Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Blaðsíða 74
GUNNAR BENEDIKTSSON
Nýir ávextir og aldin rót
Nokkrar tilfallandi hugleiðingar um Ritgerðir eftir Þórberg Þórðarson
I
borðinu fyrir framan mig hef ég rit-
dóm. Hann er 42 blaðsíffur, hver blað-
síða er 34 línur og í hverri línu 62 stafir og
stafabil. Alls eru því um 88500 stafir og
stafabil í þessum eina ritdómi. Bókin, sem
er ritdæmd svona rækilega, er 324 blaðsíður
með leturfleti 18x10,8 sentimetrar. Hér er
ekki um að ræða neina nýja útgáfu ein-
hvers klassisks rits, þar sem mikillar ná-
kvæmni þarf með í dómum, svo að ekkert
verði eftir skilið, hvorki af því, sem máli
skiptir, né hinu, sem engu máli skiptir.
Þetta er næsta hversdagsleg bók, ein af
hundruðum, sem koma nýjar á íslenzkan
bókamarkað á ári hverju, um sams konar
efni og margar aðrar bækur og rituð af
mjög svo venjulegum manni.
Hvað veldur þessari ógnarvinnu, sem
lögð er í að ritdæma þessa einu bók? Ef
maður grípur niður í ritdóminn einhvers
staðar af handahófi, þá gæti manni dottið í
hug, að bókin væri með þeim endemum lé-
leg bók, að einn vandlátur bókmenntamað-
ur hafi orðið yfir sig reiður út af því að
láta bjóða þjóð sinni slíkt afstyrmi og
strengt þess heit í hjarta sínu að ganga svo
frá bókinni, að þar stæði ekki steinn yfir
steini. Þau einkenni hókarinnar, sem ritdóm-
arinn dvelur einkum við, heita á hans máli:
SKALLAR, UPPSKAFNING, LÁGKÚRA
og RUGLANDI. Þá er einnig sérstakt fyrir-
bæri, samruni uppskafningar og lágkúru í
eina heild.
Umsagnir um skalla grípa yfir tæpar
þrjár blaðsíður. Skalli heitir það, þá er
kyrrt er látið liggja um atriði, sem nauð-
synleg eru til að full og greinileg mynd fá-
ist, og eru upp talin mörg og skýr dæmi um
þess háttar vantanir í frásögn höfundar. En
uppskafningin tekur miklu meira rúm eða
nærri tólf blaðsíður. Einkenni uppskafning-
ar, sem beygist eins og kerling, „í rithætti
er hofróðulegt tildur og tilgerð, skrúf og
skrumskælingur, í hugsun, orðavali og sam-
tengingu orða“.
Og dæmin um þennan sjúkdóm í hinni
dæmdu bók eru talin fram, ekki aðeins í
tugatali, heldur skipta þau hundruðum, og
þó er það látið skína í gegn, að þau eru að-
eins tekin sem sýnishom. Af einni blaðsíðu
em tilfærð 16 dæmi einnar tegundar upp-
skafningar og af annarri blaðsíðu 21 sömu
tegundar, en tegundir uppskafningar eru
fjöldamargar og sumar mjög ægilegar í eðli
sínu. En dæmda bókin er ekki eins gróm-
tekin af þeim.
Lágkúru einkennir dómarinn „sem lág-
kúrulegt og sviplaust málfar yfirleitt. Þar í
er fólgin klaufaleg orðaskipun, kauðskt
orðalag og kauðskar orðmyndir, ónákvæm
og geigandi beiting orða, linjuleg orð og
orðasambönd, þar sem þróttur hæfir betur,
fábreytilegur orðaforði, endurtekning sömu
atkvæða, orða, orðasambanda og setninga-
forma með stuttu millibili, þegar ekki er
um mælskusnilld eða listrænar nauðsynjar
að ræða, hljómlaus og mglingsleg hrynj-
312