Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Síða 23

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Síða 23
SAGNFRÆÐIN OG ÞRÓUN HENNAR aria, þ. e. a. s. rannsókn á því, hvað merkast hafi gerzt á Islandi og hve- nær þeir atburðir hafi orðið. Það er eftirtektarvert, að íslendingabók hef- ur aldrei verið nefnd saga; ritið er víðast í svo knöppu sniði, að þannig hafa menn aldrei sagt sögu, en hins vegar er þar safnað saman í tímaröð minnisverðum atburðum, með öðrum orðum atburðum, sem hafa snert líf þjóðarinnar að meira eða minna leyti; slíka atburði telur Ari að beri að skrá i þjóðarsögu. Slíkir atburðir hafa gerzt með öllum þjóðum og geymzt í minni um langan aldur, þótt menn kynnu ekki að færa þá í letur. Annað rit íslenzkt, sennilega runnið að stofni frá Ara fróða, er svipaðs eðlis og hefur aldrei verið nefnt saga, en það er Landnáma, en hún hefur að geyma frásagnir af um 400 mönnum, sem námu hér land. Landnáma er historia eða rannsókn á því, hver fyrstur nam land í hverju héraði, hvaðan hann kom, og hverjir séu helztu afkomendur hans, auk margs konar annars fróðleiks. Þegar Land- náma er skráð, eru tvö til þrjú hundr- uð ár liðin frá atburðum þeim, sem þar greinir frá, en þó er ástæðulaust að ætla, að ritið sé ekki sannfrótt að mestu leyti. En hvers vegna muna menn slíkan fróðleik, og hvers vegna er hann talinn svo merkur, að hann er festur á bókfell? Þeim spurningum treysti ég mér illa að svara. Landnám- ið sjálft er svo mikilvægur atburður, að hann hlaut að vera íbúum hvers héraðs minnisstæður um langan ald- ur, en það eitt nægir ekki til þess að öllum þessum fróðleik sé safnað í eina heild á bókfell. En fátt er svo sér- stætt, að það eigi sér ekki hliðstæðu, sem geti varpað ljósi á það. Nýja Sjáland er talið líkjast mjög íslandi að landslagi, en skammt mun sú líking ná til skýringa á því, að Maoriar, sem bjuggu þar, er hvítir menn komu þangað, á 18. öld, eiga sér eins konar landnámu. Maoriar komu frá Tahiti um 1350 og settust að á Nýja Sjálandi. Maoriar voru menn mjög ættfróðir, og hjá hverri ættsveit þeirra voru stórlærðir ættfræðingar, sem kunnu að rekja ættkvíslir ætt- sveitarinnar margar aldir aftur allt til landnámsmanna og jafnvel aftur til guðanna. Þótt ættartölur þessar hefjist á goðsögnum í forneskju, er meginhluti þeirra sagður mjög ná- kvæmur og áreiðanlegur. Inn í þessar ættarskrár er fléttað frásögnum af af- reksverkum forfeðranna og einkum sögnum um sjóferðina miklu frá Ta- hiti til Nýja Sjáland, en staða manns í samfélaginu fór að nokkru eftir því, hvaða starfi forfaðir hans gegndi á skipinu, sem flutti landnemana vfir hafið. Þær forsendur liggja til þess, að Landnáma Maoria hefur varð- veitzt í munnlegri geymd um aldarað- ir. Þar komum við að þeim kjarna sagnfræðinnar, að hún er nytsöm fræðigrein og hefur gildi fyrir sam- 261
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.