Tímarit Máls og menningar - 01.12.1946, Síða 22
260
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
hafa misheppnazt fram að þessu. Til er fjöldi Sjálfstjórnarmanna
og JafnaSarmanna sem sannarlega vilja frjálsari stjórnskipun en
amtsstöSuna, en vilja þó ekki slíta öll stjórnarfarsbönd viS Dan-
mörku þegar í staS. Fæstir Færeyingar munu hafa hugsaS sér aS
Færeyjar ættu aS stökkva beint úr amtsstöSunni inn í hóp frjálsra
og fullvalda ríkja. Menn hugsuSu sér — eflaust meS ísland í huga
— þróun stig af stigi, sem endaSi á fullum skilnaSi Færeyinga og
Dana, ef til vill eftir mörg ár, þegar Færeyingar væru stjórnarfars-
lega betur viS búnir. En allar þessar vonir brugSust. Danska stjórnin
vildi ekki veita Færeyingum heimastjórn. TilboS hennar var: annaS-
hvort aS fara eSa vera; enginn meSalvegur. Þetta — aS enginn meS-
alvegur var til — fengu Færeyingar ekki fulla vissu um fyrr en um
miSjan júní, þegar lögin um þjóSaratkvæSagreiSsluna voru birt. At-
kvæSagreiSslan átti aS fara fram um miSjan september, svo aS ekki
voru nema þrír mánuSir til umhugsunar.
AtkvæSagreiSslunni var á margan hátt illa fyrir komiS, og þaS
kom einkum niSur á skilnaSarmönnum. Þess má t. d. geta, aS Danir
sem heima hafa átt í Færeyjum fyrir 1940 höfSu atkvæSisrétt, og
vitaS er aS Danir notuSu þennan rétt og greiddu atkvæSi — auS-
vitaS gegn skilnaSi. Sjálfur atkvæSagreiSsludagurinn —-14. sept. —
var líka óheppilegur. Mikill hluti þjóSarinnar var fjarstaddur þegar
atkvæSagreiSslan fór fram, annaShvort á sjó eSa í atvinnu á Islandi.
AS vísu hafSi allt þetta fólk atkvæSisrétt, en þaS er gömul reynsla,
aS áhugi manna á kosningum er minni þegar þeir eru fjarstaddir
og geta ekki fylgzt meS í umræSum sem á undan ganga. Og þegar
bændurnir eru ekki heima fara húsfreyjur ekki á kjörstaS, aS því er
kunnugir halda fram. Auk þess vildi svo illa til aS mörg atkvæSi frá
íslandi komu of seint til Færeyja til aS ná í úrslit. Allt þetta fækk-
aSi skilnaSaratkvæSunum, því aS þaS eru framar öllu sjómenn og
annaS fjarstatt fólk sem eru skilnaSarmenn.
Þegar stjórnskipunarmáliS var rætt í Lögþinginu í vor vildi eng-
inn flokkur gera skilnaS aS flokksmáli. ASeins tveir þingmenn héldu
fram skilnaSi, þeir Jóannes Patursson og jafnaSarmaSurinn Jákup
í Jákupsstovu. Allir hinir þingmennirnir töldu sig andvíga fullum
skilnaSi. Rikard Long, sem er formaSur tveggja manna sjálfstjórn-
arflokks á þingi, baS menn í blaSi sínu gera atkvæSaseSla sína ógilda