahömlum og verðhækkunum.
Rétt er við höfðum fest kaup á pappír í Svíþjóð, réðust Þjóð-
verjar inn í Danmörku og Noreg, svo að samgöngur stöðvuðust
og útvega varð pappírinn að nýju i Ameriku. „Arfur íslend-
inga kemur aldrei út“, þrumdi generállinn frá Hriflu út yfir
landsbyggðina.
En nú er fyrsta bindið af Arfi íslendinga fullprentað á rétt-
um tíma og kemur út í nóvember. Er það ÍSLENZK MENNING
I eftir SIGURÐ NORDAL.
Herförin undir gunnfána Viktoriu gegn Máli og menningu varð
til almenns athlægis í landinu. Ógnanir komu að engu haldi, al-
menningur hlakkaði til að fá rit Sigurðar Nordals, en lét sér
ekki skiljast „þjóðarhættuna", sem af því stafaði. Félagsprent-
smiðjan, sem falin var prentunin, reyndist framtakssöm og traust,
gjaldeyrisnefnd sýndi lipurð og skilning. Gæfumunur hefur orð-
ið: Þjóðstjórnin gamla er sáluð, Hriflu-Jónas orðinn útburður
ulangarðs, Menningarsjóður hefur fengið hryglu fyrir brjóstið —
en Mál og menning lifir og lætur prenta Arf íslendinga i 4000
eintökum liærra upplagi en ráðgert var í fyrstu.