Tímarit Máls og menningar - 01.12.1946, Qupperneq 25
ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLAN í FÆREYJUM
263
Ákvæði þessa frumvarps eru einföld og fá. Löggjafarvaldið verð-
ur í höndum Lögþingsins, ásamt fjárráðum og æðstu umsjón al-
mennra landsmála. Framkvæmdavaldið er falið fimm manna stjórn
sem Lögþingið skipar, og hefur hún það vald sem ráðherrar og
amtsstjórn hafa farið með hingað til. Embættisstofnanir sem nú eru
halda áfram þangað til færeyska landsstjórnin hefur tekið við valdi
þeirra. Samkvæmt frumvarpinu skulu bráðabirgðaákvæðin frá 9.
maí 1940 falla úr.gildi, en eftir þeirn hefur landinu verið stjórnað
á stríðsárunum. Annars skulu önnur lög, tilskipanir og réttarreglur
haldast í gildi framvegis þar sem unnt er án þess að það brjóti í
bága við nýju stjórnskipunina.
Dctnir skerast í leikinn
Sama daginn sem þetta frumvarp var lagt fram í þinginu, 24.
sept., heyrðust þau tíðindi í danska útvarpinu að danska stjórnin
hefði rofið Lögþingið og boðað til nýrra kosninga. Formaður Lög-
þingsins fékk þó enga tilkynningu um þetta fyrr en seint á næsta
degi (frá danska amtmanninum), og þingrofið var ekki birt fær-
eysku þjóðinni fyrr en 26. sept. (í danska blaðinu Dimmalætting).
Sjónarmið dönsku stjórnarinnar var lagt fram í bréfi frá amt-
manninum. Það var í stuttu máli þetta: að Lögþingssamþykktin um
að stofna færeyskt ríki væri skýlaust brot á 18. gr. dönsku stjórnar-
skrárinnar, að þjóðaratkvæðagreiðslan hefði hvorki í för með sér
nýja ríkisréttar- eða þjóðréttarstöðu Færeyjum til handa, né heldur
veitti Lögþinginu heimild til að gera slíka einhliða nýskipun, að
slik einhliða ákvæði væru ólögleg, að engar breytingar yrðu gerðar
áii sanminga milli Lögþingsins og dönsku ríkisstjórnarinnar, að Lög-
þingssamþykktin á gerðabókinni um landsforræði í Færeyjum væri
ógild, að Lögþingssamþykktin 21. sept. væri sömuleiðis ógild, að
embættisstofnanir sem skipaðar væru eftir þeirri samþykkt væru
ólöglegar og hefðu ekkert framkvæmdavald.
Með þessum orðum rauf danska ríkisstjórnin þingið. Föstudag-
inn 27. sept. átti að vera þingfundur, en aðeins einn þingmaður
— Jákup í Jákupsstovu — mætti á fundi, svo að ekki varð af fund-
arhöldum. Lögþingið var farið heim.