Tímarit Máls og menningar - 01.12.1946, Page 29
BJORN FRANZSON:
LYÐRÆÐI
Upphaf þessarar ritgerðar birtist í síðasta hefti Tímaritsins.
Yfirstéttarlýðræði — yfirstéttaralræði
Orðið borgaralýðræði er í raun og veru mjög óheppilegt að því
leyti, að það stuðlar að varðveizlu þeirrar blekkingar, að stjórn-
málaskipulag það, sem orðið á að tákna, sé raunverulegt lýðræðis-
skipulag, en eins og kunnugt rnætti vera, er það einn megintilgang-
ur borgaralegs stjórnmálaáróðurs að varðveita þessa blekkingu. Það
eru einkanlega tvær ástæður, sem því valda, hversu áhrifaríkur þessi
blekkingaáróður hefur getað reynzt. Önnur er sú, að menn gera sér
yfirleitt ekki ljóst, að lýðræði er ekki síður efnahagslegt hugtak en
pólitískt, og því getur ekki átt sér stað raunverulegt lýðræði í auð-
valdsþjóðfélagi, þar sem ekki er ríkjandi neitt efnahagsjafnrétti, -—
þar sem fáeinir eru auðugir, en fjöldinn snauður. Hin höfuðástæð-
an er sú, að hið pólitíska lýðræði, sem einblínt er á, sýnist annað
og meira en það er í raun og veru. Það, sem þessari missýningu veld-
ur, er einkum og sér í lagi sú ómótmælanlega staðreynd, að innan
yfirstéttarinnar sjálfrar er ríkjandi allsæmilegt lýðræði. Reyndar
er yfirstéttin engan veginn fullkomin hagsmunaheild, en milli hinna
ýmsu deilda hennar eru þó engar óyfirstíganlegar hagsmunaand-
stæður, svo að þær geta yfirleitt komið sér saman í öllum meginat-
riðum, eins og áður er að vikið. Sameiginlegir stéttarhagsmunir
þessara deilda krefjast þess meira að segja beinlínis, að þær komi
sér saman um öll höfuðmálefni, ef bægt á að verða frá garði hætt-
unni á því, að alþýðan taki þjóðfélagsvöldin og afnemi allt stétta-
misrétti í eitt skipti fyrir öll. Borgaralýðræði er því að vísu réttnefni
í þeim skilningi, að það er raunverulegt lýðræði borgarastéttar-
innar. Það er með öðrurn orðum raunverulegt yfirstéttarlýðræði