Tímarit Máls og menningar - 01.12.1946, Qupperneq 44
282
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
raunverulegt lýðræði verður að koma á stéttlausu, sósíalísku þjóð-
félagi.
Hið sósíalíska lýðræði, sem því þjóðfélagi tilsvarar, er raunveru-
legt. Fyrst og fremst er það, að í sósíalísku skipulagi er í gilcfi
fyllsta efnahagslýðræði, sem framkvæmanlegt er vegna afnáms stétta-
andstæðnanna. En efnahagslegt lýðræði er í því fólgið, að hin starf-
andi þjóð á sjálf og ræður yfir öllum framleiðslutækjum samfé-
lagsins og öðrum verðmætum, en ekki fámenn eignastétt. I þjóðfé-
lagi sósíalismans verður afnuminn eignarréttur einstaklinga á stór-
um framleiðslutækjum, en í staðinn kemur sósíalískur eignarréttur.
Hinn sósíalíski eignarréttur getur verið tvenns konar: Fram-
leiöslutækin eru annað hvort alþjóðareign ellegar þau eru í eigu
samvinnu- og samyrkjufélaga hins starfandi fólks. Landið og jarð-
arauðæfin, námur, fossar og verksmiðjur, bankar, samgöngulæki,
póstur, sími og útvarp verða ríkiseign, það er eign alþjóðar, þar
sem ríkisvaldið verður þá raunverulega i höndum þjóðarinnar allr-
ar, en engrar sérstakrar stéttar. Hins vegar geta til dæmis samvinnu-
félög sjómanna og samyrkjufélög bænda átt útgerðarfyrirtæki eða
samyrkjubú ásamt afrakstri þeirra. Auk þess verður svo auðvilað
til séreignarréttur hvers einstaklings á íbúðarhúsi handa sér og fjöl-
skyldu sinni ásamt húsmunum og öðrum nauðsynjahlutum, alidýr-
um, handiðnaðartækjum og svo framvegis. Engum sósíalista hefur
nokkru sinni komið til hugar, að afnema bæri eignarrétt manna til
persónulegra nauðsynja. Sósíalisminn mun einmitt tryggja það, að
allir menn geti eignazt allar þær persónulegu nauðsynjar, er þeir
þarfnast miðaö við kröfur hvers tíma. I þjóðfélagi sósíalismans
verða aðeins afnumin skilyrði þess, að einstaklingur geti átt fram-
leiðslutæki, er séu þess eðlis, að eigandinn verði að hafa launa-
vinnumenn í þjónustu sinni og geti hagnazt af vinnu þeirra. Þar
verður með öðrum orðum numið úr gildi allt arðrán manns á
manni. Arður þjóðfélagsfrandeiðslunnar skiplist milli þegnanna
samkvæmt þessari grundvallarreglu sósíalismans: Menn starji eftir
hœfileikum sínum og beri úr býtum eftir starji sínu. En svo himin-
hátt sem þessi grundvallarregla er að þjóðfélagslegu réttlæti hafin
yfir arðskiptingarlögmál stéttaþjóðfélagsins, þar sem ein stéttin
eignar sér arðinn af vinnu annarra stétta, þá mun hún þó, áður