Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Blaðsíða 72

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Blaðsíða 72
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ólmaðist enn meir. Hann teygði úr sér og hnipraöi sig saman og spyrnti fót- unum í mjóa endann en höfðinu í þann breiða. Endarnir héldu en miðjan lét undan. Skurnin datt í sundur og nýr ungi var kominn í heiminn. Hann var rytjulegur og blautur og hafði ekki hugmynd um hvar hann var. „Velkominn í þorpið okkar, ungi litli,“ sagði Katsénka, „en hér eru engar hænur. Ég skal gagga fyrir þig sjálf svo þú vitir hvernig lætur í þeim. Svo skal ég gala líka, það kann ég svo vel.“ Og svo gaggaði hún og galaði reglulega vel fyrir ungann, og unginn reis á lappirnar og varð enn rytjulegri. „Ungi litli,“ sagði Katsénka, „ég skal koma að leika við þig. Ég skal segja þér allt, og þú segir mér allt. Hér er enginn nema við, og mamma kemur ekki heim fyrr en um hádegi. Geturðu ekki látið mig vita, Marsenka mín, þegar hádegið er komið?“ „Bráðum,“ svaraði Katsénka sér hvellt eins og hún ímyndaði sér að unginn talaði. „Veiztu, Katsénka, að ég er svo fegin að vera komin í heiminn. Mér var farið að leiðast svo inní skurninni.“ „Þú mátt hafa þessa peysu,“ sagði Katsénka, „en farðu bara ekki langt í burtu. Ertu ekki svöng, Marsenka mín ? Hérna á ég barasta hvítlauk.“ „Hann brennir,“ tísti Marsenka, „svo er ég heldur ekkert svöng. Mig langar bara í vatn að drekka, ég varð svo þyrst af þessu banki í skurnina.“ Og Kata bar Marsenku að dælunni og gaf henni að drekka úr lófa sínum. En unginn drakk ekkert og fór að læra að ganga. Fótleggirnir voru grannir og hann datt oft. Þegar hann var ögn farinn að geta gengið fóru þau út að spásséra. Unginn varð fljótt lúinn og Katsénka sagði við hann: „Ég skal bera þig, Marsenka mín, nú kanntu að ganga og gleymir því ekki aftur. Og ef þig vantar eitthvað þá láttu mig vita.“ Svo gengu þau kringum torgið og Katsénka sagði: „Sko, Marsenka, sjáðu sólina. Það er komið hádegi. Nú skulum við koma á móti mömmu. Ósköp verður hún glöð að sjá okkur.“ Fyrst gengu þau veginn en sveigðu svo út í akurtroðning og hurfu inní grasið. Katsénka át eitt epli og gaf Marsenku kjarna. Marsenka goggaði í hann en var ósköp lystarlaus. „Þú mátt ekki leyfa, krakki,“ sagði Katsénka, „við erum ekki það efnuð að við getum verið með matvendni.“ Golan strauk þeim og sólin kyssti þau. Þau settust á lækjarbakka undir stór- um, gömlum víði og horfðu á vatnið. Þar flaut ofurlítill bátur, ólögulega tálg- 310
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.