Tímarit Máls og menningar - 01.12.1946, Blaðsíða 49
LÝÐRÆÐI
287
istaflokka og kommúnistaflokka um það, að slíkt komi ekki til mála
að til skildu fyrr greindu skilyrði.
Vilji borgaraflokkarnir hlíta leikreglum borgaralýðræðisins, eft-
ir að þeir eru komnir í algeran minni hluta á þingi að samanlögðu,
er ekkert því til fyrirstöðu, að þeir fái að halda áfram að starfa sem
andstöðuflokkar. Tilgangur hins sósíalíska flokks með valdatöku
sinni er það að afnema þá kúgun, sem yfirstéttin beitir alþýðuna,
en engan veginn hitt að beita yfirstéttina sjálfa sams konar kúgun.
Tilgangurinn er að afnema forrébtindi yfirstéttarinnar, en ekki að
svipta liana lýðræðislegu jafnrétti. Og þess verður að minnast, að
sósíalisminn er ekki framkvæmdur á þeim degi, er raunverulegur
sósíalistaflokkur nær meiri hluta á þingi. Það hijóta að líða ár,
fleiri eða færri eftir atvikum og ástæðum, áður en talið verði, að
sósíalískt skipulag sé komið á í hlutaðeigandi landi. Sjálft form
stjórnmálalýðræðisins hlýtur að haldast lítið breytt fyrst í stað,
þó að þetta innihaldslitla borgaralega lýðræðisform muni smám
saman fyllast raunverulegu lýðræðisinnihaldi. Gömlu yfirstéttar-
flokkarnir munu því vissulega fá að starfa óáreittir, á íneðan þeir
fara að lögum.
A þessu tímabili gerist hins vegar það, að öll meiri háttar fram-
leiðslutæki samfélagsins verða þjóðnýtt á þann hátt, sem fyrr er
að vikið, auðmagnið dregið úr höndum auðstéttanna og tekið til
samfélagsnytja. Þar með er grundvellinum kippt undan yfirstéttun-
um gömlu, og þær hverfa af sjálfum sér. En þar með hljóta stjórn-
málaflokkar þeirra líka að hverfa af sjálfum sér, þegjandi og hljóða-
laust. Flokkana þarf ekki að banna fremur en stéttirnar. Samkvæmt
óhagganlegri nauðsyn náttúrulögmálsins hljóta þeir að deyja út,
með því að sjálft tilveruskilyrði þeirra, stéttaskipting þjóðfélags-
ins, er úr sögunni. Verklýðsflokkarnir, flokkar hins sósíalíska skipu-
lags, deyja út eigi síður en borgaraflokkarnir, vegna þess að öreiga-
stéttin, hin undirokaða stétt, hverrar sérhagsmuni þeir voru sér-
staklega skapaðir til að rækja, hverfur úr sögunni eigi síður en
yfirstéttin.
Og þar með eru nú sköpuð skilyrði til fyllsta stjórnmálalýðræð-
is í þjóðfélaginu. í stað stjórnmálaflokkanna munu koma ýmisleg
samtök almennings svo sem samvinnufélög, æskulýðsfélög, íþrótta-