Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Side 40

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Side 40
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ar við getum hyllt með nafni þau hundruð manna og kvenna sem hafa unnið í skugganum, en án þeirra hefði okkar litli forustuhópur aldrei megnað að gera neitt. II Sumir hugsuðir dagblaða eða viku- blaða hafa þótzt sjá í mér „kreddu- meistara“ hjálparsamtakanna. Málið er hinsvegar þannig vaxið, að raun- veruleg aðstoð við Alsírmenn var mér fyrst og fremst eina hugsanlega af- staðan, einmitt þar sem leiðtogar vinstrimanna voru ekki lengur annað en kreddumeistarar er lögðu sig í framkróka með að hylja Alsírvanda- málið bak við kenningar sem þeir fyrirhuguðu ekki einu sinni lengur að gera einhverntíma að raunveruleika. Því aldrei hefur skort meginreglur hjá þessum vinstrimönnum, hvorki á sviði sósíalisma né kristni; þar var til staðar hinn ósveigjanlegi marxismi og hinn algeri kærleikur; því miður var það ekki nema hugmyndalega. Vitaskuld á ég hér við vinstristefnu þá sem haldið er á loft fyrir almenn- ingi: stefnu forustumannanna, leið- toganna og nánar tiltekið „flokksvél- anna“. En nauðsyn daglegra starfa færði okkur skjótlega heim sanninn um það, að ástandið undir niðri, „við ræturnar“, var engan veginn sama og „uppi á tindunum“. Eftir reynslu okk- ar á síðustu þremur árum getum við 1 Þann dag hófst uppreisnin í Alsír. dregið þá ályktun, að þótt seinlega hafi gengið að skrá menn til þátttöku í samtökunum, hefur það ekki stafað af skorti á mönnum, sem reiðubúnir væru að láta skrá sig, heldur af erfið- leikunum við að finna þá og ná til þeirra, og hef ég þá í huga lágmarks- öryggisskilyrði, svo og þau aðkall- andi mál sem við höfum stöðugt orð- ið að sinna, þannig að við höfum ver- ið of hlaðin störfum til að geta hafið verulegt útbreiðsluátak. Ég hef sagt hér að framan, að verk- efni okkar var að hrinda í fram- kvæmd grundvallaratriðum þeim sem franskir vinstri menn héldu á loft — bæði kommúnistar og ekki kommún- istar. En á vissan hátt verður þessi skýrgreining á starfi okkar helzti ó- hlutlæg: ég á við það, að hinar raun- verulegu hvatir koma ekki fram og eru ekki meðvitaðar í svo afmörkuðu formi. Þar hefur vitaskuld verið um að ræða gífurlegan fáránleik og tíma- villu þessa stríðs, sem var fyrirfram tapað og menn mundu einhverntíma verða að afneita opinberlega einsog orðið hafði að afneita opinberlega stríðinu gegn Vietnamstjórninni. Þar var sömuleiðis um að ræða glæpsam- lega þrjózku afturhaldsaflanna, sem löngu fyrir fyrsta nóvember 19541 höfðu safnað saman í Alsír ótakmörk- uðum efnivið í lokasprenginguna: einkum í hinum villimannlegu stór- 273
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.