Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Page 67

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Page 67
UNGINN því ekki einu sinni sjálfur obersturmbannfuhrer og unterscharfiihrerarnir hans tveir. Börnin urðu eftir í hnapp á torginu og beinaber hjúkrunarkona færði þeim mjólkurglas. Þau voru tuttugu og sjö, þar af sex Marsenkur, fimm Honzar, fjórar Steinkur, þrír Pepíkar, tvö af hverju hinna. Og ekki nema ein Kata. „Marsenka,“ sagði Kata við beztu vinkonu sína, sem hún þekkti á skælun- um, „hættu að skæla, Marsenka, mömmurnar okkar skruppu bara í bæinn og koma aftur fyrir mat.“ „Eg veit það vel, asni,“ sagði Marsenka og saug nú bara uppí nefið. „Kat- sénka, brann líka hjá ykkur?“ „Það brann hjá okkur strax á eftir hreppstj órahúsinu,“ svaraði Kata stolt þó hún hefði sofið af sér byrjunina á brunanum. „Marsa, veiztu, ég sá pínu- litla kisu og hún var, skal ég segja þér, öll mórauð.“ „Akvurju fóru mömmurnar allar saman?“ sagði Marsenka. „Kannske þær komi með eitthvað að gefa okkur öllum saman. Hvað vilt þú fá, Marsa? „Mig langar í hjartaköku og rauða skó.“ „Mig langar í soldið herbergi með skáp,“ sagði Kata, „og að pissa. Ég ætla að hlaupa niðrí runna og kem strax aftur.“ Um leið og hún hvarf í kjarrið komu tveir Mersedesbílar með skotheldum gluggum. Stórvaxinn maður tók við skipun, annar rak svipu í glóandi bjálk- ana og sá þriðji, líklega æðsti yfirmaðurinn, sagði önugur: „Was machen denn noch die Kinder hier? Die sollen zuerst weggeschafft werden.“ Háum herrum nægir að segja setningu. Næsti Steyervagn kom strax, lét út tréstiga og tuttugu og sex böm príluðu uppí hann í flýti. Þau voru hætt að gráta nema þau elztu, þeim yngri þótti gaman að fara í bíl, og það svona stór- um bíl, að maður komst ekki uppí hann nema í stiga. Þau voru hljóð og ánægð, og þau sem haft höfðu garnagaul gleymdu því óðara. Þau settust undir stóran, grænan segldúk og beinabera hjúkrunarkonan lýsti snöggvast á þau með vasaljósi. Hvar skyldi nú bjáninn hún Kata vera, hugsaði Marsenka með sér, en þagði, því hún vissi ekki hverjum hún ætti að segja það. Kata sat á hækjum sér í birkirunnanum og þegar hún varð þreytt á að sitja lagðist hún í mjúkt grasið og sofnaði. Hana dreymdi undarlegan draum um stóran vörubíl, sem kom og útúr honum sté agnapínulítill, gulur hænuungi. TÍMARIT MÁLS OC MENNINGAH 305 20
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.