Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Blaðsíða 50

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Blaðsíða 50
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR vinstriöflunum velkunnugt um. Því þau hafa alltaf verið jafn skarp- skyggn, enda þótt skarpskyggni þeirra hafi sjaldnast leitt til athafna. Sumir börðu sér á brjóst og sögðust ekki gera það sem þeim hefði borið að gera; en geta menn sem eru fúsir til að iðrast og fljótir að lýsa sig seka orðið hæfari fyrir það til að taka á sig þá ábyrgð sem þeim ber? Aðrir mynduðust við að gagnrýna sjálfa sig, en skelltu síðan skuldinni fljót- lega á alþýðuna: þeir voru ósannir marxistar og sannir pósitívistar og kenndu henni um ávirðingar sjálfra sín ... Þannig skýrist orðhengilshátturinn sem fram kemur í dómum vinstri- manna um byltinguna í Alsír. Alsír- búar kölluðu sig þióðernissinna og sögðust ekki vera marxistar, þeir báru sér ekki í munn nein lykilorð sósíal- ismans. Þar með var málið lagt til hliðar. Lifandi sósíalismi, starfandi marxistar hefðu ekki farið þannig að, því þeir hefðu ekki þurft annað til að glöggva sig en bera fram nokkrar beinskeyttar spurningar, og rannsaka staðreyndirnar ekki út frá kenningu sem er storknuð í hugtökum, ekki samkvæmt neinni skólaspeki, heldur með hugann við starf mannanna sem er andsvar við ytri nauðsyn. Þá hefðu þeir fljótlega uppgötvað a) að athafnir Alsírbúa voru vissu- lega í tengslum við þarfir þeirra: þegar þjóð heldur til streitu baráttu sem bakar henni aðrar eins þjáning- ar, þá er óhætt að trúa því að það er ekki af tilviljun eða stundaræsingu, heldur af því að hún hefur fundið að það er henni lífsnauðsyn; b) að þjóðernisstefnan og krafan um sjálfstæði var frumþörf og eina færa leiðin fyrir þjóð sem hafði ver- ið kúguð sem stétt og sem þjóð,hvort- tveggja í senn; c) að efnahagsástandið í Alsír rétt- lætti ekki aðeins eindregna andstöðu Alsírbúa gegn nýlenduvaldinu, held- ur neyddi þá ennfremur til að semja hugmyndir sínar um uppbyggingu landsins að ákveðinni áætlun og á- kveðnu þjóðskipulagi. Nú er hið þjóðlega tímabil bylting- arinnar á enda, þjóðin hefur fundið sjálfa sig, og hún veit að sjálfstæðið er aðeins áfangi á lengri leið. Og hún er þegar farin að hugsa um næsta tímabil: tímabil hinna félagslegu markmiða byltingarinnar. Hvernig kæmist hún hjá að íhuga það? Þar er um dauðann eða lífið að tefla. Hún mun aldrei fá erlendis (hvorki frá Frakklandi né öðrum löndum) þær fjárupphæðir sem gerðu henni kleift að leysa hin efnahags- legu vandamál tilveru sinnar: hún hlýtur því að búast til að leysa þau með vinnu sinni. En það þýðir að hún mun ekki sætta sig við neitt hálfkák, við neinn milliveg. Lengi hafa menn haft á- hyggjur út af „óbilgirni“ Þjóðfrels- X 288
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.