Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Side 19
BJORN ÞORSTEINSSON
Sagnfræðin og þróun hennar
Heiti fræðigreinarinnar
ÍSLENZKU hefur orðið saga mjög
víðtæka merkingu; það er auð-
vitað skylt sögninni að segja og tákn-
ar hvers konar frásögn eða sögur, allt
frá lygisögum, þjóðsögum og eldhús-
reyfurum til jarðsögu, þjóðarsögu og
mannk)Tissögu. En einnig getur orðið
saga merkt sjálfa atburðarásina, sem
frá er skýrt, söguefnið; t. d. „sögðu
þeir alla sögu, sem gengið hafði yfir
þá“; .. . „var hann þá mjög hniginn
á efra aldur, er sú saga gerðist.“ —
Einnig eru til samsettu orðin: sagna-
maður, sagnameistari, sá sem kann
margar frásagnir, segir þær eða skrá-
setur, er fræðaþulur; - sagnaskemmt-
an, að skemmta með sögum. Orðið
saga merkir því atburðarás eða frá-
sögn af einhverju, sem gerzt hefur
fyrir löngu eða skömmu eða mun
gerast, eða menn ímynda sér að hafi
eða geti gerzt. Merking íslenzka hug-
taksins saga dregur taum frásagnar-
listarinnar, en höfðar síður til at-
burðanna, sem fjallað er um. Skýr-
greiningar og lýsingar á fyrirbærum
eru ekki saga í íslenzkri málvitund,
við tölum ekki um dýrasögu eða
grasasögu, heldur fjöllum um dýra-
og grasafræði; með öðrum orðum er
munur á hugtökunum fræði og saga.
Ritgerð um rannsókn og leit að frum-
gerð Gamla sáttmála er ekki saga, hve
Iöng og ýtarleg sem hún er. Sama er
að segja um ritgerð um fæðingarár
Jóns biskups Arasonar; enginn
mundi segja, að hann væri að lesa
sögu, væri hann staðinn að því að
lesa slík fræði, heldur segðist hann
vera að lesa sagnfræði eða sagnfræði-
ritgerð. í báðum þessum dæmum er
fjallað um einstakar staðreyndir,
báðar eru liðir í atburðarás; Gamli
sáttmáli á að baki sér langan þjóðfé-
lagslegan aðdraganda; sú atburðaröð
er saga, en hins vegar er erfiðara að
skrá sögulegan aðdraganda að fæð-
ingu Jóns Arasonar. Það er einstakur
atburður, og það skiptir nokkru máli
að vita hið rétta ártal, en fæðing
manna er engin saga í sjálfu sér; það
er fróðleikur að vita slíka hluti, en
ekki saga. í íslenzku merkir saga því
atburðaröð eða frásagnir af slíkum
atburðum, en hvorki einstaka atburði
TÍMARIT MÁLS OC MENNINCAR
257
17