Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Blaðsíða 82
Erlend tímarit
GEGN HERNAÐARSTEFNUNNI í VESTUR-ÞÝZKALANDI
Eftirfarandi ávarp birtist 5. sept. sJ. í
„Konkret“, óháðu tímariti um menn-
ingu og stjórnmál, sem er gejið út af stúd-
entum við háskólann í Hamborg, og kemur
út tvisvar í mánuði.
Undirbúningsnefnd „Baráttusamtaka
gegn atómdauða“ gaf út ávarp í Frankfurt
þann 10. marz 1958:
„Brytist út stríð milli austurs og vesturs
eru Þjóðverjar beggja vegna markalínunn-
ar ofurseldir vísum atómdauða. Við því er
engin vöm til. Þátttakan í vígbúnaðarkapp-
hlaupinu og afsal þýzks lands undir kjarna-
vopnastöðvar eru ekki til annars en að auka
á þessa hættu.
Inntak allra þýzkra stjórnmála verður því
að vera það að draga úr spennunni milli
austurs og vesturs. Það er eina leiðin til að
tryggja öryggi þýzku þjóðarinnar og til-
veru frjáls og lýðræðislegs Þýzkalands.
Við skorum á þing og ríkisstjóm Sam-
bandslýðveldisins að taka í engu þátt í víg-
búnaðarkapphlaupi með kjamavopn, en
þvert á móti að styrkja með ráðum og dáð
kjamavopnalaust svæði í Evrópu, til þess
að draga úr spennunni. Við skoram á alla
þýzka þegna, án tillits til stöðu, trúar eða
stjómmálaskoðana, að mótmæla þessari
lífshættulegu vígbúnaðarstefnu og krefjast
þess að stefnt verði í átt til friðsamlegrar
þróunar.
Við munum ekki þagna svo lengi sem
atómdauðinn ógnar þjóð vorri.“
Þetta ávarp er tímabærara nú en nokkru
sinni fyrr.
Bonnstjómin hefur rekið og rekur áfram
sína „ákveðnu pólitík". Vesturþýzki herinn
og málpípur hans vara við „vanrækslunni í
kjarnavopnabúnaði Vesturevrópu" — og
hamra á þessari höfuðáminningu. Ríkis-
kanslarinn bendir á það, „að Vesturþýzka-
land sé aftur orðið veldi“, og hann er
áfram um að gera það að kjarnorkuveldi.
Valdamiklir fulltrúar stjómarstefnunnar
virðast ekki taka tillit til þess að Sam-
bandslýðveldið er bráðabirgðaráðstöfun,
innanlands eflist undirbúningur undir
„varnarstríð", neyðarráðstafanir „utan lag-
anna“ eru tilkynntar, hver tilhneiging til
að tryggja hlutleysi í hemaðarátökum er
bæld niður, persónulega og málefnalega.
Á sama tíma og forseti Bandaríkjanna
krefst þýzkra afvopnunartillagna hefur sam-
bandsstjómin í Bonn — sem fyrr — látið
ógert að styðja eina einustu hugsun, sem
miði í þá átt að draga úr pólitískri spennu
í heiminum.
í þessu sambandi finnst okkur rétt að
vekja athygli á því að skoðanir sambands-
stjórnarinnar á þessum málum eru ekki þær
sömu og skoðanir þýzks almennings. Við
erum þess fullvissir þvert ofaní skoðanir
vamarmálaráðherrans Strauss um að „völd-
in komist úr höndum guðleysingjanna i
hendur kristinna manna“ með vopnavaldi,
þvert ofaní bollaleggingar vesturþýzka hers-
320