Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Side 111

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Side 111
því riti, sem hér verður fjallað um. Öll börnin voru prófuð með WISC, greind- arprófi David Wechslers fyrir börn. Annaðist Arnór Hannibalsson einkum þetta verk, staðlaði prófkerfið fyrir ís- lenzk börn og sá um útgáfu þess. Með því verki hefir íslenzkum sálfræðingum bætzt þýðingarmikið rannsóknartæki. Höfundar beita talnaniðurstöðunni í formi greindarvísitölu. Öðru vandasömu prófi var einnig beitt í rannsókn þess- ari, geðgreiningarprófi Rorschachs, en því hefir ekki fyrr verið beitt við jafn mikinn fjölda barna hér á landi. Gylfi Asmundsson, annar samstarfsmaður Sig- urjóns, framkvæmdi þær prófanir, en hinni vandasömu úrvinnslu á niðurstöð- um mun ekki að fullu lokið. Bókarhöf- undar styðjast þó að nokkru við þær, eins og ég vík að síðar. Meginþáttur rannsóknarinnar beind- ist að persónuleika barnsins og stöðu þess í samfélaginu, eins og titill bókar- innar gefur til kynna. Annaðist Sigurjón Björnsson hann með aðstoð félagsráð- gjafa og annars starfsliðs. Það tekur til geysimargra þátta í sálarlífi barnsins, heilsufars þess, heimilisaðstæðna, mennt- unar og efnahags foreldra o. fl. Upp eru taldir 25 þættir, sem kannaðir voru og skráðir hjá hverju barni eða tengdir því. Ef litið er yfir aldursskeið árganganna ellefu og skipting hvers árgangs eftir kyni, má lesanda strax í upphafi bókar verða ljóst, að hér er efnt til geysivíð- tækrar rannsóknar. Eins og kunnugt er af fyrirlestrum, sem próf. Sigurjón hefir flutt, mun hann þegar hafa unnið að nokkru úr öllum þáttum rannsóknar sinnar, en höfundar fyrirliggjandi rits hafa þó kosið að skjóta á frest endan- legri umfjöllun nokkurra þátta, enda hefði bókin að öðrum kosti orðið mjög stór. Umsagnir um bcekur í lok inngangskaflans gera höfundar grein fyrir væntanlegri niðurröðun og tengslum efnisins, lauslegt yfirlit sem naumast verður gert í knappara formi. Hinn mikli fjöldi af töflum og línurit- um, sem þekja blaðsíður í aðalköflum bókarinnar, kunna að fæla einhvern frá lestri hennar. Slík fælni væri þó ástæðu- laus. Höfundar ásetja sér að beita töl- fræðinni með gát, aðeins sem skýrandi hjálpargrein, svo að hún skyggi hvergi á sálrænar staðreyndir. Slík hófsemi ætti að gera hverjum áhugamanni bókina að- gengilega, þótt hann státi ekki af sér- stakri leikni í tölfræði. Stéttaskipting og ólík kjör stétta eru meðal meginhugtaka bókarinnar. Börn skiptast að vísu ekki í stéttir, en spyrja má, hvort þau njóti eða gjaldi þeirrar atvinnustéttar, sem foreldrar þeirra telj- ast til. Nú er stéttaskipting hér á landi mjög óljós og háð sífelldum breyting- um. Þetta veldur bókarhöfundum erfið- leikum við ákvörðun þeirra starfsstétta, sem börn í fyrrgreindum rannsóknar- hópi koma úr. Með stuðningi af ófull- komnum heimildum skipta þeir honum í 6 deilihópa samkvæmt aðalstarfi heim- ilisföðurins á líðandi stund. Róttæk breyting á efnahag og menntunarmögu- leikum frá kynslóð föður til kynslóðar barna hans er auðsæ, og hún virðist um- byltandi, ef litið er einni kynslóð lengra afmr í tímann. Hún gerist samtímis sterkri hreyfingu í búsetu, streymi úr strjálbýli í þéttbýli, frá fornum starfs- háttum til nýrra. Vaxandi sókn ungrar kynslóðar til mennta er eitt hinna knýj- andi afla þessara samfélagsbreytinga, þáttur í almennri sókn til bættra lífs- kjara. Streymi upp á við til bemr meg- andi stétta er miklu örara en afmrhvarf frá þeim til hinna lægri, eins og höf- undar sýna með einföldum breytismðli 329
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.